27.11.2026 9:51

Kínverskur agi og íslenskir ráðamenn

Nú er ekki lengur aðeins rætt um samskipti tveggja fullvalda ríkja, Kína og Íslands, heldur aukin tengsl íslenskra stjórnmálaflokka við kínverska valdaflokkinn.

Furðulegt yfirlæti gagnvart íslenskum ráðamönnum einkennir grein He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, í Morgunblaðinu fimmtudaginn 26. nóvember undir fyrirsögninni: Agi og frumkvæði – lykill að árangursstjórnun KFK (Kommúnistaflokks Kína).

Sendiherrann segir frá fundi þeirra Wangs Yi, utanríkisráðherra Kína, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í Peking 29. október. Kínverski ráðherrann fræddi íslenska ráðherrann um nauðsyn strangs aga innan kommúnistaflokksins til að tryggja forystuhlutverk hans.

Þorgerður Katrín óskaði flokknum til hamingju með nýafstaðinn miðstjórnarfund að sögn sendiherrans sem segir síðan:

„Þessi orðaskipti voru meira en venjubundin diplómatísk samskipti. Þau drógu fram mikilvæga vídd í samskiptum Kína og Íslands: gagnkvæman skilning á því hvernig ólík stjórnmálakerfi skipuleggja samfélagið, fara með opinbert vald, stuðla að þróun og bregðast við væntingum almennings.“

Er sendiherrann að segja okkur að Þorgerður Katrín eigi að tileinka sér þann aga innan Viðreisnar eða í ríkisstjórn sem kínverski starfsbróðir hennar lýsti fyrir henni? Hvað sagði hún á fundinum sem gefur sendiherranum tilefni til að ljá samtali þeirra þessa pólitísku merkingu?

Grundvallarmunurinn á stjórnarháttum ríkjanna er að á Íslandi geta kjósendur svipt stjórnmálaflokka völdum. Í Kína snýst stjórnskipanin um að tryggja einum flokki völd til frambúðar.

Sendiherrann segir frá heimsókn Lu Kang, varaforstöðumanns alþjóðadeildar miðstjórnar kommúnistaflokksins, til Íslands í október. Hann hitti forsætisráðherra, forseta alþingis og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins.

Hvaða erindi átti þessi sendiboði flokksstjórnarinnar við forseta alþingis? Var þar rætt um samskipti þjóðþinga eða tengsl íslenskra stjórnmálaflokka við kínverska kommúnistaflokkinn?

Kinamynd Í Morgunblaðinu birtist 21. nóvember mynd af Ingu Sæland ráðherra, kínverska sendiherranum og Benedikt Bogasyni, forseta hæstaréttar, á sviði Eldborgar í Hörpu ásamt skemmtikröftum. (mynd: Brynja Eldon).

Þess er nú minnst að 55 ár eru liðin frá því að Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband. Í Morgunblaðinu birtist 21. nóvember mynd af Ingu Sæland ráðherra, kínverska sendiherranum og Benedikt Bogasyni, forseta hæstaréttar, á sviði Eldborgar í Hörpu ásamt skemmtikröftum.

Eitt er að forseti hæstaréttar sæki menningarviðburð á vegum erlends sendiráðs, annað að hann stilli sér upp á sviði til myndatöku með sendiherranum, ráðherra og skemmtikröftum. Hvaða tilgangi þjónar það?

Er greinin skrifuð sendiherranum til álitsauka í Peking? Vill hann sýna flokksstjórninni þar hve vel honum hefur tekist að rækta tengsl við æðstu handhafa ríkisvalds á Íslandi?

Í lok greinar sinnar segir sendiherrann:

„Þegar Kínverjar og Íslendingar opna næsta kafla í diplómatískum samskiptum sínum geta aukin samskipti milli stjórnmálaflokka stuðlað að gagnkvæmum skilningi í hagnýtu tvíhliða samstarfi.“

Nú er ekki lengur aðeins rætt um samskipti tveggja fullvalda ríkja heldur aukin tengsl íslenskra stjórnmálaflokka við kínverska valdaflokkinn. Hafa íslenskir ráðamenn gefið sendiherranum fyrirheit um að þannig verði staðið að samskiptum ríkjanna á næstu árum?

Íslenskir ráðamenn eiga ekki að láta kínverska sendiherranum eftir að skilgreina á hvaða pólitísku forsendum samskipti Íslands og Kína þróast.