Ræður alþingi ekki við bókun 35?
Dómaframkvæmd hefur síðan sýnt að orðalag 3. gr. nægir ekki til að tryggja að fullu þann árangur sem lýst var í greinargerðinni. Það er þá verkefni alþingis að bæta úr með skýrari lagasetningu.
Kenningarnar sem menn smíða í kringum bókun 35 og innleiðingu hennar, nú 33 árum eftir samþykkt EES-laganna, eru með nokkrum ólíkindum að mínu mati. Ég var formaður utanríkismálanefndar alþingis þegar frumvarpið um EES-samninginn var samþykkt í janúar 1993 og man vel eftir meðferð þess.
Í 3. gr. laganna segir: „Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“
Í fylgiskjali með frumvarpinu er efni bókunar 35 rakið og skýrt að EFTA-ríkin hafi hafnað kröfu Evrópubandalagsins (EB) um að taka upp forgangsreglu EB-réttar. Slíkt hefði kallað á framsal löggjafarvalds í ríkjum þar sem þjóðaréttur hefði ekki þegar forgang gagnvart landslögum. Það átti við um Ísland.
Haust.
Samkomulag náðist um bókun 35. Með henni var staðfest að löggjafarvald væri ekki framselt til stofnana EES. Jafnframt skuldbundu EFTA-ríkin sig til að tryggja með reglum eigin réttarkerfis að innleiddar EES-reglur giltu ef þær rækjust á önnur lagaákvæði.
Í greinargerð um 3. gr. frumvarpsins eru tekin af tvímæli um hvað ætlunin var að tryggja. Þar segir að innlend lög sem eiga stoð í EES-samningnum verði jafnan túlkuð sem sérreglur gagnvart ósamrýmanlegum yngri lögum. Síðan kemur þessi orðrétta afmörkun: „Að því leyti að yngri lög víki þeim ekki ef þau stangast á, nema löggjafinn taki það sérstaklega fram.“
Þetta var því fyrirkomulagið sem lagt var fyrir alþingi: Innleiddar EES-reglur skyldu halda gildi sínu gagnvart ósamrýmanlegum yngri lögum, en löggjafinn héldi heimild til að ákveða annað sérstaklega.
Eftir 82 fundi í utanríkismálanefnd um lögin og samninginn birtu nefndarmenn álit sín. Í áliti okkar sem sátum í meirihlutanum sagði:
„Í 3. gr. frumvarpsins er að finna skynsamlega og nauðsynlega reglu varðandi lögskýringu og takmörkun á skýringarreglu greinarinnar. Af ákvæðum 3. gr. ræðst að engar kvaðir eru lagðar á Alþingi varðandi framtíðarlagasetningu vegna EES.“
Ég minnist þess ekki að innleiðing bókunar 35 hafi verið sérstakt ágreiningsefni í nefndinni. Þessi orð í meirihlutaálitinu bera þess ekki heldur merki.
Nú sést hins vegar fullyrt að EES-samningurinn hafi einungis verið samþykktur á alþingi með minnsta mögulega meirihluta „vegna breyttrar innleiðingar bókunar 35“. Ég veit ekki til hvaða heimilda er vísað með þeirri fullyrðingu. Lögin voru samþykkt með 33 atkvæðum gegn 23, en sex sátu hjá.
Efni bókunarinnar hafði verið ákveðið í samningaviðræðum áður en frumvarpið kom til afgreiðslu alþingis. Verkefni þingsins var að taka afstöðu til samningsins og ákveða hvernig skuldbindingum hans yrði fullnægt hér á landi. Af greinargerðinni og meirihlutaálitinu sést að talið var unnt að ná markmiðum bókunarinnar án framsals löggjafarvalds.
Dómaframkvæmd hefur síðan sýnt að orðalag 3. gr. nægir ekki til að tryggja að fullu þann árangur sem lýst var í greinargerðinni. Það er þá verkefni alþingis að bæta úr með skýrari lagasetningu.
Tilraunir til þess hafa ekki borið árangur til þessa og ESA hefur nú vísað málinu til EFTA-dómstólsins. Ágreiningurinn snýst um hvort íslensk lög tryggi að innleiddar EES-reglur hafi þau áhrif sem bókun 35 áskilur.
Í Kastljósi 12. október lýsti Davíð Þór Björgvinsson, fyrrverandi prófessor, undrun sinni yfir því hve mikið veður hefði verið gert út af málinu. Eiríkur Svavarsson lögmaður og varaþingmaður Miðflokksins var annarrar skoðunar og taldi sjálfa stjórnarskrána í húfi.
Ég er sammála Davíð Þór. Þetta er stormur í vatnsglasi
Alþingi ætlaði þegar árið 1993 að tryggja stöðu innleiddra EES-reglna og réttindi þeirra sem á þeim byggja, án þess að afsala sér löggjafarvaldi. Nú þarf alþingi að tryggja að sú ætlun nái fram að ganga.
Textinn var uppfærður að kvöldi 13. október.