27.9.2026 9:23

Ríkisstjórn í eigin heimi

Viðreisn hefur misst málið, Flokkur fólksins samheldnina og Samfylkingin frumkvæðið. Eftir situr ríkisstjórn án sameiginlegs erindis.

Ríkisstjórnin var mynduð um þrjú skilgreind verkefni: þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald ESB-viðræðna, stöðugleika í efnahagsmálum og endurreisn trausts á stjórnmálum. Nú hefur þjóðin hafnað ESB-áformunum, óvissa ríkir í efnahagsmálum, í baklandi stjórnarinnar eru átök og traustið fer þverrandi.

Viðreisn varð til vegna kröfunnar um inngöngu í ESB og upptöku evru. Þjóðin hafnaði því að haldið yrði áfram að ræða aðild. Flokkurinn situr því áfram í ríkisstjórn eftir að meginmáli hans hefur verið hafnað. Hann getur sinnt ráðuneytum sínum en á erfitt með að skýra hvers vegna hann eigi lengur að vera í stjórninni.

Flokkur fólksins er sköpunarverk Ingu Sæland. Hún og Guðmundur Ingi Kristinsson héldu flokknum saman og gáfu honum trúverðugleika. Nú situr Guðmundur Ingi utan flokka eftir að Inga krafðist afsagnar hans úr ráðherrastóli meðan hann lá á sjúkrahúsi. Frásagnir þeirra eru ósamhljóða en pólitíska niðurstaðan er skýr: Annar tveggja burðarása flokksins er horfinn og eftir stendur enn eindregnari persónuflokkur.

Screenshot-2026-09-27-at-11.21.24Inga Sæland afhendir Ragari Þór Ingólfssyni ráðherralykilinn 11. janúar 2026 (mynd:stjórnartáðið).

Samfylkingin hefur staðið sameinuð að baki Kristrúnu Frostadóttur. Styrkur hennar hefur verið agi og skýr forysta. Stjórnarsamstarfið sem hún smíðaði eftir kosningar 2024 hefur hins vegar mistekist. Hún tók ranga ákvörðun þegar hún beitti pólitísku afli sínu í þágu ESB-málsins. Hún beið þar ósigur. Þegar hún síðan lýsti vilja til að setja lög á verkfall flugvirkja gekk hún gegn djúpstæðri afstöðu verkalýðsarms Samfylkingarinnar.

Nú eru hallalausu fjárlögin helsta haldreipi forsætisráðherra. Fjárlagafrumvarpið var kynnt með miklu yfirlæti og á að skila tæplega fimm milljarða króna afgangi. Ráðherrarnir fagna hallalausu núlli á sama tíma og óvissa um verðbólgu, vexti og kjarasamninga grefur undan forsendum þess. Þetta veikir von Kristrúnar Frostadóttur um að hallalaus fjárlög geti orðið nýtt sameiningartákn ríkisstjórnarinnar.

Sveitarstjórnir og fyrirtæki hafa nú heitið að virða verðbólgumarkmiðið við gerð áætlana og ákvörðun verðlags. Með því vilja þau stuðla að hjöðnun verðbólgu og friði á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin hefur ekki kynnt sambærilegt átak af sinni hálfu. Fjárlagafrumvarpið stefnir í raun í öfuga átt.

Hallalaus fjárlög eru góðra gjalda verð. Hvort ríkisstjórnin setur líf sitt að veði vegna þeirra þegar kjaramál eru í uppnámi og verðbólga, vextir og opinberar álögur þrengja að heimilum og fyrirtækjum kemur í ljós á næstu dögum.

Ekkert af þessu leiðir sjálfkrafa til stjórnarslita. Ríkisstjórnir geta setið lengi vegna þess eins að stjórnarflokkarnir óttast kosningar. Þá breytist ríkisstjórnin hins vegar í varnarbandalag ráðherra og þingmanna sem eiga það helst sameiginlegt að vilja halda sætum sínum.

Afleiðingin verður stöðnun. Viðreisn hefur misst málið, Flokkur fólksins samheldnina og Samfylkingin frumkvæðið. Kristrún getur haldið stjórninni saman með aga en agi kemur ekki í stað stefnu.

Þjóðin býr við ríkisstjórn sem situr áfram í eigin heimi en veit ekki lengur til hvers. Slíkt ástand kallar fyrr eða síðar á pólitískt uppgjör: Annaðhvort róttæka endurnýjun stjórnarstarfsins eða kosningar. Spurningin er ekki aðeins hve lengi ríkisstjórnin lifir heldur hve mikill tími tapast á meðan hún reynir að finna sér nýjan tilgang.