27.10.2026 10:24

Kínaflug og þjóðaröryggi

Ferðaöryggi kínverskra gesta og þjóðaröryggi Íslands eru ólík viðfangsefni. Sendiráðið hefur kynnt áherslur sínar um það fyrra. Íslensk stjórnvöld þurfa með sama hætti að skýra eigin viðmið við mat á auknum samskiptum við Kína.

Það voru hátíðarhöld í flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í gær, 26. október, þegar fyrsta vél Air China í áætlunarflugi frá Peking með viðkomu í Kaupmannahöfn lenti. Flogið verður þrisvar í viku. Með þessu skapast tenging við eitt stærsta markaðssvæði heims án þess að farþegar þurfi að skipta um flugvél á leiðinni.

Screenshot-2026-10-27-at-10.16.40Vél Air China af gerðinni Airbus A330-300, með 301 sæti á leið að flugstöð Leifs Eiríkssonar 26. október. Í þokunni má sjá stærsta flugskýlið á öryggissvæðinu í þágu NATO á Keflavikurflugvelli (mynd: vefsíða ISAVIA).

Á vefsíðu kínverska sendiráðsins segir að vegna nýju flugtengingarinnar hafi verið efnt til fundar í sendiráðinu 23. október um borgaraþjónustu og öryggi kínverskra ferðamanna. Þar voru meðal annars fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Ferðamálastofu, Neytendastofu, Landsbjargar og ferðaþjónustunnar.

He Rulong sendiherra lýsti þeirri von að viðkomandi aðilar íslensks samfélags tækju höndum saman við sendiráðið um að efla öryggistilfinningu kínverskra ferðamanna og bæta upplifun þeirra af ferðalögum á Íslandi. Sendiráðið myndi leggja áherslu á aukna öryggisvitund og greiða fyrir ferðalögum þeirra. Allir þyrftu að búa sig undir fjölgun kínverskra gesta.

Þetta er eðlilegt viðfangsefni sendiráðs. Kínversk stjórnvöld setja þó flugtenginguna einnig í stærra samhengi samskipta ríkjanna. Það birtist skýrt í orðum sendiherrans við hátíðlega athöfn á Kárhóli í Þingeyjarsveit 29. september.

Samkvæmt frásögn sendiráðsins vísaði He Rulong þar til frumkvæðis Xi Jinping Kínaforseta um menningu og alþjóðlega stjórnun sem leiðarljóss samstarfsins. Nýta ætti nýju flugsamgöngurnar til að láta rannsóknarstöðina þjóna byggðaþróun og alþjóðlegu samstarfi samhliða vísindarannsóknum. Íslenskir gestir lýstu jafnframt vonum um að stöðin efldi menntun og ferðaþjónustu í heimabyggð.

Með þessum orðum setti sendiherrann starfsemina á Kárhóli í beint samhengi við pólitíska stefnu leiðtoga kínverska kommúnistaflokksins. Það er víðtækari umgjörð en vísindasamstarfið sem lagt var til grundvallar við upphaf verkefnisins.

Fjallað hefur verið um að sérstakt þjóðaröryggismat hafi ekki farið fram við upphaf þess. Síðar var gerður samningur sem tryggði kínversku heimskautastofnuninni afnot af aðstöðunni til 99 ára. Samkvæmt lýsingu á samstarfinu var fyrsti samningurinn gerður 2013 og endurnýjaður til þessa langa tíma árið 2018.

Íslensk stjórnvöld hafa nú staðfest að málefni Kárhóls hafi komið til skoðunar í þjóðaröryggisráði. Þau segjast hafa yfirlit yfir búnað stöðvarinnar og aðgang að húsnæði og rannsóknargögnum. Það svarar þó ekki spurningunni um hvernig öryggishagsmunir Íslands voru metnir áður en stofnað var til þessara skuldbindinga eða hvernig eftirlitinu er háttað í framkvæmd.

Ferðaöryggi kínverskra gesta og þjóðaröryggi Íslands eru ólík viðfangsefni. Sendiráðið hefur kynnt áherslur sínar um það fyrra. Íslensk stjórnvöld þurfa með sama hætti að skýra eigin viðmið við mat á auknum samskiptum við Kína.

Þar skipta vegabréfsáritanir einnig máli. Fyrr á árinu samþykkti alþingi lög að frumkvæði utanríkisráðherra sem færa framkvæmd áritanamála til utanríkisráðuneytisins. Við meðferð málsins komu fram áhyggjur af verkaskiptingu stjórnvalda og tengslunum við landamæravörslu. Í endanlegum lögum er kveðið á um samstarf stjórnvalda og áhættumat. Á það verður að reyna í framkvæmd.

Lögin heimila jafnframt að utanaðkomandi þjónustuaðilum í þriðja ríki sé falin meðal annars móttaka og varsla umsókna og ferðaskilríkja og skráning lífkenna. Það jafngildir ekki heimild til að fela þeim ákvörðun um útgáfu áritunar. Engu að síður er um viðkvæmar upplýsingar að ræða. Sé slík þjónusta keypt í Kína verður að gera skýra grein fyrir kröfum um sjálfstæði þjónustuaðilans, gagnavernd og eftirlit íslenskra stjórnvalda.

Auknum samskiptum við Kína fylgja viðskiptatækifæri en einnig verkefni sem íslensk stjórnvöld verða að meta sjálfstætt. Sendiherrann tengir nú starfsemina á Kárhóli og nýju flugsamgöngurnar opinberlega við stefnu Xi Jinping. Íslensk stjórnvöld þurfa að skýra hvernig þau meta þessa þróun, hvaða öryggiskröfur þau gera og hver ber ábyrgð á eftirlitinu. Ánægja með fjölgun ferðamanna kemur ekki í stað þess mats.