5.10.2026 9:31

Kárhóll og íslensk ábyrgð

Þjóðaröryggismat þarf að ná til starfsemi og tæknilegrar getu stöðvarinnar á Kárhóli, hverjir stjórna henni og hvernig gögn eru nýtt. 

Í samningi Bandaríkjamanna, Dana og Grænlendinga frá 22. september um öryggis- og varnarmál Grænlands eru sérstakar takmarkanir á fjárfestingum og öðrum umsvifum aðila utan NATO, samstarfsríkja bandalagsins og ESB í viðkvæmum geirum. Ákvæðið þrengir verulega svigrúm Kínverja og Rússa. Kínversk rannsóknarstöð sem félli undir það yrði háð samþykki samningsaðilanna.

Í sjónvarpsfréttum RÚV sunnudaginn 4. október var sagt frá því að aðstaðan í kínversku rannsóknarstöðinni á Kárhóli í Reykjadal væri loks fullbúin, tólf árum eftir fyrstu skóflustunguna. Byggingin hefði kostað um milljarð króna.

1511998Frá Kárhóli (mbl.is/Þorgeir).

Í fréttinni kom fram að Heimskautastofnun Kína hefði fjármagnað alla uppbyggingu og einnig reksturinn. Þá hefði kínverska ríkið greitt vegna vanskila sem hefðu orðið tilefni áforma Byggðastofnunar um uppboð eignarinnar. Forsvarsmenn væntu þess að starfsemin ykist verulega með fullbúinni aðstöðu.

Í tilkynningu kínverska sendiráðsins í Reykjavík frá 1. október segir að He Rulong sendiherra hafi 29. september verið við upphaf alþjóðlegrar vísindaráðstefnu á Kárhóli og efnt til móttöku til að fagna lokum endurbóta þar. Meðal gesta hafi verið Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður Rannís, Knútur Jónasson oddviti og Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Þingeyjarsveitar.

Í tilkynningunni setur sendiherrann starfsemina á Kárhóli í skýrt pólitískt samhengi. Hann segir Kínverja ætla að hafa alþjóðleg frumkvæði Xi Jinping Kínaforseta um menningu og stjórnarhætti að leiðarljósi og nýta fyrirhugað flug milli landanna til að efla byggðaþróun og alþjóðlegt samstarf á Kárhóli. Samkvæmt tilkynningunni fögnuðu íslensku gestirnir verklokum og lýstu vonum um ávinning fyrir rannsóknir, menntun og ferðaþjónustu.

Samkvæmt orðum sendiherrans sjálfs tengjast Kárhóli kínversk ríkisfjármögnun, vísindastarf, ferðaþjónusta og pólitísk stefna stjórnvalda í Peking. Þessi yfirlýsing kallar á viðbrögð íslenskra stjórnvalda. Hvernig metur Rannís þá pólitísku umgjörð sem sendiherrann lýsir? Hvernig tryggir stofnunin að þátttaka hennar veiti verkefninu ekki fræðilega yfirbreiðslu án fullnægjandi mats á íslenskum öryggishagsmunum? Þá þarf Byggðastofnun að gera grein fyrir lánveitingum sínum, tryggingum og uppgjöri vegna eignarinnar.

Í svari utanríkisráðherra á Alþingi árið 2023 vegna Kárhóls kom fram að sérstakt þjóðaröryggismat hefði ekki farið fram við mótun verkefnisins. Ráðuneytið sagðist þá hvorki hafa lagaheimildir til að setja rannsóknamiðstöðvum skilyrði vegna þjóðaröryggis né til sérstaks eftirlits umfram rannsóknarheimildir lögreglu.

Nú er eðlilegt að ráðuneytið rýni í orð kínverska sendiherrans og samninga og stjórnvaldsákvarðanir sem liggja starfseminni til grundvallar. Hefur starfsemin verið metin með hliðsjón af fullbúinni aðstöðu og fyrirhuguðum vexti? Hver ber ábyrgð á eftirliti með búnaði, gagnasöfnun og aðgangi að upplýsingum? Hvaða réttindi og skyldur fylgja kínversku fjármögnuninni?

Vorið 2025 sagði yfirmaður öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra tímabært að ræða opið um njósnir Kínverja á Íslandi. Kínverska sendiráðið mótmælti og sendiherrann hafnaði mati lögreglunnar á viðburði með þátttöku fulltrúa utanríkisráðuneytisins. Ráðuneytið þarf að skýra hvernig það brást við og hvernig það tryggir að öryggismat íslenskra stofnana njóti sjálfstæðis gagnvart þrýstingi erlendra stjórnvalda.

Þjóðaröryggismat þarf að ná til starfsemi og tæknilegrar getu stöðvarinnar á Kárhóli, hverjir stjórna henni og hvernig gögn eru nýtt. Íslensk ráðuneyti þurfa að sýna að þau hafi þekkingu og úrræði til að gæta íslenskra hagsmuna á Kárhóli. Þau hafa enn ekki sýnt almenningi fram á það.