Pólitískt tómarúm í Kastljósi
Af Kastljósviðtalinu verður helst ráðið að Þorgerður Katrín telji nóg að fullvissa áhorfendur um að hún láti ekki deigan síga. Í því felst ekkert svar við pólitískum áföllum Viðreisnar.
Öll spjót standa nú á Viðreisn. Tilvistarmál flokksins varð að engu þegar þjóðin hafnaði tillögu hans og ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju viðræður um aðild að ESB. Varaformaður flokksins, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, heldur þannig á málefnum Landsvirkjunar að alvarlegar deilur eru um yfirstjórn hennar. Stjórn fyrirtækisins, sem ráðherrann skipaði, á þrátt fyrir þetta að ráða nýjan forstjóra.
Tveir þingmenn Viðreisnar, 20% þingmanna flokksins, hafa sagt skilið við þingflokkinn á skömmum tíma og gagnrýnt forystuna. Annar þeirra hefur gengið í Sjálfstæðisflokkinn.
Skjámynd: Kristján Kristjánsson ræðir við Þorgerði Katrinu Gunnarsdóttur í Kastljósi 17. nóvember 2026.
Við þessar aðstæður fékk Kristján Kristjánsson, stjórnandi Kastljóss, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar og utanríkisráðherra, í viðtal þriðjudaginn 17. nóvember.
Eftir viðtalið birti ruv.is frétt undir fyrirsögninni: „Ég fór ekki í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt.“ Þessi fyrirsögn segir í raun allt um það sem stóð upp úr samtalinu. Hver hélt að Þorgerður Katrín hefði farið í stjórnmál til að sitja auðum höndum og hafa það náðugt?
Nú gegnir hún embætti utanríkisráðherra og réð mestu um tímasetningu og málatilbúnað þjóðaratkvæðagreiðslu um helsta baráttumál sitt og flokks síns. Þjóðin hafnaði þeirri leið sem hún lagði til. Almennar yfirlýsingar um samheldni og dugnað breyta því ekki.
Í Kastljósinu fullyrti Þorgerður Katrín að ríkisstjórnin stæði sterkum fótum og þingflokkur Viðreisnar væri nú „algjörlega samhentur“. Hún talaði einnig svona eftir brotthvarf Jóns Gnarr en síðan fór Ingvar Þóroddsson á braut. Þetta lýsir frekar losi en samheldni.
Þegar talið barst að þjóðaratkvæðagreiðslunni lagði Þorgerður Katrín áherslu á að þjóðin hefði ekki verið að segja skilið við „evrópsku fjölskylduna“. Hún vildi halda í EES-samninginn. Þetta er sérkennileg skýring á úrslitunum. Enginn hafði lagt til að Ísland segði skilið við EES eða samstarf við Evrópuríki. Kosið var um hvort hefja ætti á ný viðræður um aðild að ESB. Þjóðin svaraði þeirri spurningu neitandi.
Utanríkisráðherrann vék síðan að útflutningi til Evrópu, góðum samskiptum við Bandaríkin og nauðsyn þess að lækka verðbólgu. Allt eru þetta kunnugleg umræðuefni. Hún lét eins og nýmæli fælist í því að við ættum náið samstarf við Noreg, Bretland og Kanada og myndum fylgja fordæmi þeirra í samskiptum við ESB. Um það allt fór hún þó óljósum orðum.
Það sem vekur mesta athygli við endursögnina á ruv.is er þó ekki það sem Þorgerður Katrín sagði heldur það sem ekki kemur fram. Þar er engin efnisleg skýring á því hvers vegna tveir þingmenn yfirgáfu þingflokkinn, ekkert uppgjör við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og engin skýr afstaða til þeirrar ábyrgðar sem hvílir á varaformanni Viðreisnar vegna Landsvirkjunar.
Í staðinn sitja eftir yfirlýsingar um sterka ríkisstjórn, samhentan þingflokk og að stjórnmál séu ekki alltaf hugguleg.
Þegar formaður stjórnmálaflokks í tilvistarvanda fær tækifæri til að ræða stöðu sína eftir jafn afdrifaríka atburði ætti almenningur að verða einhvers vísari um stefnu flokksins, ákvarðanir forystunnar og ábyrgð hennar.
Af Kastljósviðtalinu verður helst ráðið að Þorgerður Katrín telji nóg að fullvissa áhorfendur um að hún láti ekki deigan síga. Í því felst ekkert svar við pólitískum áföllum Viðreisnar.
Eftir stendur tómarúm þar sem vænta mátti skýringa og ábyrgðar.