17.4.2026 10:19

Jamie Lee og þörungarnir

Þessi saga um þrautseigju Jamie Lee til að vinna að þessu áhugamáli sínu og stuðla að þörungarækt er rifjuð upp hér vegna fréttar sem birtist í Morgunblaðinu, 200 mílum.

Fyrir tæpum fimm árum, 2. júní 2021, tók ég þátt í fundi á Ísafirði þar sem við kynntum hugmyndir að landbúnaðarstefnu undir heitinu Ræktum Ísland! Fundinn sótti grafíski hönnuðurinn Jamie Lee. Hún er fædd í San Fransisco og alin upp í Hong Kong. Hún bjó þá á Króksfjarðarnesi. Á fundinum ræddi hún mikilvægi þess að rækta og vinna þang. Vegna þess að opinbera umgjörð skorti stæði Ísland að baki þeim sem náð hefðu lengst í þessu efni.

Um 18 mánuðum síðar, 18. desember 2022, hitti ég Jamie Lee á matarmarkaði í Hörpu þar sem hún kynnti framleiðslu fyrirtækis síns Kraftur úr hafinu eða Fine foods ÍslandicA. Hún bjó þá á Hólmavík vegna þaravinnslu sinnar.

Næst hittumst við Jamie Lee á Hólmavík sumarið 2023 þegar ég var þar í kynnisferð með Hlédísi Sveinsdóttur vegna leiða til byggðafestu í sex sveitarfélögum, meðal annars Strandabyggð. Í skýrslu okkar í ársbyrjun 2024 er sérstakur kafli um mikilvægi þörungavinnslu.

Screenshot-2026-04-17-at-10.10.50Kynningarmynd vegna fyrirlesturs Jamie Lee um þörungarækt og vinnslu. 

Þessi saga um þrautseigju Jamie Lee til að vinna að þessu áhugamáli sínu og stuðla að þörungarækt er rifjuð upp hér vegna fréttar sem birtist í Morgunblaðinu, 200 mílum, fimmtudaginn 16. apríl um að franski smábátasjómaðurinn Quentin Monnier, sem gert hefur út á strandveiðar frá Hólmavík, hafi ekki fengið ríkisborgararétt. Bátur hans hafi verið afskráður af Samgöngustofu án tilkynningar til Quentins. Hann hafi ekki vitað um afskráninguna fyrr en landhelgisgæslan stöðvaði hann í síðustu viku. Þá hafi Quentin að vísu ekki verið að veiða heldur róið til að vitja þaralína nýsköpunarfyrirtækisins Fine Foods Íslandica sem væri í eigu kærustu Quentins, Jamie Lee.

Quentin segist auðveldlega geta sýnt fram á að hann hafi búið hér og borgað skatta síðan 2015, það er lengur en lögskilin 7 ár til að geta fengið ríkisborgararétt. Útlendingastofnun hafnaði hins vegar ósk hans um réttinn og er nú stjórnsýsluáfrýjun vegna þess til afgreiðslu í dómsmálaráðuneytinu. Quentin öðlaðist skipstjórnarréttindi árið 2022. Án ríkisborgararéttar má hann ekki eiga meira en 25% í fyrirtæki sem gerir út bát. Nýjar reglur um strandveiðar banna honum hins vegar að róa nema hann eigi meira en 50% í bátnum.

Þótt Quentin fari ekki á strandveiðar þarf hann á bátnum að halda til að þjónusta Fine Foods Íslandica sem ræktar þara á línum. Það fær hann ekki.

Andstaða regluverksins við atvinnustarfsemi og byggðafestu birtist í ýmsum myndum. Þetta svæði þar sem þau Jamie Lee og Quentin Monnier láta að sér kveða til að efla atvinnu og mannlíf er talið falla undir brothætta byggð sem njóta eigi sérstaks stuðnings, ekki síst í atvinnumálum.

Hér sannast enn að hömlur á vexti má víða rekja til opinbers regluverks. Það takmarkar til dæmis svigrúm bænda til fullvinnslu afurða sinna. Skorður eru settar við kæklingarækt í hafi bæði við Reykhóla og á Hólmavík. Nú er vegið að þörungarækt Jaime Lee í Steingrímsfirði.

Vonandi tekst ekki að kippa grundvelli undan framtaki Jamie Lee í þörungavinnslunni!