24.2.2026 9:31

Ólafur Ragnar hitti Mandelson í Davos

Það ber ekki vott um mikinn metnað við athugun á hlut íslenska þráðarins í falli hertogans af York að blaðamenn hafi ekki nákvæmlega rakið augljósu tengslin þar sem sjálfur þáverandi forseti Íslands var í aðalhlutverki eins og hann hefur sjálfur lýst.

Það ber ekki vott um mikinn metnað við athugun á hlut íslenska þráðarins í falli hertogans af York að blaðamenn hafi ekki nákvæmlega rakið augljósu tengslin þar sem sjálfur þáverandi forseti Íslands var í aðalhlutverki eins og hann hefur sjálfur lýst.

Í bókinni Þjóðið og valdið birtir Ólafur Ragnar Grímsson dagbókarbrot frá tíð sinni sem forseti Íslands. Hann skráir 1. febrúar 2010, staddur í Vínbarborg, frásögn af för sinni til Davos nokkrum dögum áður. Þangað kom hann með, að eigin sögn, vel yddaðan málflutning um Icesave-deiluna eftir að hafa 5. janúar tilkynnt að hann synjaði lögum um Icesave-samningana staðfestingar.

Að kvöldi 28. janúar 2010 fóru þau Dorrit forsetafrú í móttöku sem hertoginn af York, Andrew prins, hélt fyrir hönd Bretlands. Þar segist hann hafa hitt Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, sem hefði tekið kveðju hans „vel en nokkuð þurrlega“. Þarna var einnig Peter Mandelson, viðskiptaráðherra Breta. Gefum Ólafi Ragnari orðið:

„Ég sá svo að Peter Mandelson stóð inni í herberginu. Bað Jonas Eliasch, vin Dorritar, sænsk-breskan bisnessmann sem fór frá Tory til Labour og þekkir ráðherrana vel, að kynna mig fyrir PM. Það samtal gekk vel. Ég sagðist alltaf hafa dáðst að honum, hældi honum, og tók hann því brosandi. Ég sagði svo að finna þyrfti lausn á deilunni og það væri hægt, en það þyrfti „constructive political thinking“og að taka málið úr höndum treasury officials báðum megin. Hann væri einmitt maðurinn til þess. Tók hann því vel. Ég sagði honum að lausnin gæti falist í að lækka til muna vextina. Nefndi líka að sökin lægi að hluta hjá okkur að hafa ekki farið með málið á top political level. Fyrri forsætisráðherra Íslands hefði verið of shell shocked eftir hrunið og sú sem væri núna talaði ekki ensku og væri ekki vön alþjóðlegum vettvangi. PM tók þessu afar vel og sagðist hafa móttekið skilaboðin. Hann var svo afar vinsamlegur við mig þegar við hittumst á fundum næstu daga. Ég tók sérstaklega í höndina á honum þegar við stóðum úti eftir eitt boðið og Dorrit var að setja fæturna upp á öxl mína til að sýna hvað hún væri fim! PM meðtók greinilega skilaboðin og fannst þetta vera fín operation hjá mér: að mæta hjá Andrew og tala svona við þá! Andrew prins sagði við mig þegar ég hitti hann næsta dag, þar sem hann var að tala við Hákon, krónprins Noregs, að ef hann gæti hjálpað til við að leysa deiluna þá væri hann tilbúinn til þess! Þetta var allt mjög merkilegt! Skilaboð inn í innsta hring bresku ríkisstjórnarinnar!“

Screenshot-2026-02-24-at-09.29.16Peter Mandelson handtekinn 23. febrúar 2026.

Það er undarlegt að forsetinn skyldi telja nauðsynlegt fyrir ágæti sitt að gera það á kostnað forsætisráðherranna Geirs H. Haarde og Jóhönnu Sigurðardóttur í samtölum sínum við Peter Mandelson. Það er hins vegar í stíl við margt annað sem í dagbókunum er lýst.

Aðdáun Ólafs Ragnars á Mandelson leynir sér ekki en ráðherradómur hans frá 2008 til 2010 er orðinn honum til álitshnekkis. Hann var handtekinn í London síðdegis í gær (23. febrúar) vegna gruns um brot í opinberu starfi. Honum var síðan sleppt gegn tryggingu eftir að hafa verið um 10 tíma í haldi. Sök hans er að hann sendi níðingnum Jeffrey Epstein trúnaðarskjöl úr ráðuneyti sínu.      

Framhald.