Illindi innan Samfylkingar
Átökin innan Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa tekið á sig nýjan svip undanfarna daga vegna frétta og umræðna um notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á opinberu innkaupakorti.
Átökin innan Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa tekið á sig nýjan svip undanfarna daga vegna frétta og umræðna um notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á opinberu innkaupakorti.
Heiða Björg varð sjálfkjörin í embætti varaformanns Samfylkingarinnar í febrúar 2017 og tók við af Loga Einarssyni. Þá var Samfylkingin í mikilli lægð og hlaut aðeins 5,7% atkvæða í þingkosningum. Heiða Björg gegndi varaformennskunni til 2022. Þá var Kristrún Frostadóttir ein í framboði til formanns Samfylkingarinnar og hlaut 94,59% greiddra atkvæða.
Heiða Björg varð oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn í janúar 2025 við brotthvarf Dags. B. Eggertssonar úr borgarstjórn og síðan borgarstjóri frá 21. febrúar 2025. Heiða Björg bauð sig fram í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Reykjavík í forvali flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar nú 16. maí 2026 en tapaði gegn Pétri Marteinssyni með nærri 1.400 atkvæða mun. Heiða Björg ákvað að taka annað sætið á borgarstjórnarlista Samfylkingarinnar.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri (mynd: mbl.is/Karitas).
Hér hefur því verið haldið fram að þetta hafi Heiða Björg gert í andstöðu við vilja ráðandi afla innan Samfylkingarinnar en Kristrún flokksformaður gaf stuðning sinn við Pétur opinberlega til kynna í aðdraganda forvalsins. Heiða Björg starfaði náið með Degi B. Eggertssyni í borgarstjórn og hann hefur ekki hvikað frá stuðningi við hana. Fyrir þingkosningarnar 30. nóvember 2024 sátu þau saman á framboðslista í Reykjavík norður Kristrún og Dagur B. Þá kom fram að Dagur B. væri þar jafnvel í óþökk Kristrúnar.
Það brá mörgum í brún á dögunum þegar ríkisútvarpið, af öllum miðlum, flutti frétt í hneykslunartóni um notkun Heiðu Bjargar á innkaupakorti borgarstjóra frá því í febrúar 2025. Síðan hefur Heiða Björg svarað fyrir notkun kortsins og hafnað gagnrýninni almennt auk þess að endurgreiða fé vegna fjögurra greiðslna en alls nemur úttekt hennar á kortinu 753 þús. kr.
Í frétt ríkisútvarpsins föstudaginn 8. maí um málið sagði að borgarstarfsmenn hefðu gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar á kortinu auk munnlegra athugasemda við þær 37 færslur sem eru skráðar á kortið frá því að hún tók við embætti. Hún segir athugasemdirnar fyrst og fremst hafa snúið að fylgigögnum sem vantaði og sér ekkert athugavert við fjölda þeirra.
Hér var því haldið fram fimmtudaginn 7. maí að Heiða Björg kynni að styðja Sönnu Magdalenu á lista Vors til vinstri sem næsta borgarstjóra að kosningum loknum í stað Péturs Marteinssonar oddvita Samfylkingarinnar.
Líkur á því hafa aukist vegna ásakana á vettvangi Samfylkingarinnar um að stuðningsmenn Péturs (og Kristúnar) miðli upplýsingum til fréttastofu RÚV um kortamisnotkun Heiðu Bjargar og athugasemdir við þær í ráðhúsinu, aðeins innvígðir búi að slíkri vitneskju. Þá er rifjað upp að fyrsti fjölmiðillinn til að kasta nafni Péturs inn á átakavöll Samfylkingarinnar var fréttastofa RÚV.
Þess skal getið að undirmálsmenn fjölmiðlunar á Eyjunni/DV standa með Heiðu Björgu í valdabaráttunni í Samfylkingunni. Sá stuðningur fellur vel að þeirri skoðun að kortamálið versni dag frá degi vegna þess hve henni og málsvörum hennar séu mislagðar hendur í vörn sinni.