5.8.2024 10:29

Óeirðir í Bretlandi

Standi Rússar að baki þessum óeirðum eins og Kristján segir er um dæmigerða fjölþáttaaðgerð að ræða. 

Heimspekingurinn Kristján Kristjánsson, prófessor við Birmingham-háskóla í Bretlandi, segir á Facebook sunnudaginn 4. ágúst:

„Tveir íslenskir Facebook-vinir hafa lýst undrun yfir óeirðum síðustu daga í Bretlandi og hvernig þær tengjast nýju Verkamannaflokksstjórninni. Það eru engin tengsl þarna á milli. Það sem gerðist er að rússnesk fréttastofa, styrkt af stjórnvöldum, sendir stöðugt falsfréttir á breska samfélagsmiðla, nú síðast um barnamorðingjann í síðustu [í Southport] viku sem drap 3 litlar stúlkur. Fréttum var skipulega dreift frá Rússlandi með fölsku nafni hans og tilvísunum í hann sem öfga-múslima. Þetta var síðan étið upp af Nigel Farage og enn öfgafyllri rasistum. Það er enginn fótur fyrir þessum fréttum. Trúarbrögð koma þessum morðum ekkert við né hafa þau neitt að gera með menningarstríð um fjölmenningu. Þarna var einfaldlega vitfirrtur einstaklingur á ferð, fæddur í Bretlandi.“

Sama dag og Kristján birti þetta héldu óeirðir áfram í Bretlandi sjötta daginn í röð og nú á götum í Bolton, Middlesbrough og Rotherham. Í Rotherham var eldur borinn að hóteli þar sem hælisleitendur bjuggu og í Bolton áttu hópar múslíma í höggi við öfga-hægri aðgerðarsinna.

Sir Keir Starmer forsætisráðherra ávarpaði bresku þjóðina úr Downing-stræti. Hann hvatti til stillingar og sagði að lögreglan myndi handtaka óeirðarseggi. Einstaklingar yrðu hafðir í haldi, ákærur yrðu birtar og dómar felldir.

Screenshot-2024-08-05-at-10.26.41Hart sótt gegn bresku lögreglunni.

Standi Rússar að baki þessum óeirðum eins og Kristján segir er um dæmigerða fjölþáttaaðgerð að ræða. Vestrænar öryggisstofnanir hafa varað við þeim og á vettvangi NATO var ályktað sérstaklega um hættuna af þeim fyrir nokkrum vikum.

Þá er einnig dæmigert að stjórnmálamaður á borð við Nigel Farage leggist á sveif með Rússum. Skoðanabræður hans víða um lönd telja Pútin ekki fara offari í Úkraínu heldur gæti hann þar réttmætra hagsmuna Rússa og engin ástæða sé fyrir vestrið að styðja Úkraínustjórn heldur beinlínis hættulegt. Farage dró taum Pútins í kosningabaráttunni í Bretlandi fyrr í sumar. Honum finnst hann vera í skammarkrók í neðri deild þingsins og unir því illa.

Kristján segir engin tengsl milli nýju stjórnar Verkamannaflokksins og óeirðanna. Þetta er rétt, svo langt sem það nær. Tengslin blasa hins vegar við þegar til þess er litið að Rússar hafa hag af því að veikja sem mest trú á Sir Keir og stjórn hans á fyrstu vikum hennar. Ekkert vopn er betra en að blekkja Breta með falsfréttum til að kveikja ófriðarelda.

Mánudaginn 5. ágúst boðaði Sir Keir til fundar í COBRA, neyðarstjórn Bretlands.