Jón Gnarr opnar boxið
Ég tel að kosningabarátta já-sinna hafi verið dæmalaust klúður og ákvörðunin um að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni illa ígrundað glapræði.
Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar til að hafa frelsi sem honum sé tryggt í stjórnarskránni. Þingmenn séu aðeins bundnir eigin samvisku. Hann semur þó við sama þingflokk um að fá að halda stöðu sinni í nefndum og um að hann styðji ríkisstjórnina. Þetta er undarlegt.
Jón Gnarr í ræðustól alþingis (mynd: mbl.is).
Jón vísar til þess að hann sætti sig ekki við stjórnarhætti í þingflokknum, samt sitji hann áfram í flokknum. Þá finnist honum forgangsröðin við afgreiðslu mála á þingi ekki rétt (ríkisstjórnin ákveður hana), samt styður hann ríkisstjórnina.
Athyglisverðast er það sem Jón segir um ESB-atkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðdraganda hennar í viðtali við Vísi 15. október.
Hann segist ekki hafa haft „eldheitar skoðanir á því máli“. Honum hefði fundist að það hefði mátt standa betur að þessu „þetta hefði mátt vera með skipulagðari hætti“. Eftir að niðurstaðan lá fyrir hefði líka verið „mjög mikilvægt fyrir flokkinn að skilgreina sig og stíga fram með skýrum hætti“. Fyrir marga sem starfa í Viðreisn hefði þetta verið „mjög mikið áfall, mikill pólitískur ósigur“. Hann reiðist ekki fólki sem sé í áfalli yfir einhverju, hann sé ekki þannig maður en hann geti ekki heldur „setið í einhverju sem mér finnst ekki vera samkvæmt minni sannfæringu, ég bara get það ekki,“ segir Jón Gnarr.
Þessi orð verða Össuri Skarphéðinssyni tilefni til að spyrja á FB 15. október
„Eru réttu viðbrögðin að þegja tapið í hel?“ Hann segir í orðum Jóns koma fram „Fullkomlega réttmæt gagnrýni á framkvæmd og skipulagningu kosningabaráttunnar í sumar“. Jón sé fyrstur stjórnarþingmanna til að gagnrýna „hversu frámunalega illa var að henni staðið“.
Össur segir að um þetta sé talað í „röðum stuðningsmanna stjórnarinnar ... í öllum hornum, ekki síst innan Viðreisnar“. Enginn hafi þó viljað rjúfa friðinn og segja það upphátt fyrr en Jón Gnarr. „Hafi hann heila þökk!“ segir Össur. Það verði að fá aðrar skýringar á niðurstöðunni en bara þá „að andstæðingar ESB hafi verið svo duglegir að ljúga“. Það skýri vitaskuld ekki hvernig tókst að snúa yfirburðafylgi upp í tap á tæpu sumri.
Dr. Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur segir í athugasemd við færslu Össurar:
„Já, það er sannarlega margt til í þessu [hjá Össuri], kosningabaráttan var með ólíkindum, ekki bara af hálfu Viðreisnar heldur líka Samfylkingar, miður að klúðra þessu tækifæri.“ Og Össur bregst við með einu orði: „Hárrétt.“
Þetta kemur heim og saman við skoðun mína sem ég ræddi meðal annars á dögunum við Gísla Frey Valdórsson í hlaðvarpsþætti hans Þjóðmálum. Ég tel að kosningabarátta já-sinna hafi verið dæmalaust klúður og ákvörðunin um að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni illa ígrundað glapræði. Allt er það að lokum á ábyrgð ríkisstjórnarinnar allrar undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar.
ESB-málið allt einkenndist af illa ígrunduðu fljótræði. Þjóðarsamtal verður að reisa á málefnalegum grunni og sannfæringu um að það sem boðað er sé rétt og skipti máli. Af því að ekki var staðið þannig að málum í sumar er dagsskipunin að stjórnarliðar þegi um úrslitin. Jón Gnarr þolir það ekki.