6.5.2026 9:30

Leynimakk Þorgerðar Katrínar

Leynimakkið snerist greinilega um að leggja þær línur. Utanríkisráðherra og ráðuneyti hennar hafa síðan farið eftir þeirri línu og talið víst að orða mætti spurninguna í þjóðaratkvæðagreiðslunni í þeim anda.

Utanríkisráðuneytið birti 15. janúar 2025 eftirfarandi fréttatilkynningu um fyrstu Brusselför Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem utanríkisráðherra:

„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Maros Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, og Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.

Á fundunum lagði utanríkisráðherra áherslu á vilja ríkisstjórnarinnar til að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins enn frekar og að staðinn verði vörður um EES-samstarfið og það styrkt á víðsjárverðum tímum á alþjóðavettvangi. Þá kynnti ráðherra stefnu ríkisstjórnarinnar um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB eigi síðar en árið 2027.

„Ísland á þegar í nánu og víðtæku samstarfi við Evrópusambandið, þar sem EES-samningurinn er hornsteinn sem tryggt hefur aðgang okkar að innri markaðnum í yfir þrjátíu ár. Þetta samstarf mætti efla enn frekar, til dæmis á sviðum utanríkismála, heilbrigðismála og öryggis- og varnarmála. Við ræddum einnig þróun heimsmálanna, þar með talið málefni Úkraínu, Mið-Austurlanda og norðurslóða. Það mun án efa reyna á samtakamátt ríkja sem deila sameiginlegum gildum á komandi misserum og þar vill Ísland áfram vinna þétt með nágrannaríkjum okkar og Evrópusambandinu,“ segir Þorgerður Katrín.“

Nú hefur utanríkisráðuneytið sent utanríkismálanefnd alþingis samskiptayfirlit utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þar segir við dagsetninguna 15. janúar 2025:

„Marta Kos: Stefna um þjóðaratkvæðagreiðslu kynnt, sbr. stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar. Stækkunarstjórinn fór yfir stöðu stækkunarmála og áherslur framkvæmdastjórnarinnar.“

Hér á síðunni sagði 16. janúar 2025:

„Šefčovič fer ekki með stækkunarmál ESB, þau eru á könnu Mortu Kos, fulltrúa Slóveníu í framkvæmdastjórn ESB. Utanríkisráðherra Íslands hitti hana ekki í þessari för sinni til Brussel. Björn Malmquist, fréttaritari ríkisútvarpsins, ræddi hins vegar við Guillaume Mercier, talsmann stækkunarstjóra ESB.“

Í þessari færslu minni sést að ég lét blekkjast af fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins. Þar var vísvitandi gefin röng mynd af heimsókn utanríkisráðherra til Brussel og Mercier talsmaður Mörtu Kos stækkunarstjóra lét þess ógetið að hún hefði lagt á ráðin um aðild Íslands á fundi með ráðherranum.

Signal-2025-01-15-161803_002Utanríkisráðuneytið birti þessa mynd 15. janúar 2025 af Þorgerði Katrínu með Kaju Kallas en þagði algerlega um fund hennar með Mörtu Kos stækkunarstjóra ESB.

Það var einmitt eftir þennan fund sem stækkunardeild ESB tilkynnti óvænt að aðildarumsókn Íslands frá 2009 væri enn í gildi. Leynimakkið snerist greinilega um að leggja þær línur. Utanríkisráðherra og ráðuneyti hennar hafa síðan farið eftir þeirri línu og talið víst að orða mætti spurninguna í þjóðaratkvæðagreiðslunni í þeim anda.

Nú liggur fyrir að alþingi ætlar að fara út af línunni og breyta spurningunni. Það er auðvelt, hitt er erfiðara fyrir meirihluta þingmanna að láta eins og sjálfsagt sé og eðlilegt að frá fyrsta fundardegi sínum í Brussel 15. janúar 2025 hafi utanríkisráðherra stundað leynimakk í Brussel og fengið fyrirmæli þaðan.