20.10.2026 10:57

Norræn sáttamiðlun fyrir Zelenskíj

Þetta er athyglisvert dæmi um hve mikið gildi það hefur fyrir smáríki að halda þannig á málum að utanríkisþjónusta þeirra njóti trausts og virðingar.

Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs og Alexander Stubb forseti Finnlands hitta Volodymyr Zelenskíj Úkraínuforseta í Osló í dag, 20. október, og þá verður einnig fundað með sérlegum erindreka Donalds Trump Bandaríkjaforseta, Steve Witkoff, sem kemur til Oslóar en samstarfsmaður hans við friðarumleitanir, Jared Kushner, tengdasonur Trumps, tekur þátt í fundinum með fjarbúnaði þar sem hann á ekki heimangengt vegna veikinda.

Í fréttum segir að norrænu leiðtogarnir tveir hafi tekið að sér að skipuleggja þennan fund að ósk Zelenskíjs í von um að samtölin bæti andrúmsloftið í samskiptum Trumps og Zelenskíjs. Í því efni fór allt á versta veg þegar Trump ákvað að kaupa dísilolíu af Rússum og fjármagna þannig stríðsrekstur þeirra.

Screenshot-2026-10-20-at-10.55.27Volodymyr Zelenskíj og Jonas Gahr Støre.

Í aðdraganda þessara viðræðna milli Úkraínu og Bandaríkjanna þótti mörgum nóg um þegar birt var myndskeið þar sem Trump segir: „Rússland hefur hagað sér vel gagnvart Úkraínu.“ Á samfélagsmiðlum var deilt mynd af eins árs gömlu barni sem dó í barnavagni sínum í rússneskri árás mánudaginn 19. október þegar sex óbreyttir borgarar létu lífið í Kharkiv.

Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í tilefni þessara orða Trumps: „Á lista minnisstæðra ummæla Trumps skora þessi mjög hátt. Hann hefur kolfallið fyrir Pútin.“

Zelenskíj kemst ekki hjá því að halda sambandi við Bandaríkjastjórn og leggja rækt við hana. Þráður hans við Marco Rubio utanríkisráðherra hefur ekki slitnað þrátt fyrir ágreininginn við Trump. Hann hefur þakkað Rubio fyrir gagnleg og góð samtöl. Þau eru um það sem mestu skiptir fyrir öryggi Úkraínu, afhendingu bandarískra loftvarnarflauga, aðgang að leynilegum upplýsingum um yfirvofandi árásir og örugg fjarskipti Úkraínuhers.

Valið á Osló sem fundarstað er engin tilviljun að mati Isabel Bramsen sem stundar friðarrannsóknir við háskólann í Lundi. Hún minnir á að rúmlega tuttugu starfsmenn norska utanríkisráðuneytisins sinni friðarumleitunum. Þar hafi mótast og þróast þekking og hæfni sem norsk stjórnvöld geta nýtt sé þess talin þörf. Það sé auk þess Úkraínumönnum að skapi að viðræðurnar fari fram í landi sem styður þá.

Þetta er athyglisvert dæmi um hve mikið gildi það hefur fyrir smáríki að halda þannig á málum að utanríkisþjónusta þeirra njóti trausts og virðingar. Áhrif ráðast ekki aðeins af stærð ríkja heldur einnig af málflutningi, þekkingu, reynslu, trúverðugleika og tengslum. Norðmenn og Finnar beita sér til að halda Bandaríkjunum að borðinu og styrkja stöðu Úkraínu þar. Þeir vita að stuðningur Evrópuríkja og tengslin við Bandaríkin mega ekki rofna.

Fyrir okkur Íslendinga er ástæða til að fylgjast með þessu framtaki nágranna okkar. Árangur fundarins verður metinn af því hvort hann styrkir varnir Úkraínu og færir landið nær friði sem heldur.

Í þessu sambandi er einnig vert að minnast þess hve ólíkum tökum stjórnvöld í Noregi og hér á landi hafa haldið á samskiptum sínum við önnur ríki og sérstaklega Evrópusambandið á umbrotatímum sem snert hafa norðurslóðir, ekki síst vegna afstöðu Trumps til Grænlands.

Hér rauk utanríkisráðherrann upp til handa og fóta í janúar 2026 og boðaði allt í einu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í ár vegna óvarlegra ummæla Trumps um Grænland. Norska ríkisstjórnin og stórþingið létu hvorki óðagot Trumps né ríkisstjórnar Íslands hagga sér. Fylgt var þeirri stefnu að huga ekki að aðild Noregs að ESB fyrr en eftir 2029, það er á næsta kjörtímabili. Ekki ætti að stofna til klofnings norsku þjóðarinnar.

Utanríkisstefna Noregs nýtur trausts vegna öryggis við framkvæmd hennar. Hér er allt í uppnámi vegna skorts á stefnufestu og raunhæfum ígrunduðum markmiðum.