14.5.2026 10:14

Pólitísk bomba Össurar

Össur kastar þarna pólitískri bombu tveimur sólarhringum fyrir kjördag. Láti Viðreisn hana liggja óhreyfða fram yfir kjördag er líklegt að hún skaði tiltrú til hennar.  

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, fylgist með borgarstjórnarkosningunum frá Kaupmannahöfn og hefur sérstakar áhyggjur af tali Bjargar Magnúsdóttur í Viðreisn um Samfylkinguna. Í reiðilestri um Björgu á Facebook 13. maí segir Össur að „hið sjálfvalda borgarstjóraefni“, Björg, sé eðlilega æf yfir myglu í skólum. Það sé náttúrlega alls ekki á ábyrgð Viðreisnar „því einn af hæfileikum Bjargar er sérlega vel smurt taktískt minni. Af mikilli hind tekst henni að gleyma því að mygluskólarnir voru flestir – ef ekki allir – líka byggðir á „hennar“ vakt, þeas. meðan Viðreisn og forverar hennar voru í meirihluta í borgarstjórn“,

Þá segir Össur að Björg geti meira, til dæmis „talað illa um samstarfsflokk Viðreisnar í ríkisstjórn sem líklega bíður það hlutskipti að bjarga helsta baráttumáli flokksins frá snemmbúnum aldurtila“. Össur er tilbúinn að fyrirgefa Björgu þessa „hrösun“. Hitt sé verra að Benedikt Jóhannesson, „löngu gleymdur stofnandi Viðreisnar“, ranki við sér í pólitískri gröf og reki upp sömu rokuna gegn Samfylkingunni „við lófatak gervalls ráðherraliðs Viðreisnar“, vegna þessa sé varla „tilefni til að spyrja hvort byssunum sé miðað eða þær skjóti sjálfar“.

Lesa verður þetta með vísan til fyrri ummæla Össurar um að Samfylkingin standi nú „á blístri við að koma í gegn á Alþingi máli sem bókstaflega er spurning um líf og dauða Viðreisnar – ekki síst formannsins“ og vísar hann þar til þingsályktunartillögunnar um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.

Ossur_Skarphedinsson-_utrikesminister_Island._Nordiska_radets_session_2009_-1-Össur Skarphéðinsson.

Orð Össurar staðfesta það sem hér hefur verið sagt áður, að Samfylkingin muni að kosningum loknum krefjast þess af samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórn að þeir sýni fulltrúum hennar hollustu þegar kemur að myndun meirihluta í sveitarstjórnum.

Hitt er ekki síður athyglisvert að áhrifamaður innan Samfylkingarinnar á borð við Össur skuli gefa til kynna að það sé ekki borðleggjandi stuðningur innan þingflokks Samfylkingarinnar við tillögu Þorgerðar Katrínar um þjóðaratkvæðið og það kunni að vera flokknum að meinalausu að láta málið liggja óafgreitt ef Viðreisn sjái ekki að sér og hverfi frá andstöðu við Samfylkinguna í sveitarstjórnum. Hann segir jafnframt réttilega að þar hafi Samfylkingin líf og dauða Viðreisnar í hendi sér. Flokkurinn er til í kringum þetta eina mál.

Össur kastar þarna pólitískri bombu tveimur sólarhringum fyrir kjördag. Láti Viðreisn hana liggja óhreyfða fram yfir kjördag í trú um að hún geti sagt eitt við kjósendur fyrir kjördag til að sverta Samfylkinguna og síðan lagst í duftið fyrir Samfylkingunni til að bjarga eigin lífi að kjördegi loknum afhjúpast aðeins betur hvílíkur sérhagsmunaflokkur Viðreisn er.

Í byrjun vikunnar sagði Benedikt Jóhannesson á Facebook: „Allir eru sammála um að nú sé kominn tími til þess að gefa Samfylkingunni frí. Jafnvel fólk sem stendur henni nærri og ætlar hugsanlega að kjósa hana af gömlum vana, sjálfu sér þvert um geð.“ Hann vill að þetta fólk kjósi Viðreisn til þess að halda Samfylkingunni örugglega frá völdum í Reykjavík.

Skyldi Benedikt draga í land til að milda Össur og bjarga lífi Viðreisnar?