Mannkostir í lífsháska
Frásagnirnar sýna hve mikils virði það er fyrir samfélag okkar að eiga fólk sem bregst við lífsháska á þann veg sem samtölin sýna. Fólk sem býr yfir þekkingu og þjálfun en ekki síður þeim mannkostum sem birtast í framgöngu þess gagnvart öðrum.
„Ég er ekki að fara að deyja hérna, ég er ekkert að fara hér,“ sagði Ásgeir Elí Gerðarson, átján ára háseti á Jökli ÞH, við sjálfan sig áður en skipið sökk miðvikudaginn 25. nóvember. Í viðtölum á ruv.is og visi.is föstudaginn 27. nóvember lýsir hann á þann veg lífsreynslu sinni að aðdáun vekur á hugrekki hans, sálarstyrk og fórnfýsi.
Þegar Ásgeir áttaði sig á því að skipið var að sökkva fór hann að rétta félögum sínum flotgalla úr skáp. Þegar skápurinn var tómur voru þrír menn enn án galla, þar á meðal hann sjálfur. Þeir fundu þrjá æfingagalla í brúnni.
Í tæpar fimm klukkustundir í köldum sjónum beindi Ásgeir athygli sinni að líðan félaga sinna fremur en sjálfs sín. Hann stappaði í þá stálinu og reyndi að halda lífi í þeim sem mest voru þrekaðir. Þegar sigmaður úr TF-GRO kom til þeirra benti Ásgeir honum á aðra sem taka ætti á undan sér. Hann var síðastur þeirra sem lifðu úr sínum hópi til að vera hífður um borð í þyrluna.
Ásgeir telur að með því að einbeita sér að því að hjálpa öðrum hafi hann einnig hjálpað sjálfum sér.
Ásgeir Elí Gerðarson háseti (skjámynd).
Í Morgunblaðinu laugardaginn 28. nóvember birtist viðtal við pólska skipverjann Pawel Samilo. Hann segist aldrei hafa óttast að hann myndi deyja, sinn tími væri ekki kominn. Hann þakkar góðri samvinnu skipverjanna og réttum viðbrögðum Kristins Hrannars Hjaltasonar skipstjóra að svo margir skyldu komast lífs af. Um mennina þrjá sem fórust segir hann að þeir hafi ekki aðeins verið vinir sínir heldur hafi þeir verið sér sem fjölskylda.
Bæði Ásgeir Elí og Pawel eru staðráðnir í að sækja sjóinn áfram.
Merkilegt er að bera frásagnir skipverjanna saman við það sem fram kemur í viðtölum Morgunblaðsins við starfsmenn landhelgisgæslunnar.
Viggó M. Sigurðsson aðgerðastjóri segir að á starfsferli sínum hafi hann aldrei kynnst öðru eins og því að geta átt tal við skipbrotsmenn í sjónum. Litla handtalstöðin sem skipstjórinn tók með sér úr skipinu gerði gæslumönnum kleift að miðla von og trú til mannanna. Viggó segist hafa heyrt hvernig andlegur styrkur þeirra jókst. Ásgeir Elí lýsir þessu frá sínum sjónarhóli með eftirminnilegum orðum: „Þessi talstöð hélt einhverjum eldi gangandi í hausnum á okkur öllum.“
Brynhildur Ásta Bjartmarz þyrluflugmaður leitaði eftir því við hvern og einn í áhöfn þyrlunnar hvort hann væri tilbúinn til fararinnar þótt farið yrði út fyrir öryggismörk. Enginn var í vafa.
„Einhverra hluta vegna fann ég ekki fyrir hræðslu þetta kvöld, gagnvart mér eða minni áhöfn. Ég var hins vegar með hnút í maganum og afskaplega hrædd um fólkið sem ég vissi að væri í sjónum,“ segir Brynhildur.
Hún treysti samstarfsfólki sínu, þjálfun þess og þyrlunni. Henni finnst óþægilegt að vera kölluð hetja en lítur á samstarfsfólk sitt sem hetjur og nefnir sérstaklega fólkið í stjórnstöðinni og áhöfn flugvélarinnar TF-SIF.
Jens Þór Sigurðsson flugstjóri þyrlunnar lýsir mörgum erfiðum ákvörðunum sem taka varð við björgunina. Að baki voru tveir áratugir í starfi hjá landhelgisgæslunni en aldrei áður hafði reynt með þessum hætti á getu hans, áhafnarinnar og þyrlunnar.
Í frásögnum þeirra Jens og Brynhildar kemur fram hve miklu það skipti þau að skilja engan eftir, lífs eða liðinn. „Það var gott að koma með alla heim,“ segir Jens.
Frásagnirnar sýna hve mikils virði það er fyrir samfélag okkar að eiga fólk sem bregst við lífsháska á þann veg sem samtölin sýna. Fólk sem býr yfir þekkingu og þjálfun en ekki síður þeim mannkostum sem birtast í framgöngu þess gagnvart öðrum.
Enginn viðmælendanna miklast af eigin afrekum. Allir beina athyglinni að framlagi annarra. Í gleði sinni yfir björgun fjórtán mannslífa gleyma þeir aldrei sorg þeirra sem misstu ástvini sína.
Í orðum og framgöngu átján ára hásetans, Ásgeirs Elí, birtast sömu mannkostir og hjá þeim sem varið hafa áratugum ævi sinnar til björgunar mannslífum. Það er dýrmætt fyrir okkur öll að eiga slíkt fólk og fá að kynnast viðhorfum þess.