22.2.2026 10:46

Icesave og fall Andrews

Af breskum blöðum má ráða að tölvubréf í febrúar 2010 sem rekja má til Icesave-málsins hafi verið meðal þess sem varð til húsleitar hjá Andrew Mountbaten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, að morgni fimmtudagsins 19. febrúar. 

Af breskum blöðum má ráða að tölvubréf í febrúar 2010 sem rekja má til Icesave-málsins hafi verið meðal þess sem varð til húsleitar hjá Andrew Mountbaten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, að morgni fimmtudagsins 19. febrúar. Andrew er bróðir Karls 3. Bretakonungs sem sagði að réttvísin yrði að hafa sinn gang þegar Andrew var handtekinn þennan sama dag og var 12 klukkustundir í vörslu lögreglu. Hafði þá enginn svo náskyldur Bretakonungi verið tekinn höndum síðan 1647.

Enginn veit hver framvinda þessa fordæmalausa máls verður eða hver áhrif þess verða á viðhorfið til bresku konungsfjölskyldunnar og hlutverks hennar í samfélaginu. Andrew er áttundi í röðinni þegar kemur að konungserfðum í Bretlandi og eru háværar kröfur um að þingið svipti hann því virðingarsæti.

Á sínum tíma hvatti Peter Mandelson, áhrifamaður í breska Verkamannaflokknum og vinur Andrews prinsins þáverandi, að taka að sér hlutverk sem viðskiptasendiherra Breta. Það var vegna þess hlutverks prinsins sem húsleitin var gerð á fimmtudaginn.

Bæði Andrew og Mandelson voru nánir vinir fjársýslumannsins og barnaníðingsins Jeffreys Epstein sem framdi sjálfsmorð í fangelsi í New York 10. ágúst 2019. Árið 2008 hlaut Epstein dóm í Flórída fyrir að kaupa kynlíf af ólögráða stúlku og sat hann 13 mánuði í fangelsi. Alvarlegri sakir á hann sama eðlis leiddu til handtöku hans 2019. Eftir dauða Epsteins beindist athygli að samverkakonu hans Ghislaine Maxwell. Hún var handtekin 2. júlí 2020 og ákærð fyrir að aðstoða Epstein. Árið 2022 var hún dæmd í 20 ára fangelsi.

Gettyimages-2262601514-1024x1024

Við rannsókn þessara mála varð til gagnasafn, Epstein-skjölin svonefndu. Þrýstingur stjórnmálamanna og fjölmiðla í Bandaríkjunum varð til þess að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti gífurlegt magn gagna (3 milljónir skjala) tengd málaferlum Epsteins 31. janúar 2026.

Hafa fjölmiðlamenn og aðrir unnið efni úr þessum skjölum og föstudaginn 13. febrúar birti The Telegraph stórfrétt um að Andrew Mountbatten-Windsor hefði framsent trúnaðarskýrslu frá fjármálaráðuneytinu til vinar síns í bankaheiminum þegar hann var viðskiptasendiherra.

Prinsinn fyrrverandi hafi falið Amöndu Thirsk, aðstoðarritara sínum, að afla innanhússminnisblaðs frá stjórnvöldum í febrúar 2010 um fjármálakreppuna á Íslandi.

Segist The Telegraph hafa séð bréfaskipti sem sýni að Thirsk sendi tölvupóst á Michael Ellam, þáverandi forstöðumann alþjóðafjármála hjá fjármálaráðuneytinu (e. the Treasury’s director general of international finance), og bað hann um að útbúa minnisblað fyrir Mountbatten-Windsor um „norrænu þjóðina“ eins og það er orðað. Minnt er á að á þeim tíma hafi Bretar og Íslendingar átt í stjórnmáladeilu vegna breskra innistæðna sem töpuðust í bankahruninu 2008, er þar vísað til Icesave-deilunnar.

Þá segir The Telegraph að 8. febrúar 2010 hafi Thirsk skrifað: „Hertoginn af York [Andrew] fundaði með forsætisráðherra Íslands í Davos og langar mikið að fá uppfært minnisblað um nýjustu stöðu mála milli Bretlands og Íslands varðandi innistæðurnar og innistæðutryggingakerfið.“

Thirsk fékk minnisblaðið frá öðrum embættismanni í fjármálaráðuneytinu viku síðar og framsendi það til Mountbatten-Windsor.

Framhald.