5.7.2021 12:02

Nýjasta sviðsetning Gunnars Smára

Áður en Gunnar Smári stofnaði Sósíalistaflokkinn í kringum sig fyrir fjórum árum og eftir að hann kvaddi Fréttatímann vildi hann að Ísland yrði fylki í Noreg og kynnti Fylkisflokkinn til sögunnar.

Gunnari Smára Egilssyni tekst jafnan vel að sviðsetja það sem hann tekur sér fyrir hendur. Í þann mund sem blaðið Fréttatíminn fór á hausinn undir hans stjórn lét hann eins og fjöldatónleikar með þjóðkunnum flytjendum mundu bjarga blaðinu enda kæmu þeir fram í Háskólabíói. Allt fór þó á einn veg og það sem gerðist eftir gjaldþrotið má ekki ræða frekar en viðskilnað hans og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í hruninu.

957030Nú um helgina var svokallað sósíalistaþing haldið en þingið er sagt æðsta stofnun Sósíalistaflokks Íslands, hugarfósturs Gunnars Smára.

Þingið fer með æðsta vald í flokknum en milli þinga starfa þar málefnahópar, siðferðisnefndin samviska og kjörnefnd fyrir utan fimm stjórnir flokksins „sem hver um sig sinnir sínum verkefnum og sækja allar sjálfstætt umboð til grasrótarinnar á Sósíalistaþingi“ eins og segir í flokksskipulaginu og einnig: „Sósíalistaflokkurinn er þannig fjölkjarna grasrótarhreyfing sem fámenn forystusveit getur ekki beygt undir sig.“ Þýðir þetta orðalag að fámenna forystusveitin geti hafið sig yfir grasrótina? Að fordæmi Leníns?

Á þinginu sunnudaginn 4. júlí 2021 var ákveðið að til starfa tæki kjörnefnd „skipuð slembivöldum félagsmönnum sem annast skipun framboðslista og í kjölfarið samskipti flokksins við kjörna fulltrúa“. Alls skal skipa 30 manns í kjörnefnd en fundir hennar eru löglegir taki 10 nefndarmenn þátt í þeim.

Sama dag og þetta skipulag á flokki sósíalista var kynnt birtist frétt í ríkisútvarpinu um að Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, ætlaði að gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Rætt var við Gunnar Smára sem sagði:

„Það hefur verið skorað á mig og kjörnefndin var að tala við mig og ég lofaði þeim að svara núna um helgina. Ef að þau geta notað mig þá er ég til.“

Af þessum orðum má sjá að hratt og markvisst er gengið til verka, jafnvel áður en 30 manna kjörnefnd er fullskipuð eða 10 úr hópi hennar hafa fundið tíma til að hittast, fær Gunnar Smári áskorun og við hann er rætt af kjörnefndinni um framboð hans í kosningunum 25. september 2021.

Áður en Gunnar Smári stofnaði Sósíalistaflokkinn í kringum sig fyrir fjórum árum og eftir að hann kvaddi Fréttatímann vildi hann að Ísland yrði fylki í Noregi og var kallaður til viðtala í fjölmiðlum um þá hugmynd. Þar á meðal í ríkisútvarpinu en á ruv.is sagði 11. ágúst 2014:

„Hugmyndir Gunnars Smára Egilssonar um að Ísland verði fylki í Noregi hafa vakið gríðarlega athygli og nú stendur til að stofna stjórnmálaafl um málið. Fylkisflokkurinn verður stofnaður formlega í haust og fólki er nú boðið að skrá sig sem stofnendur.“

Orðalag þessarar tilvitnunar sýnir hvernig fjölmiðlamenn kokgleypa það sem frá Gunnari Smára kemur. Nú segir á ruv.is að Gunnar Smári segir Sósíalistaflokkinn tilbúinn að mynda nýja ríkisstjórn eftir næstu kosningar bjóðist tækifæri til þess.