11.3.2026 8:43

Önugur orkumálaráðherra

Hér skal tekið undir áhyggjur Höllu Hrundar að ráðherrar tala meira um þjóðaröryggismál en þeir framkvæma í þágu þeirra.

Nú þegar enginn veit hver verða áhrif árásanna á Íran á orkumál í heiminum og rætt er um að heimila eigi notkun neyðarbirgða í þeim löndum sem eiga þær má minna á að engar slíkar birgðir eru til hér á landi. Jóhann Páll Jóhannsson orkumálaráðherra bregst illa við þegar um það er rætt.

Halla Hrund Logadóttir, fyrrverandi orkumálastjóri og núverandi þingmaður Framsóknarflokksins, sótti fast að Jóhanni Páli í fyrirspurnartíma á alþingi fimmtudaginn 5. mars. Hún sagði að ráðherrann hefði þá í vikunni minnst „á mikilvægi þess að huga að því að efla birgðastöðu eldsneytis á Íslandi“ og hún bætti við „að huga að því, eins og það væri einhver framtíðarmúsík sem þyrfti að skoða og meta“.

Við þetta firrtist ráðherrann og sagði að „grunnforsendan“ í spurningu þingmannsins „og þessum mikla hneykslunartón“ sem hann heyrði frá henni ætti „sér ekki stoð í raunveruleikanum“. Hann hefði hvergi sagt „að við værum að huga að þessu“. Þingmaðurinn gæti „bara flett því upp“ hvað hann hefði sagt og beðið sig afsökunar á að vera að leggja sér orð í munn. Orðrétt hefði hann sagt „að við ætluðum að klára að koma okkur upp neyðarbirgðum af olíu og það lægi á því að klára það mál“.

Í lok svars síns sagði ráðherrann: „Ég vil biðja hv. þingmann um að vera ekki að leggja mér orð í munn og hneykslast svo sérstaklega á því hérna í ræðusal að ég hafi sagt „huga að“. Jafnvel þótt ég hefði sagt það þá veit ég ekki hver glæpurinn er við það að vera að huga að einhverju.“

Halla Hrund sagði þá „vissulega ef hugað var ekki nákvæmlega að þessu þá er það leitt. En inntakið er samt það sama.“ Þá hrópaði ráðherrann úr sæti sínu: Nei!

Iran-begins-mining-strait-of-hormuz-as-washingtons-tanker-escort-claim-collapses-3216004_20260310213807Nú er tekist á um tundurdufl við olíuskipaleiðina um Hormuz-sund við Íran.

Þessi orðaskipti sýna enn og aftur hve þráðurinn er stuttur hjá ráðherrunum. Tilefni orða sinna rökstuddi Halla Hrund vel. Hún spurði vegna þess að ekki er á dagskrá fyrr en á næsta þingi, haustið 2026, hjá ráðherra að koma með tillögur til að tryggja varabirgðir af olíu í landinu sem þýddi að málið væri „einfaldlega í einhvers konar undirbúningi“ eins og hún orðaði það. Þetta sagði hún djúp vonbrigði því það væri einmitt staða heimsmálanna eins og hún birtist í dag sem sýndi okkur að við þyrftum „að ljúka þessu máli“. Þá sagði Halla Hrund:

„Mér finnst stundum þegar við erum að ræða um þjóðaröryggismál að þá sé eins og ríkisstjórnin sé að vinna þau mál með því að funda, með því að ræða við fjölmiðla en ekki með því að vinna verkin sem fela í sér að tryggja að grundvallarmál, eins og olíubirgðir í landinu sem eru mikilvægar fyrir flug, sem eru mikilvægar fyrir landbúnað, sem eru mikilvægar fyrir sjávarútveginn, séu í lagi.“

Henni þætti þetta vera fyrsta skrefið og myndi því vinna með ráðherranum í málinu vildi hann koma með það fyrr inn í þingið. Ráðherrann svaraði að þau væru að gera sitt „besta til að klára þetta mál“ og hann gerði ráð fyrir að þau legðu fram frumvarp um það á næsta löggjafarþingi.

Hér skal tekið undir áhyggjur Höllu Hrundar að ráðherrar tala meira um þjóðaröryggismál en þeir framkvæma í þágu þeirra.