Minkarækt er aflögð
Rík ástæða er til að taka undir með Óttari Guðmundssyni um það hvernig minkurinn spillir lífríkinu. Hann er ótrúlegur bölvaldur.
Óttar Guðmundsson segir í pistli á Eyjunni í dag (21. mars) að mestu hryðjuverk sem hafi verið unnin á íslenskri náttúru tengist innflutningi á minkum frá Noregi upp úr 1930. Minkurinn slapp af búunum og æ síðan hafi landsmenn barist við minkinn með öllum tiltækum ráðum.
„Hann fjölgaði sér hratt og lagði sífellt undir sig ný lönd. Allt dýralíf í landinu gjörbreyttist. Æðarvarp lagðist víða af og fiskveiði minnkaði,“ segir Óttar.
Þá bendir hann á að nú sýni ríkisútvarpið „helvítis minkinn sem þolanda eða fórnarlamb í íslensku samfélagi“ af því að hann sé hafður í búrum. Birt sé samtal við dýrasálfræðing sem segir minkana „taugaveiklaða og þunglynda og þess vegna stunduðu þeir sjálfsskaða“.
Óttar segir ríkisútvarpið ekki hafa minnst á „skelfinguna í varplöndum landsmanna þegar minknum var sleppt lausum“. Lokað hafi verið augunum fyrir miklu þjóðhagslegu tjóni af völdum minksins. Koma verði „til móts við réttmætar kröfur minkanna um frjálst og skemmtilegt líf og íslenskan ríkisborgararétt“. Í þessu máli eins og öðrum verði „þjóðarhagsmunir að víkja fyrir sálarheill dýra“.
Eftir að rannsóknarblaðamenn ríkisútvarpsins birtu þátt sinn til varnar minknum var að hætti fréttastofunnar leitast við að viðhalda hneyksluninni sem þættinum var ætlað að valda með því að hafa uppi á álitsgjöfum sem tækju undir boðskap sjónvarpsþáttarins Kveiks.
Í honum voru sýnd myndbönd sem finnskir dýraverndarsinnar tóku í óleyfi og sýndu minka í sláandi ásigkomulagi, veika, slasaða og dauða.
Myndin er fengin af vefðsíðu þar sem Seltjarnarnesbær hvetur til varna gegn minknum.
Eftir sýningu þáttarins sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra við ríkisútvarpið að tryggja yrði velferð dýra betur en gert væri í lögum frá 2013. Ráðuneyti hennar væri „að leggjast í endurskoðun á þeim og vonast hún til að leggja fram frumvarp á næsta þingvetri,“ eins og sagði á ruv.is 18. mars. Það liði of langur tími frá því að einhver verði uppvís að því að brjóta þar til að úrbætur séu gerðar úr því ætlaði hún að bæta.
Rík ástæða er til að taka undir með Óttari Guðmundssyni um það hvernig minkurinn spillir lífríkinu. Hann er ótrúlegur bölvaldur.
Sumarið 2022 birtist frétt í Morgunblaðinu um að minkur hefði rústað kríuvarpinu á Seltjarnarnesi. Það hafi horfið nánast eins og dögg fyrir sólu. Umhverfis- og dýraverndunarsinnar líta á minkinn sem hluta af umhverfinu. Við friðlýsingu landsvæðis hljóti minkurinn friðhelgi. Á sínum tíma var tekin sérstök ákvörðun um að drepa mætti mink í þjóðgarðinum á Þingvöllum þegar hann var að ganga að fuglalífi við vatnið dauðu.
Vonandi tekst að drepa sem mest af minki í íslenskri náttúru. Í raun er skrýtið að finnsk myndbönd tekin af minkum til að ofbjóða fólki skuli verða viðfangsefni rannsóknarblaðamanna í þætti sem sýndur er hér 17. mars 2026.
Bændablaðið birti 4. desember 2025 forsíðufrétt um að allir loðdýrabændur á Suðurlandi, fimm að tölu, væru að hætta minkarækt þar sem fjárhagslegur grundvöllur væri brostinn. Verið væri að slátra um 30.000 dýrum. Eitt lítið bú yrði eftir í landinu, hjá eldri bónda í Mosfellssveit.