4.10.2026 10:55

Hverjum gagnast vælutalið?

Að kalla gagnrýni væl svarar engu um stjórnarhætti. Það veitir valdhöfum skjól fyrir spurningum sem þeir eiga að svara.

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar skýrt og skoðanir hennar á mönnum fara ekki á milli mála. Í pistli á dv.is í dag (4. október) lýsir hún óróa, depurð og valdaþrá sjálfstæðismanna utan ríkisstjórnar. Gagnrýni þeirra á stjórnvöld er skýrð með þessum tilfinningum. Að lokum kemur niðurstaðan: „Þvílíkt væl!“

Hvernig eiga almenn orðaskipti um stjórnmál að fara fram ef gagnrýni er afgreidd með lýsingum á líðan gagnrýnandans? Þá kemur lýsing á meintu tilfinningalífi hans í stað þess að rökin séu vegin og metin. Hvað verður um málefnið þegar menn eru sagðir tala af beiskju áður en málflutningur þeirra hefur verið skoðaður?

Tökum nýlegt dæmi. Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir sautján farsæl ár. Fram hefur komið að ágreiningur um stjórnarhætti hafi átt þátt í ákvörðuninni. Slíkur ágreiningur er ekkert smámál hjá opinberu fyrirtæki sem fer með mikla fjármuni og gætir grunnhagsmuna þjóðarinnar. Raforkuframleiðsla Landsvirkjunar er ein af undirstöðum þjóðaröryggis.

Snerist ágreiningurinn alfarið um samskipti stjórnar fyrirtækisins og forstjórans? Eða komu samskipti við ríkisstjórnina einnig við sögu? Fjármála- og efnahagsráðherra fer með eignarhlut ríkisins og skipar stjórnina. Hvað fólst í ágreiningnum og hvað vissu ráðherrarnir um hann?

Hörður gekk á fund Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra áður en hann tilkynnti starfsfólki ákvörðun sína. Landsvirkjun sagði fundinn hafa verið fyrir kurteisissakir og fjármálaráðherra þegar verið upplýstur um starfslokin.

Kristrún sagði hins vegar að fundurinn hefði lengi staðið til, að rætt hefði verið um stöðu fyrirtækisins og að til hans hefði ekki verið sérstaklega stofnað vegna afsagnarinnar.

IMG_4211Það haustar.

Þessar skýringar geta vissulega farið saman. Það eru þó ekki öll kurl komin til grafar. Hvað vildi Hörður ræða þegar fyrst var óskað eftir fundinum? Hversu lengi hafði hann beðið? Kristrún skýrði biðina með því að hún hefði verið erlendis. Var erindið þess eðlis að það gat beðið?

Þessi aðdragandi að „kurteisisfundi“ sama dag og starfsfólk Landsvirkjunar er kallað til skyndifundar sannar ekki að ríkisstjórnin hafi valdið starfslokunum. Hann sýnir hins vegar hvers vegna spyrja þarf um stjórnarhætti, verkaskiptingu og ábyrgð. Svörin fást ekki með því að greina hugarástand sjálfstæðismanna.

Kolbrún bendir réttilega á að ráðherrar eigi að sýna aga og svara fjölmiðlum. Sú krafa verður að hafa innihald. Hún verður lítils virði ef þeir sem fylgja henni eftir eru jafnframt afgreiddir sem ráðþrota og gagnrýni þeirra kölluð væl.

Hverjum gagnast slík skrif? Ríkisstjórnin nýtur góðs af því að athyglin færist frá ákvörðunum hennar að meintum skapbrestum stjórnarandstöðunnar. Stuðningsmenn fá staðfestingu á því að gagnrýnendur séu óþolandi. Almenningur fær hins vegar engin svör.

Stjórnmálaumræða snýst um vald, ákvarðanir og ábyrgð. Að kalla gagnrýni væl svarar engu um stjórnarhætti. Það veitir valdhöfum skjól fyrir spurningum sem þeir eiga að svara.