14.10.2026 14:45

Ráðherra verndar RÚV

Vernd RÚV ræður ferð ráðherrans. Einkamiðlum á að bjóða auknar greiðslur innan kerfis sem viðheldur yfirburðum ríkisfyrirtækisins.

„Á minni vakt verður almannafjölmiðillinn ekki veiktur,“ sagði Logi Einarsson menningarráðherra á alþingi 13. október þegar Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði hann um stöðu einkarekinna fjölmiðla og fyrirhugaðar breytingar á lögum um RÚV.

Þessi orð lýsa forgangsröðun ráðherrans. Þegar frumvarpsdrög hans eru lesin með umsögnum Árvakurs, Viðskiptaráðs og Sýnar í samráðsgátt stjórnvalda blasir við sérkennileg stefna: Fjárhagur RÚV verði varinn og styrktur en einkamiðlum boðin hlutdeild í ávinningnum af auglýsingasölu ríkismiðilsins.

Screenshot-2026-10-14-at-14.43.33Af Facebook.

Ráðherrann leggur áherslu á að stuðningur við einkamiðla aukist. Það svarar þó ekki grundvallarspurningunni um hvort þeir fái nægilegt svigrúm til að afla eigin tekna. Með fyrirhuguðu kerfi verður hluti stuðningsins við þá tengdur auglýsingatekjum RÚV, miðað við meðaltal fjögurra undanfarinna reikningsára. Keppinautum ríkismiðilsins er þannig ætlað að njóta góðs af tekjum sem hann aflar á markaðnum þar sem þeir berjast sjálfir um viðskipti.

Viðskiptaráð bendir réttilega á þessa sérkennilegu hvata. Einkamiðlar verða bæði háðari opinberum stuðningi og óbeint velgengni ríkisrekins keppinautar. Með þessu er fjárhagslegt sjálfstæði einkamiðlanna ekki eflt.

Í upphafi umsagnar Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, er bent á að fækka megi rásum RÚV og draga úr kostnaði án þess að hlutverki þess sé ógnað. Ein útvarpsstöð og ein sjónvarpsstöð geti sinnt því hlutverki.

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að felldar verði brott kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsdagskráa sem RÚV sé skylt að dreifa um allt land. Með breytingunni verður stjórn RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum. Í greinargerðinni segir að ekki sé talið nauðsynlegt eða æskilegt að fjöldi rása sé sérstaklega tilgreindur í lögum.

Þarna liggur munurinn á frumvarpsdrögunum og tillögu Árvakurs. Árvakur vill að lögin afmarki starfsemina við eina útvarpsstöð og eina sjónvarpsstöð. Ráðherrann leggur hins vegar til að stjórn RÚV ákveði umfangið. Verði frumvarpið að lögum getur stjórnin bæði fækkað rásum og fjölgað þeim, með fyrirvara um reglur um mat á nýrri þjónustu. Engin krafa er gerð um að hún nýti heimildina til fækkunar.

Hlutverk RÚV er að sinna almannaþjónustu. Af því leiðir ekki að verja þurfi öll núverandi umsvif þess á samkeppnismarkaði. Ráðherrann notar orðið „almannafjölmiðill“ þegar hann ver áframhaldandi auglýsingatekjur RÚV. Þannig verður skírskotun til almannaþjónustu að röksemd fyrir vernd viðskiptahagsmuna ríkismiðilsins.

Sýn telur fyrirhugað auglýsingaþak ekki standa undir nafni. Það sé svo hátt að það hefti ekki umsvif RÚV og geti auk þess skapað hvata til undirverðlagningar. Jafnframt bendir félagið á að ríkissjóður ætli að taka yfir milljarða lífeyrisskuldbindingar RÚV. Að mati Sýnar leiði aðgerðirnar saman til verulegrar styrkingar á fjárhag ríkismiðilsins.

Vernd RÚV ræður ferð ráðherrans. Einkamiðlum á að bjóða auknar greiðslur innan kerfis sem viðheldur yfirburðum ríkisfyrirtækisins. Þeir fá hlutdeild í auglýsingatekjum þess en hafa áfram takmarkað svigrúm til eigin tekjuöflunar.

Ráðherra fjölmiðlamála ber ábyrgð á starfsumhverfi allra miðla. Hann ætti að leggja metnað sinn í að einkamiðlar geti staðið á eigin fótum og veitt stjórnvöldum sjálfstætt aðhald. Það er öfugsnúið að gera þá fjárhagslega háða góðu gengi ríkismiðilsins sem keppir við þá.