Kort Trumps
Bregðast má við uppátækjum Trumps á þann hátt sem gert var í athugasemdinni sem birtist í Le Figaro eða af þeim uppnámsþunga sem ráðherrar og stuðningsmenn þeirra gera hér. Það hefur ekki reynst þeim farsælt.
Það er ár og dagur frá því að ég varð við ósk um að koma í Silfrið á ríkissjónvarpinu. Við vorum sex sem Sigríður Hagalín fékk til samtals við sig í beinni útsendingu klukkan 20.15 mánudaginn 7. september: Benedikt Gíslason forstjóri Arion-banka, Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson auk mín.
Síðdegis þennan sama mánudag birti Donald Trump Bandaríkjaforseti kort á samfélagsmiðli sínum Truth Social sem sýndi stóran hluta Norður-Ameríku og Karíbahafsins í litum bandaríska fánans, þar undir Mexíkó og Kanada. Auk þessara tveggja landa eru Grænland, Kúba og Ísland á myndinni. Þá eru nokkur frönsk yfirráðasvæði, þar á meðal Martinique, Guadeloupe, Saint Barthélemy, Saint Martin og Saint Pierre og Miquelon, einnig innan svæðisins.
Trump birti ekki neinar athugasemdir til að skýra merkingu kortsins. Það sýnir einfaldlega Bandaríki Ameríku. Þá stendur Ameríkuflói fyrir Mexíkóflóa í samræmi við venju hans að endurhanna kort að eigin smekk.
Kortið sem Donald Trump birti á miðli sinum 7, sept, 2926,
Sigríður Haglín hóf Silfrið á því að spyrja okkur álits á þessu nýjasta uppátæki Trumps. Enginn kippti sér upp við það nema helst Stefán en öllum þótti þetta misráðið. Franska blaðið Le Figaro hafði kortið efstu frétt á vefsíðu sinni í morgun (8. sept.) og létu lesendur í ljós álit sitt. Þar sagði einn:
„Óhugnanlegar ranghugmyndir gamals manns, sem með háu sjálfsáliti og yfirlæti sínu getur valdið því að land hans tapar fyrir Íran og veikir það gegn Kína á þeim tíma þegar það síðarnefnda er að styrkja sig!“
Að morgni þriðjudagsins 8. september efndu formenn stjórnarflokkanna til blaðamannafundar til að kynna þingmál vetrarins. Þar bar kort Trumps einnig á góma.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði það hafa verið með öllu óviðeigandi. Hún hefði strax á mánudeginum kallað bandaríska sendiherrann á sinn fund til að koma skýrum mótmælum á framfæri. Þótt henni hefði ítrekað verið bent á innan bandarísku stjórnsýslunnar að ekki bæri að taka Trump bókstaflega yrði að taka honum alvarlega. Ísland væri fullvalda og sjálfstætt ríki sem réði örlögum sínum sjálft, rétt eins og Grænlendingar. „Spjallið var annars gott,“ sagði utanríkisráðherra.
Kristrún Frostadóttir tók undir þetta og sagði: „Undirtónninn sem þarna heyrist er fáránlegur og þetta er móðgun við Íslendinga, Kanadamenn og Grænlendinga að tjá sig með þessum hætti. Við eigum bara að vera skýr þegar kemur að því. Það er ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja, sérstaklega í dag þegar það er ekki sjálfgefið.“
Ég minnti í Silfrinu á að sögulegur fundur Trumps með Zelenskíj Úkraínuforseta í Hvíta húsinu 28. febrúar 2025 hefði strax 3. mars orðið til þess að Dagur B. Eggertsson hvatti til þess að ESB-þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði flýtt hér. Í janúar 2026 hefði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra rokið af stað vegna orða Trumps um Grænland og fernra mismæla hans um Ísland í ræðu í Davos.
Bregðast má við uppátækjum Trumps á þann hátt sem gert var í athugasemdinni sem birtist í Le Figaro eða af þeim uppnámsþunga sem ráðherrar og stuðningsmenn þeirra gera hér. Það hefur ekki reynst þeim farsælt.
Ég tel óþarfa að ýta undir hégómagirni Trumps sem birtist ekki aðeins í þessu undarlega korti heldur einnig í nýjum veislusal við Hvíta húsið og draumi um stærsta sigurboga heims sér til heiðurs í Washington, svo aðeins tvö dæmi séu nefnd.