8.11.2026 10:10

Hvar eru efnisrökin?

Gagnrýni á pólitískt mat forsætisráðherra og utanríkisráðherra verður ekki að kvenfyrirlitningu fyrir það eitt að þær eru konur.

Björn Þorláksson, þáttastjórnandi á Samstöðinni, birti á Facebook í gær, 7. nóvember, harða gagnrýni á ummæli mín í þættinum Spursmál með Stefáni E. Stefánssyni. Tilefnið var frétt Morgunblaðsins 7. nóvember af samtali okkar. Að mati Björns einkenndust ummælin af biturð og kvenfyrirlitningu. Sjálfur orðaði hann gagnrýni sína þannig:

„Það er akkúrat svona kjaftæði valdasjúkra frekjupunga sem mun valda því að óbreyttu að allir munu hætta að lesa Moggann og enginn mun kjósa Sjálfstæðisflokkinn.“

Screenshot-2026-11-08-at-10.07.14Samtal við Stefán Einar Stefánsson í Spursmálum 6. nóvember 2026 (skjáskot).

Í frétt Morgunblaðsins segir meðal annars frá því að í Spursmálum 6. nóvember hafi ég rifjað upp að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefði sjálf gert lítið úr mikilvægi Evrópumálsins eftir að hún tók við formennsku í Viðreisn. Þar er haft eftir mér:

„Hún sagði að þetta mál væri nú ekkert lengur okkar aðalmál og hún var búin að sparka því svolítið út af pólitíska leikvellinum.“

Síðan hafi annað komið á daginn þegar ríkisstjórnarsamstarfið komst á koppinn í árslok 2024:

„Ég tel að hún hafi nýtt sér, má ég segja, fáfræði Kristrúnar Frostadóttur um söguna og hvernig þetta allt bar að, til þess að koma þessu inn í stjórnarsáttmálann.“

Í fréttinni segir að þetta sé ein af ástæðum þess að ég ákvað að skrifa bókina Þegar Ísland sagði nei. Ég hafi viljað skrásetja atburðarásina og setja hana í sögulegt samhengi.

Ég kynnti mat á pólitískum ákvörðunum og samningsstöðu flokka við stjórnarmyndun. Björn Þorláksson bendir ekki á hvað í þessum orðum feli í sér kvenfyrirlitningu. Þess í stað grípur hann til stóryrða um viðmælendur og spádóma um endalok Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins. Hann leggur ekkert til skynsamlegra umræðna um þau mikilvægu pólitísku þáttaskil sem urðu með atkvæðagreiðslunni 29. ágúst.

Það er skoðun mín að Kristrún Frostadóttir hefði vel getað myndað stjórn sína fyrir tæpum tveimur árum án þess að hafa tímasetta þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður í stjórnarsáttmálanum. Viðreisn var að mínu mati ekki í stöðu til að setja slíka atkvæðagreiðslu sem úrslitaskilyrði fyrir stjórnarsamstarfi. Í bók minni færi ég rök fyrir því mati.

Því síður var nauðsynlegt fyrir Kristrúnu að samþykkja að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni þótt Dagur B. Eggertsson og síðar Þorgerður Katrín krefðust þess. Þar tók forsætisráðherra pólitíska ákvörðun. Eðlilegt er að ræða forsendur hennar og afleiðingar.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð ósigur þeirra sem knúðu hana fram. Aðrir hafa farið mun þyngri orðum en ég um hvernig já-sinnar héldu á málum sínum. Sú gagnrýni hverfur ekki þótt reynt sé að afgreiða umræðuna sem biturð andstæðinga aðildar.

Þegar við Stefán Einar ræddum þetta var ætlun mín að skýra hvers vegna ég teldi Kristrúnu hafa metið stöðuna rangt. Með orðinu „fáfræði“ átti ég við þekkingu hennar á aðdraganda og sögu aðildarmálsins. Orðið er hvassara en „þekkingarskortur“, en gagnrýnin laut að forsendum pólitísks mats hennar. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra verða að sæta gagnrýni á ákvarðanir sínar eins og aðrir stjórnmálamenn.

Björn Þorláksson svarar ekki efnislegri gagnrýni. Hann kýs þess í stað að tala um biturð, kvenfyrirlitningu og valdasjúka frekjupunga. Þau stóryrði breyta engu um pólitíska ábyrgð þeirra sem tóku ákvarðanirnar. Sú ábyrgð er til umræðu, óháð kyni ráðherranna.