2.9.2026 13:19

Leiðsögn um vaxandi spennu

Í sviðsmyndabókunum reynir mikið á viðnámsþrótt gegn hvers kyns áreiti af hálfu einræðisherra, hvort sem er í Rússlandi eða Kína. Þar er haldið þannig á málum af hálfu ofbeldis- og einræðisaflanna að lítil þúfa er notuð til að velta þungu hlassi.

Screenshot-2026-09-02-at-13.16.08

Fyrr á þessu ári lauk ég þýðingum á tveimur bókum sem Ugla bókaútgáfa hefur nú sett á markað. Þær eru Einræði hf. eftir verðlaunablaðakonuna og sagnfræðinginn Anne Applebaum og Ef Rússar sigrasviðsmynd eftir Carlo Masala, prófessor við háskóla þýska hersins og sérfræðing í málefnum NATO.

Bók Applebaum, 238 bls., kom upphaflega út 2024 en eftir að Donald Trump tók við forsetaembætti 2025 ritaði hún nýjan formála. Bók Masala, 135 bls., kom út í Þýskalandi síðsumars 2025. Báðar hafa þær verið gefnar út á fjölmörgum tungumálum og vakið áhuga og athygli þeirra sem fylgjast með gangi heimsmála og þeirri miklu gerjun sem þar er.

Með því að stofna til samstarfs við Jakob F. Ásgeirsson eiganda Uglu um útgáfu bókanna sá ég tækifæri til að kynna fyrir íslenskum lesendum sýn greinenda og fræðimanna á hvert kann að stefna að óbreyttu í heiminum. Raunar er þriðja bókin væntanleg nú í október, Þegar Kína gerir árás – sviðsmynd, eftir þýska Kínafræðinginn Andreas Fulda. Þar er því lýst þegar kínverskir kommúnistar ráðast á Taívan.

Þetta er ógnvekjandi ástand og við það bætist síðan að einræðisherrarnir halda eigin þjóðum í algjörri villu um gang mála og mata þegna sína á lygi og óþverra um okkur í vestrinu á sama tíma og þeir leggja til atlögu við okkur á laun á samfélagsmiðlum og á öðrum vettvangi þar sem ósýnilegt fjölþátta stríð er háð. Markmið þess hernaðar er að rugla myndina af því sem raunverulega gerist og slæva vilja okkar til nauðsynlegra gagnaðgerða.

Fjölþátta hernaðurinn sem stundaður er dag og nótt um heim allan einkennist meðal annars af því hve erfitt er að rekja slóð árásaraðilans. Ríki sakar ekki annað ríki um óvinveitta aðgerð gegn sér nema að vel ígrunduðu og rannsökuðu máli. Ásökunin um árás eða óvinabragð hefur ekkert gildi nema hún sé gerð á opinberum vettvangi sem er í sjálfu sér stigmögnun. Nú hefur Vladimír Pútin sakað þýsk stjórnvöld um að hafa beitt svikum við rannsóknina og segist saklaus.

Í sviðsmyndabókunum reynir mikið á viðnámsþrótt gegn hvers kyns áreiti af hálfu einræðisherra, hvort sem er í Rússlandi eða Kína. Þar er haldið þannig á málum af hálfu ofbeldis- og einræðisaflanna að lítil þúfa er notuð til að velta þungu hlassi.

Það fer ekki á milli mála að það urðu ákveðin þáttaskil í þróun öryggismála í Evrópu í gær, 1. september, þegar ráðherrar utanríkis- og innanríkismála í Þýskalandi efndu til blaðamannafundar í Berlín og sökuðu Rússa um misheppnaða drónaárás á alþjóðaflugvöllinn við borgina Leipzig í Austur-Þýskalandi. Rússar hafna að sjálfsögðu þessum ásökunum en orð þeirra falla dauð hjá öllum sem til þekkja.

Ríkin sem Anne Applebaum skrifar um eru auk Rússlands og Kína: Norður-Kórea, Íran og Venesúela. Þá lýsir hún einnig stjórnarháttum í Afríkuríkinu Simbabwe þar sem Kínverjar hafa búið um sig.

Trump á nú í útistöðum við tvö þessara ríkja. Hann lét handtaka Maduro, forseta Venesúela, og hefur nú sölsað hluta olíulinda landsins undir Bandaríkin. Hann hóf stríð við Íran sem hann getur ekki lokið.

Lesið bækurnar og notið þær sem mælistiku á stöðu heimsmála!