Leyndarhyggja í fjárlögum
Gagnrýni Vörðu snýst um að sundurliðun og forsendur, meðal annars á þessum lið, séu ófullnægjandi. Hugveitan biður um árlegt yfirlit þvert á málefnasvið og stjórnsýslustig,
Það er nýmæli í umræðum um fjárlög íslenska ríkisins að litið sé gagnrýnum augum á útgjaldaþætti þeirra til öryggis- og varnarmála. Hugveitan Varða, sem leggur mat á þróun þjóðaröryggismála og áfallaþol samfélagsins, gerir þetta hins vegar í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027.
Þar er því velt fyrir sér hvort fjárveitingar í frumvarpinu til öryggis- og varnarmála skili þjóðinni auknu öryggi. Raunar ætti þetta að vera sjálfsagður útgangspunktur fjárlagaumræðna. Samt hefur reynst erfitt að fá skýra mynd af því hvaða útgjöld teljast til málaflokksins.

Alþingi samþykkti þjóðaröryggisstefnu árið 2016. Þar var lagður grunnur að sameiginlegri sýn á öryggi lands og þjóðar, alþjóðlegt samstarf og innlendan viðbúnað. Til þess að stefnan verði virk þarf raunhæft ógnarmat, skýra ábyrgð, þjálfað starfsfólk og fjármagn. Án þessa verða allar yfirlýsingar lítils virði.
Varða kallar eftir sundurliðun fjárveitinga fyrir aðra umræðu fjárlaga, árlegu yfirliti yfir öryggis- og varnarútgjöld hins opinbera ásamt kostnaðarmetinni langtímaáætlun. Þetta eru eðlilegar kröfur. Þær samræmast jafnframt óskum bæði meiri hluta og minni hluta fjárlaganefndar um skýrari upplýsingar. Utanríkisráðuneytið og önnur ráðuneyti verða að svara þeim efnislega. Alþingi getur ekki sinnt fjárveitingarvaldi sínu af festu nema forsendurnar séu sýnilegar og unnt sé að meta árangurinn.
Sundurliðun er meira en bókhaldsatriði. Þótt fyrirliggjandi útgjöld séu flokkuð að nýju eykst viðbúnaður ekki sjálfkrafa. Skip fara ekki fleiri daga á sjó, lögreglumönnum fjölgar ekki og öryggisbirgðir verða ekki til við breytt heiti fjárlagaliða. Flokkun samkvæmt viðmiðum Atlantshafsbandalagsins getur verið réttmæt og nauðsynleg. Henni verður jafnframt að fylgja skýr greinargerð um það sem þegar er gert og hvað ætlunin er að gera.
Tillögur Vörðu ná líka til afmarkaðra verkefna. Hugveitan vill fjárveitingar til öryggisbirgða, með eldsneyti í forgangi, til undirbúnings samstarfs við Færeyjar um kaupskipaskrá, til fullmönnunar sérsveitar lögreglunnar og eflingar varna gegn drónum við mikilvæga innviði. Tillögurnar þarf að meta faglega og forgangsraða. Þær sýna jafnframt hvers vegna almenn loforð um hækkandi framlög duga skammt. Það verður að liggja fyrir hver framkvæmir hvað, hvenær og fyrir hvaða fé.
Með tilkomu Vörðu hefur bæst við vettvangur fyrir sjálfstæða greiningu og opinbera umræðu. Gildi slíkrar starfsemi felst í að prófa forsendur, benda á veikleika og leggja fram tillögur sem hægt er að ræða og kostnaðarmeta. Stjórnvöld ættu að sækjast eftir þessari aðstoð. Fagleg gagnrýni styrkir ákvarðanatöku og gerir almenningi kleift að fylgjast með því hvort yfirlýstum markmiðum sé náð.
Þessi greining á verkefnum og fjárþörf er augljós forsenda fyrir því að unnt sé að mæla ávinning af fjárveitingum. Ekkert slíkt setur svip sinn á þær tillögur sem gerðar eru af utanríkisráðuneytinu um ráðstöfun fjármuna á svonefndum safnlið sem ber fjárlagaheitið: „04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál“. Hann fellur undir utanríkismál og er ekki nýr; hann kemur meðal annars fyrir í fjárlagagögnum frá 2022. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 eru áætlaðir um 13,3 milljarðar króna í þennan málaflokk.
Gagnrýni Vörðu snýst um að sundurliðun og forsendur, meðal annars á þessum lið, séu ófullnægjandi. Hugveitan biður um árlegt yfirlit þvert á málefnasvið og stjórnsýslustig, svo alþingi geti séð hvaða útgjöld teljast með og metið hvort aukin framlög skili því sem að er stefnt.
Af fréttum má ráða að ekki einu sinni fjármálaráðuneytið viti hvað stendur að baki þessari tölu og því síður fjárlaganefnd þingsins. Hvers vegna láta þingmenn bjóða sér þessa leyndarhyggju?