10.8.2024 10:46

Matsferlill með gervigreind?

Hugsanlega er um að ræða kerfi sem hannað er í ljósi umræðna um hlutverk gervigreindar og með því að mata hana á miklu magni upplýsinga megi fá þá hlutlægu mynd sem felst í matsferlinum.

Vegna breytinga mennta- og barnamálaráðherra á ákvæðum grunnskólalaga um samræmd próf eða námsmat sem kynntar voru á samráðsgátt stjórnvalda í júlí og Morgunblaðið gerði að umræðuefni hafa orðið miklar umræður um innra starf, námsárangur og stöðu grunnskólans almennt.

Að því er varðar núverandi stöðu grunnskólans er stjórnsýslan mjög gagnrýnisverð og um það hvernig á að haga námsmati eftir að núverandi kerfi er afnumið ríkir algjör óvissa.

Föstudaginn 9. ágúst birtu blaðamenn Morgunblaðsins, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Skúli Halldórsson, úttekt á fréttum undanfarinna vikna um þetta mál á mbl.is.

Screenshot-2024-08-10-at-10.45.24Mbl.is 9. ágúst 2924.,

Unnið er að smíði nýs námsmatskerfis í stofnuninni Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS). Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs hjá stofnuninni, birti grein í Morgunblaðinu fimmtudaginn 7. ágúst í því skyni að skýra fyrir lesendum hvað býr að baki matsferlinum sem á að innleiða einhvern tíma á næstu árum en vinna við smíði þessa nýja kerfis hófst árið 2020. Hún segir:

„Matsferill er safn matstækja sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda jafnt og þétt yfir skólagönguna og kemur auga á þau börn sem telja má í áhættu vegna framvindu í námi og þroska.“

Hún talar um matsferilinn eins og eitthvert sjálfstætt fyrirbæri og segir „hlutverk hans“ (1) að fylgjast með hverju barni og tryggja að það fái viðeigandi kennslu og stuðning; (2 ) að afla upplýsinga um stöðu skólakerfisins í heild þannig að stefnumótandi aðilar geti fylgst með þróun námsárangurs yfir tíma og greint styrkleika og mögulegar áskoranir.

Hvort lesendur séu nokkru nær um hvað hér er á ferðinni ræðst af lesskilningi hvers og eins. Í mínum huga er alls ekki ljóst hvernig unnt er að þróa slíkt kerfi sem virðist eiga að lifa sjálfstæðu lífi og skila hlutlægu mati á árangri barns, kennara og skólakerfisins í heild.

Hugsanlega er um að ræða kerfi sem hannað er í ljósi umræðna um hlutverk gervigreindar og með því að mata hana á miklu magni upplýsinga megi fá þá hlutlægu mynd sem felst í matsferlinum.

Í fyrrnefndri grein blaðamannanna á mbl.is er vitnað í Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, forstjóra MMS, sem segist á Facebook hafa fundið fyrir átökum um skólakerfið vegna breytinganna sem nú séu í farvatninu. Forstjórinn segir einnig: „Ótti eru eðlileg viðbrögð og sérstaklega þegar fólk áttar sig ekki nógu vel á hvað breytingarnar fela í sér.“ Hafi fyrrnefnd grein Freyju Birgisdóttur verið skrifuð í því skyni að minnka ótta með ótvíræðum upplýsingum má draga í efa að það hafi tekist.

Fyrir 19. ágúst á ráðuneytið að svara umboðsmanni barna sem hefur lagt fyrir það skýrar spurningar sem snúa að stjórnsýslu þess vegna grunnskólans. Undan þeirri kröfu fær ráðuneytið ekki vikist.

Spurning er hvort ráðuneytið telji sér fært að segja skoðun sína á matsferlinum og inntaki hans. Þegar það var spurt um gagnrýni Arnórs Guðmundssonar, fyrrv. forstjóra Menntamálastofnunar, forvera MMS, sagði það ekki tjá sig um skoðanir einstakra starfsmanna.

Uppfært: Jón Ísak Ragnarsson blaðamaður á Vísi vakti athygli mína á þessu: 

https://www.visir.is/g/20242605715d/umfangsmiklar-breytingar-i-menntakerfinu-framundan