16.11.2026 9:40

Íslenskan og nýja tæknibyltingin

Íslenskan styrkist ekki með því að halda nýrri tækni frá henni heldur með því að tryggja henni sess í tækninni.

Í dag, 16. nóvember, eru 30 ár frá því að dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn. Mikið vatn er runnið til sjávar en enn glímum við við sömu grundvallarverkefni og Að örva lestur, efla lesskilning og tryggja íslenskunni sem bestan sess í síbreytilegum tækniheimi.

Í því fólst meiri fyrirhyggja en ég gerði mér grein fyrir á sínum tíma að hefja skipulega söfnun íslenskra texta á stafrænu formi og mynda þannig málheildir sem nýta mætti við rannsóknir og þróun máltækni. Hér má lesa um eitt slíkt stórmerkilegt verkfæri sem ber heitið Mörkuð íslensk málheild (MÍM). Í málheildinni má finna um 25 milljónir orða úr fjölbreyttum textum sem eru geymdir í stöðluðu sniði á rafrænu formi. Orðin eru greind málfræðilega og hverjum texta fylgja bókfræðilegar upplýsingar um verkið sem hann er úr. Málheildin er ætluð til málrannsókna og notkunar í máltækniverkefnum.

Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður Almannaróms:

„Þegar tölvur fóru að tala og hlusta hættu einfaldar þýðingar að duga til. Í stað þess að bíða eftir stóru tæknifyrirtækjunum ákváðu íslensk stjórnvöld árið 2018 að nauðsynleg gögn og tækni fyrir íslensku yrðu smíðuð og gerð opin og aðgengileg. Microsoft og Google hafa nýtt sér þessi gögn til að bjóða upp á íslensku í lausnum sínum og þegar OpenAI kynnti Chat GPT-4 til leiks árið 2023 var íslenska eina tungumálið utan ensku sem líkanið hafði verið þjálfað í sérstaklega.“

Almannarómur er óháð sjálfseignarstofnun, miðstöð máltækni og gervigreindar sem vinnur að því að tryggja íslenskunni sess í stafrænum heimi.

Nú leggur Almannarómur sérstaka áherslu á að beita sér gagnvart Apple, einu útbreiddasta tæknifyrirtæki á Íslandi, sem sker sig úr þegar litið er til viðleitni alþjóðlegu tæknirisanna til að bjóða vörur sínar á íslensku. Hvorki stýrikerfi Apple né raddaðstoðin Siri eru í boði á íslensku. Þetta veldur því að íslenska nýtur ekki þeirrar stöðu sem henni ber í mörgum þeirra tækja sem við erum daglega með í höndunum. Þetta er óviðunandi og til skammar fyrir Apple. Hér má taka undir hvatningu til fyrirtækisins um að gera bragarbót.

Screenshot-2026-11-16-at-09.38.20Auglýsing frá Samsung keppininauti Apple 16. nóvember 2026.

Ég var fljótur að nýta mér ChatGPT-4 eftir að OpenAI kynnti það spjallmenni til sögunnar og fyrir 20 dollara á mánuði hef ég bætt öflugum liðsmanni í verkfærakistu mína. Það hefur verið ævintýralegt að fylgjast með því hve góðum tökum spjallmennið hefur náð á íslensku og hæfnin til heimildaleitar er ómetanleg. Ég hef safnað efni á eigin vefsíðu í rúm 30 ár og fæ nú á 10 sekúndum leitarsvar sem ella hefði ef til vill tekið mig klukkustundir að finna. Galdurinn felst í að gefa spjallmenninu nógu skýr fyrirmæli og kunna að meta svörin.

Þessi nýja tækni skapar einnig tækifæri til að efla lestur og lesskilning. Hún getur auðveldað aðgang að textum, skýrt merkingu orða og hjálpað fólki að átta sig á flóknu efni. Hún kemur þó aldrei í stað þess að börn læri sjálf að lesa, skilja og hugsa. Þvert á móti verður sú færni enn mikilvægari þegar sífellt auðveldara verður að fá tölvur til að semja texta og svara spurningum.

Ég er ekki í hópi þeirra sem óttast gervigreindina. Fyrir um 30 árum hikaði ég ekki við að berjast fyrir innleiðingu upplýsingatækninnar í mennta- og menningarmálum. Þá tók ég mark á fróðari mönnum sem hvöttu til þess að opna tækninni leið í stað þess að loka á hana. Reynslan hefur sýnt að það var rétt stefna.

Nú stöndum við frammi fyrir nýrri tæknibyltingu. Enn er sama grundvallarspurningin uppi: Ætlum við að nýta tæknina til að efla íslenskuna eða láta óttann við hana ráða för? Ég er ekki í neinum vafa um svarið. Íslenskan hefur síður en svo goldið tækniframfaranna. Hún styrkist með nýrri tækni, sé rétt á málum haldið.