Ræða Þorgerðar Katrínar
Auðvitað rúmast ekki öll utanríkisstefna Íslands í einni ræðu en ráðherrann kaus sjálf að gera stöðu smáríkja í ótryggum heimi að leiðarstefi sínu.
Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna laugardaginn 26. september hefur víða vakið athygli. Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um svar hennar við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og hér heima hefur ráðherranum verið hrósað fyrir að tala af festu um alþjóðalög og mannréttindi.
Þá fær drottningarviðtal við ráðherrann í Silfrinu 28. september mikið lof stuðningsmanna hennar og ríkisstjórnarinnar. Lofið kemur sér vel fyrir ríkisstjórn sem stendur veikar eftir niðurstöðuna 29. ágúst. Sterk framkoma utanríkisráðherra á alþjóðavettvangi beinir athyglinni frá því máli sem hún tapaði heima fyrir. Ljóst er að án þess að hlutur formanns Viðreisnar sé gerður sem bestur er stjórnarsamstarfið í húfi. Slegin er skjaldborg um Þorgerði Katrínu eins og gert er um Ingu Sæland. Það er vörn fyrir líf stjórnarinnar.
Utanríkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sþ 26. september 2026..
Ræðan á allsherjarþinginu var vel flutt og átti sterka kafla. Þar voru líka veikar hliðar.
Utanríkisráðherra minnti á að smáríki eiga allt undir því að stærri ríki virði fullveldi þeirra og sameiginlegar reglur. Hún talaði skýrt um innrás Rússa í Úkraínu og þjáningar almennra borgara á Gaza en í umfjölluninni um Ísrael og Palestínu nefndi hún hvorki grimmdarverk Hamas 7. október né ábyrgð samtakanna á því að friður náist. Þegar meginstef ræðunnar er að alþjóðalög verði að gilda fyrir alla vekur þessi þögn athygli.
Þá er frá íslenskum sjónarhóli ástæða til að nefna að í ræðunni var ekki eitt orð um eigin stöðu Íslands. Fyrir tæpum mánuði hafnaði íslenska þjóðin því að hefja að nýju viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Þorgerður Katrín hafði sjálf beðið þjóðina um já og meðal annars fært rök fyrir því að aðild gæti styrkt öryggi landsins. Hún hafði því sérstakt tilefni til að skýra á alþjóðavettvangi hvaða leið Ísland færi eftir þessa niðurstöðu. Það gerði hún ekki.
Þögnin verður enn meira áberandi þegar litið er til norðurslóða. Þar talaði ráðherrann um hlýnandi loftslag og hopandi jökla. Það eru mikilvæg mál. Hún ræddi hins vegar ekki breytta hernaðarlega stöðu á Norður-Atlantshafi, umsvif Rússa á hafinu, hlutverk Íslands í vörnum NATO eða varnarsamstarfið við Bandaríkin. Ekki heldur hvernig Ísland ætlar sjálft að efla þekkingu sína og getu til að fylgjast með því sem gerist á hafsvæðinu.
Auðvitað rúmast ekki öll utanríkisstefna Íslands í einni ræðu en ráðherrann kaus sjálf að gera stöðu smáríkja í ótryggum heimi að leiðarstefi sínu. Þá hefði farið vel á því að segja hvernig Íslendingar hefðu nýlega ákveðið að haga sambandi sínu við ESB og hvernig þeir ætluðu að mæta vaxandi öryggiskröfum í eigin heimshluta.
Lofið fyrir ræðuna má ekki koma í veg fyrir að fjallað sé um þetta. Sterk orð um alþjóðalög skipta máli. Þau leysa þó ekki ráðherrann undan því að skýra stöðu Íslands og gæta jafnvægis þegar hún talar í nafni þjóðarinnar.
Á allsherjarþinginu hafði Þorgerður Katrín fullt tilefni til að ræða ógnir við frið og mannréttindi. Hún hafði líka sérstakt tilefni, aðeins fjórum vikum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, til að segja hvernig Ísland hygðist gæta eigin hagsmuna og öryggis eftir að leiðinni sem hún sjálf mælti með var hafnað.