24.11.2026 9:51

Kristrún gegn Kristrúnu

Um hvað er Kristrún að tala? Um enn óbirtar tillögur sem leggja á fyrir fjárlaganefnd milli fyrstu og annarrar umræðu fjárlagafrumvarpsins. Í stjórnarandstöðu gagnrýndi Kristrún einmitt slík vinnubrögð. 

Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar 21. mars 2026 lýsti Kristrún Frostadóttir verkstjórn sinni á þennan veg:

„Við hreyfum okkur hratt. Hristum upp í kerfinu. Og þetta mun ekki breytast, því til þess vorum við kosin.“

Hún sagði að verkstjórn sem leiddi breytingar gæti ekki alltaf gert öllum til geðs. Hún lýsti árangri af tiltekt og hagræðingu í ríkisrekstrinum og sagði: „Já, við erum að laga ríkisfjármálin eftir óstjórn síðustu ára.“

Screenshot-2026-11-24-at-09.48.42Kristrún Frostadóttir á alþingi 23. nóvember 2026 (skjáskot).

Á alþingi mánudaginn 23. nóvember, átta mánuðum síðar, spurði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins forsætisráðherra hvers vegna beðið hefði verið í tæp tvö ár með að ráðast í þá hagræðingu sem nú væri boðuð. Kristrún svaraði:

„Það tekur tíma að átta sig á aðstæðum. Það tekur tíma að koma sér fyrir í ráðuneytum og það tekur tíma að átta sig á því hvaða vilyrði er búið að gefa [...].“

Hvernig samrýmist þetta lýsingunni á verkstjórninni í mars? Þá var hraði við ákvarðanatöku og framkvæmd þeirra talinn til helstu kosta ríkisstjórnarinnar. Nú er seinagangurinn skýrður með því hve langan tíma taki að átta sig á viðfangsefnunum.

Enn heldur Kristrún á lofti tölunni um 800 milljarða uppsafnaðan ríkissjóðshalla. Guðrún vék að þremur þáttum í því sambandi: yfir 300 milljarða beinum kostnaði vegna heimsfaraldursins, kostnaði vegna Reykjaneselda upp á annað hundrað milljarða og 140 milljarða útgjaldaauka sem núverandi ríkisstjórn ákvað um síðustu áramót.

Guðrún benti með öðrum orðum á að ríkisstjórn Kristrúnar hefði sjálf ákveðið útgjaldaauka sem næmi tæplega helmingi af beinum kostnaði ríkissjóðs vegna heimsfaraldursins.

Kristrún vísar nú til olíuverðshækkana vegna átaka í Mið-Austurlöndum og segir hátt í þriðjung verðbólgunnar stafa af utanaðkomandi aðstæðum sem ríkisstjórnin ráði ekki við. Þegar hún fjallar um afkomu ríkissjóðs í tíð fyrri ríkisstjórnar kennir hún hins vegar óstjórn um án þess að gera sambærilega grein fyrir áhrifum utanaðkomandi áfalla.

Kristrún sagði við Guðrúnu:

„Staðreyndin er sú að stjórnarandstaðan hefði aldrei getað gert það sem við erum að gera núna á næstu vikum.“

Um hvað er Kristrún að tala? Um enn óbirtar tillögur sem leggja á fyrir fjárlaganefnd milli fyrstu og annarrar umræðu fjárlagafrumvarpsins. Í stjórnarandstöðu gagnrýndi Kristrún einmitt slík vinnubrögð. Nú vísar hún til þeirra sem vitnisburðar um ágæti eigin verkstjórnar.

Guðrún spurði um árangur af efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Stýrivextir eru 8% og verðbólga 5,9%. Kristrún svaraði með fyrirheitum um það sem ríkisstjórnin ætlaði að gera á næstu vikum og vonaðist til að uppskera á næsta ári.

Á flokksstjórnarfundinum í mars sagði Kristrún: „Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera.“

Eftir tæp tvö ár í forsætisráðherrastóli hlýtur Kristrún að sæta því að verkstjórn hennar sé metin eftir sömu mælikvörðum og hún lagði á störf fyrirrennara sinna. Það er árangur af verkstjórn undanfarinna tveggja ára sem er til umræðu á alþingi, ekki fyrirheit um ágæti hennar á þriðja ári.