Oddvitalínurnar skýrast
Á að minnsta kosti fjórum listum í Reykjavík eru oddvitarnir einstaklingar sem eiga pólitíska sögu í Sjálfstæðisflokknum.
Með hverjum deginum sem líður skýrist hvernig forystu á listum verður háttað í Reykjavík í kosningunum 16. maí nk. Á að minnsta kosti fjórum listum eru oddvitarnir einstaklingar sem eiga pólitíska sögu í Sjálfstæðisflokknum.
Þar ber auðvitað fyrst að nefna leiðtogann á lista Sjálfstæðisflokksins sjálfs, D-listans, Hildi Björnsdóttur sem hefur sýnt að hún hefur alla burði til að leiða stjórnkerfi borgarinnar út úr fjötrum Samfylkingarinnar. Fer hún nú fyrir þeim flokki í borginni sem mælist með mestu fylgi.
Lista Framsóknarflokksins leiðir Einar Þorsteinsson, spútnikinn í kosningunum fyrir fjórum árum. Nú er spurt hvort Framsóknarflokkurinn fái yfirleitt mann kjörinn borgarstjórn. Það fjaraði duglega undan flokknum þegar Einar stofnaði til samstarfs við Dag B. Eggertsson, þáv. borgarstjóra Samfylkingarinnar. Einar vildi verða borgarstjóri um mitt kjörtímabilið í vonlausum vinstri meirihluta.
Heiða Björg Hilmisdóttir varð borgarstjóri á eftir Einari. Fórst henni forystan svo illa úr hendi að hún gjörtapaði fyrir nýliðanum Pétri Marteinssyni í prófkjöri Samfylkingarinnar en ákvað hins vegar að sitja í öðru sæti listans sem kann ekki góðri lukku að stýra. Gengur flokkurinn klofinn til kosninganna.
Í dag, 9. febrúar, tilkynnti Ari Edwald lögmaður að hann hefði tekið boði Miðflokksins um að leiða lista flokksins í Reykjavík. Hann var um árabil aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar þegar hann var ráðherra Sjálfstæðisflokksins á tíunda áratugnum. Síðan hefur hann komið víða við sögu við rekstur fyrirtækja.
Fyrir utan oddvita D-listans hafa oddvitar B-lista, S-lista og M-lista allir verið virkir í starfi í Sjálfstæðisflokknum. Þeir hafa ekki, svo vitað sé, haft nein áform á þeim vettvangi um að komast í oddvitasæti í borgarstjórn. Um þá verður ekki sagt að þeir hafi leitað á ný pólitísk mið vegna þess að þeim hafi verið hafnað í gamla flokknum sínum. Þeir hafa hins vegar allir látið slag standa í pólitíkinni vegna tilboða sem eru álitleg að þeirra mati. Hentistefna heitir það.
Björg Magnúsdóttir verður oddviti Viðreisnar, C-listans. Hér skal ekkert fullyrt um pólitískar skoðanir hennar til þessa. Hún er hins vegar þekkt vegna starfa hennar á ríkisútvarpinu og að því leyti á hún svipaða leið í oddvitasætið og Einar Þorsteinsson árið 2022. Pétur Marteinsson naut greinilega velvildar frá ríkisútvarpinu þegar hann sigldi allt í einu inn á stjórnmálavettvanginn.

Ópólitíski flokkurinn í Efstaleiti á sína fulltrúa meðal oddvitanna. Nú hallast frambjóðendur hans til vinstri eins og þau Björg og Pétur. Ólíklegt er að ríkisútvarpið sýni Ara velvild enda var hann á sínum tíma yfirstjórnandi miðla Baugmsmanna. Sjálfstæðisflokkinn vilja margir Efstaleitismenn beinlínis afskrifa. Afstaða Efstaleitisflokksins mun skýrast stig af stigi fram að kjördegi og er stjórnendum framboða nauðsynlegt að huga að honum sem aðila að kosningabaráttunni.
Til vinstri við Samfylkinguna og Viðreisn eru sósíalsitar, VG og Píratar. Flokkur fólksins er hálfgerður einstæðingur og spurning hver tekur hann að sér til að þjónusta Ingu Sæland á þann hátt sem Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gera í ríkisstjórninni.