Kristrún og útlendingaumræðan
Ólíklegt er að Kristrúnu hafi tekist að sópa þessu máli undir teppið með ummælum sínum í Kastljósinu. Nú er þess beðið hvort einhver annar í þingflokknum en hún láti í sér heyra.
Í hlaðvarpsþættinum Ein pæling sem Þórarinn Hjartarson stýrir og settur var í loftið 10. febrúar 2024 og vefsíðan Viljinn vakti athygli á 13. febrúar 2024 boðaði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, stefnubreytingu hjá flokknum í útlendingamálum. Í nafni raunsæis og skynsemi hafnaði hún einhliða gildandi útlendingastefnu flokksins.
Eftir að stefnubreyting formannsins komst í hámæli gekk maður undir manns hönd við að „jarðtengja“ orð hennar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, sagði 17. . febrúar 2024 Facebook að flokksformaðurinn hefði ekki gert annað en að setja bara fram „almennar vangaveltur um ýmsar hliðar þessara mála“.
Í kvöldfréttum sjónvarps ríkisins 18. febrúar 2024 var Ólafur Þ. Harðarson, fyrrv. prófessor í stjórnmálafræði, kallaður á vettvang. Hann sagði: „Vitlegast að hinkra aðeins og sjá hvaða stefna kemur úr þessu.“ Kristrún hefði enn ekki lagt fram neinar tillögur um breytingar.
Samfylkingarfólki var sem sagt skipað að bíða, stefnan myndi skýrast.
Þessi goðumlíka mynd af Kristrúnu birtist á vefsíðu Samfylkingarinnar eftir flokksstjórnarfundinn í april 2024.,
Laugardaginn 20. apríl 2024 var flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar haldinn á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra. Kristrún formaður setti fundinn með langri ræðu án þess að minnast einu orði á útlendingamálin.
Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, lýsti sorgmædd yfir því á Facebook sama dag og flokksstjórnarfundurinn var haldinn að tillaga hennar um „að endurskoðun á útlendingalöggjöfinni og móttökukerfi umsækjenda um alþjóðlega vernd verði aðeins gerð með mannúð að leiðarljósi“ hefði ekki verið borin undir atkvæði á fundinum heldur vísað til málefnanefndar. Kristrún vildi ekki ræða málið heldur hafa það í nefnd.
Hópur 55 félaga í Samfylkingunni og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælti brottvísunarstöð hælisleitenda í aðsendri grein á Vísi á dögunum og sagði ótækt að þingflokkur Samfylkingarinnar hefði samþykkt hana. Kröpp hægri beygja hefði verið tekin – án umræðu á vettvangi flokksins.
Kristrún sagði í Kastljósi 16. júní 2026 eðlilegt að skiptar skoðanir væru um útlendingamál innan flokks hennar. Líklega hefði enginn málaflokkur fengið jafn mikla umfjöllun á vettvangi flokksins og grasrótar hans undanfarin misseri og einmitt útlendingamál.
Stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann segir á ruv.is 14. júní að þessi stefnubreyting Samfylkingarinnar hafi að mörgu leyti farið fram án umræðu inni í flokknum, án ályktana eða breytinga sem færu í gegnum formlegan feril. Þetta sé „einfaldlega áherslubreyting forystunnar sjálfrar“. Það hafi „auðvitað“ kannski vakið „mesta gremju“. Þetta bendi til þess að óánægja sé með fleira en bara útlendingamál innan flokksins.
Ólíklegt er að Kristrúnu hafi tekist að sópa þessu máli undir teppið með ummælum sínum í Kastljósinu. Nú er þess beðið hvort einhver annar í þingflokknum en hún láti í sér heyra.