10.2.2026 9:38

Í minningu Godds

Minningin um einstakt framlag Godds lifir til framtíðar verði ráðist í útgáfu á þeim verkum sem hann vann að og bjó til prentunar. Að því ber að vinna.

Bálför Guðmundar Odds Magnússonar listamanns og grafísks hönnuðar var gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í gær, 9. febrúar. Goddur, eins og hann var jafnan nefndur, lést í bílslysi á Biskupstungnabraut á Suðurlandi laugardaginn 3. janúar.

Leiðir okkar lágu saman á sínum tíma vegna Listaháskóla Íslands. Minningarnar um Godd eru ánægjulegar. Hann er mér skýr fyrir hugskotssjónum.

Opinn hádegisfyrirlestur hans 30. apríl 2014 í húsnæði Listaháskólans við Þverholt er eftirminnilegur. Þar sagði hann frá lífi sínu og lífsstarfi frá 1974 til 2004 í þéttsetnum sal áheyrenda auk margra sem stóðu með veggjum. Frásögnin var hrífandi auk þess sem hann sýndi mikið af myndum máli sínu og listsköpun til skýringar. Áheyrendur dáðust að honum og fögnuðu.

Hann þáði boð okkar Rutar um að koma á Kvoslæk í Fljótshlíðinni 26. ágúst 2017 og flytja fyrirlestur um vormenn íslenskrar teiknilistar við lok nítjándu aldar og upphaf tuttugustu aldar.

„Við getum kallað þá upphafsmenn íslenska myndmálsins. Þeir voru flestir sjálfmenntaðir en það sem kallað er sérmenntun í hagnýtri grafíklist kom síðar. Þar var kona í fararbroddi, Ágústa Pétursdóttir Snæland. Fyrirlesturinn mun fjalla um þá sem ruddu brautina en þótt Jón Kristinsson (Jóndi í Lambey í Fljótshlíð) sé mun yngri en þeir teiknarar sem fjallað verður um tengist hann Rafskinnu sem á heldur betur sinn sess í þessu vori íslenska myndmálsins“ sagði Goddur við vefmiðilinn DFS.is á Suðurlandi.

Heimamenn og aðrir góðir gestir nutu fyrirlestursins í Hlöðunni. Hann var fluttur af innlifun og mikilli þekkingu og ríkulega skreyttur myndverkum. Þau Rut höfðu unnið saman þegar Goddur hannaði fyrir hana umgjörð geisladiska.

GNA150OTQGoddur - mynd úr Morgunblaðinu desember 2019.

Í minningargrein í Morgunblaðinu 9. febrúar segir Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, að árið 2020 hafi Goddur unnið með samstarfsfólki sínu í fimm mánuði í opnu rannsóknarrými safnsins við að skrá myndmálssögu Íslands. Hann hafi boðað þangað fjölda fólks, tekið viðtöl, safnað verkum og gögnum, haldið fyrirlestra, spjallað við gesti og sett fram viðfangsefnið í sýningarformi. Eftir Godd liggi langt komið handrit um íslenska myndmálssögu.

Gísli Ingvarsson segir um Godd, vin sinn og mág, að eftir hann liggi Sjónabók miðalda. Hann hafi sótt mest í það sem byrjaði með prentlistinni og alveg sérstaklega frá miðri nítjándu öld. Goddur hafi dáið frá þessu verki, sem líklega sé fullbúið, þótt nákvæmnisárátta teiknarans hafi ekki náð að leggja það fram endanlega og fullbúið.

Listaháskóli Íslands sæmdi Godd í fyrra heiðursprófessorsnafnbót fyrir einstakt framlag hans til myndlistar, grafískrar hönnunar og fræðslu á sviði menningar og lista á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Ríkisstjórnin samþykkti í desember 2019 að ráðstafa fjórum milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar Godds á íslenskri myndmálssögu og útgáfu hennar. Rannís og Listaháskólinn veittu verkefninu einnig stuðning.

Minningin um einstakt framlag Godds lifir til framtíðar verði ráðist í útgáfu á þeim verkum sem hann vann að og bjó til prentunar. Að því ber að vinna.