22.4.2026 12:13

Laugardalslaug í vanda

Það sannaði aðeins að þeir meta stöðuna rétt sem segja að starfsemi Laugardalslaugarinnar hangi á bláþræði.

 Í þann mund sem opna átti Laugardalslaugina á auglýstum tíma, klukkan 06.30 að morgni miðvikudagsins 22. apríl, gekk ung stúlka að dyrunum þar sem allstór hópur fólks stóð að venju og beið inngöngu. Stúlkan var með blað í höndunum og límdi það á glerhurðina fyrir framan hópinn sem beið óþreyjufullur eftir að komast í heilsulindina. Á blaðið hafði þessi orðsending verið rituð:

„Því miður þá getum við ekki opnað laugina strax vegna tæknibilunar og manneklu. – Afsakið þetta!“ Sjá mynd.

Screenshot-2026-04-22-at-11.08.18

Þeir sem biðu, sumir höfðu komið um 06.15, urðu undrandi en héldu allir ró sinni enda hefði ekki breytt neinu að andmæla því sem á blaðinu stóð. Það sannaði aðeins að þeir meta stöðuna rétt sem segja að starfsemi Laugardalslaugarinnar hangi á bláþræði.

„Það hlaut að koma að þessu,“ sagði einhver um leið og hópurinn dreifðist. Sumir ætluðu að kanna aðra sundstaði en aðrir sneru einfaldlega heim aftur. Einn sem beið áfram benti þó á orðið „strax“ og virtist ætla að „gefa því sjens“ að einhver mannskapur kæmi fljótt á vettvang og ekki yrði tímafrekt að gera við tæknibilunina.

Sá fastagestur sem þetta skrifar hvarf af vettvangi og er ekki til frásagnar um framvindu þessa máls eða hvenær laugin var opnuð. Hann veit hins vegar að margt hefur farið til verri vegar í starfsemi laugarinnar undanfarið.

Þjónustan við gesti hennar hefur verið skert meðal annars með lokun rýma fyrir loftböð karla og kvenna auk þess sem heitasti potturinn hefur verið tómur mánuðum saman vegna bilunar í vatnskerfi. Þá gerist það æ oftar að kerfi sem dælir sápu að karlasturtum virkar ekki auk þess sem hitastilling á vatni í sturturnar er til vandræða.

Í augum ókunnugra eru þetta örugglega allt smáatriði en hér eins og annars staðar á það við að safnast þegar saman kemur og niðurstaðan birtist að lokum á blaði eins og límt var fyrir framan andlitin á vonsviknum fastagestunum í morgun.

Hér skal ekki lagt neitt mat á meðalaldur þeirra sem urðu að hverfa frá Laugardalslauginni að þessu sinni. Hitt skal hins vegar fullyrt að hann sýnir hve mikil heilsubót og styrkur það er að halda úti starfsemi laugarinnar og dregur bæði úr vanda vegna innflæðis og fráflæðis eldri borgara í heilbrigðiskerfinu og minnkar vandann vegna skorts á hjúkrunarheimilum.

Ef Reykjavíkurborg er um megn að halda Laugardalslauginni opinni og í viðunandi tæknilegu horfi ætti hún að semja við þá sem reka World Class samtengda lauginni um að taka reksturinn að sér. Umsvifin og umferðin þar og þjónustustigið er eins og ætti að vera í lauginni sem margir telja flaggskip sundlaugamenningar borgarinnar.

Þess verður ekki vart að umræður séu um metnaðarfullan rekstur sundstaða í Reykjavík fyrir kosningarnar 16. maí og kannski er ástandið í Laugardalslauginni einsdæmi.

Þó væri æskilegt að einhver listi boðaði að hann myndi endurskoða afgreiðslutíma lauganna og að þær yrðu opnaðar kl. 08.00 á sumardaginn fyrsta og lögskipaða frídaga eins og áður var.