Orðaskak Þorgerðar Katrínar
Þar er ráðherrann að komast í sama gír og einkenndi málflutning hennar á leiðinni til ósigurs í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
„Við getum gert hvort tveggja,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í Morgunblaðinu mánudaginn 12. október. Eftir að hafa farið halloka í þjóðaratkvæðagreiðslu um tilvistarmál eigin flokks tekur hún að sér að kenna stjórnarandstöðunni að Ísland geti bæði ræktað tengsl við Bandaríkin og tekið þátt í Evrópusamstarfi.
Þetta hefur verið grundvöllur íslenskrar utanríkisstefnu áratugum saman. Ráðherrann hefur ekkert nýtt fram að færa þegar hún áréttar þetta.
Það var Þorgerður Katrín sjálf sem tengdi í janúar 2026 óvissu vegna stefnu Bandaríkjastjórnar gagnvart Grænlandi og í öryggismálum við nauðsyn þess að flýta þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður. Þetta var ögrun við bandarísk stjórnvöld og tilraun til að nýta áhyggjur af öryggi Íslands í þágu aðildarstefnu Viðreisnar. Nú talar hún um traust tengsl við Bandaríkin eins og gagnrýnendur hennar hafi efast um gildi þeirra.
Hún reynir nú að nota heimsókn Marcos Rubio utanríkisráðherra hingað sér til framdráttar. Svo virðist sem hún telji að heimsóknin réttlæti fyrri málflutning hennar um að þróun samskiptanna vestur um haf kalli á aukinn hraða í ESB-málinu. Það er ósannfærandi. Ég lít fremur á komu Rubios sem merki um velþóknun Bandaríkjastjórnar á úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Þorgerður Katrín vandar einnig um fyrir Sjálfstæðisflokknum vegna frumvarps um breytingu á EES-lögunum sem upphaflega var samið og flutt af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þáverandi utanríkisráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Þorgerður Katrín hefur tvisvar endurflutt frumvarpið.
Nú gekk frumvarpið til utanríkismálanefndar eftir stuttar umræður í þingsal og er þar til skoðunar. Við fyrstu umræðu bentu sjálfstæðismenn á að ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum kallaði á sérstaka athugun utanríkismálanefndar á því hvernig haga ætti þingmeðferðinni. Krafa um að þingnefnd athugi stöðu málsins eftir ákvörðun ESA jafngildir ekki stefnubreytingu.
Utanríkisráðherra kýs að gera þessa afstöðu tortryggilega með ómaklegum aðdróttunum í garð Guðrúnar Hafsteinsdóttur. Þar er ráðherrann að komast í sama gír og einkenndi málflutning hennar á leiðinni til ósigurs í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Í sama anda gerir ráðherrann einnig lítið úr áherslu forystu Sjálfstæðisflokksins á fríverslunarsamning við Bandaríkin. Rubio hafi sagt tíma hefðbundinna fríverslunarsamninga liðinn um fyrirsjáanlega framtíð en Bandaríkin vilji ræða annars konar tvíhliða viðskiptasamninga.
Það sýndi sig fyrir ESB-atkvæðagreiðsluna að nákvæmni í hugtakanotkun vafðist fyrir utanríkisráðherra. Nú skipta hugtök hana höfuðmáli. Fríverslunarsamningur Íslands og Bandaríkjanna væri tvíhliða viðskiptasamningur. Fríverslun lýsir efni og markmiði; tvíhliða segir til um aðilana. Annars konar samningur getur verið þrengri, tekið til einstakra viðskiptahindrana og skilið eftir tolla. Sá munur getur skipt íslensk fyrirtæki miklu.
Afstaða Bandaríkjastjórnar ræður því hvaða samningur er fáanlegur núna. Hún gerir þó markmiðið um frjálsari viðskipti síður en svo fráleitt. Verkefni utanríkisráðherra er að skýra hvaða ávinningi megi ná og sækja hann. Orðaskak um heiti samnings kemur þar að litlu gagni.
Það er þó einmitt orðaskakið sem skiptir Þorgerði Katrínu mestu.