Hrópandi þögn Viðreisnar
Hvar er opinbert uppgjör forystu Viðreisnar vegna ósigursins? Hvað telur hún hafa brugðist? Var málstaðurinn ekki sannfærandi? Hvað var jákvætt við tímasetninguna og kosningabaráttuna?
Það er fróðlegt að bera viðbrögð bandarískra repúblikana við afhroði sínu í þingkosningunum saman við þögnina í forystu Viðreisnar um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Ólíkar kosningar og ólíkir flokkar, en spurningin er sú sama: Hvernig bregðast stjórnmálamenn við þegar kjósendur hafna málflutningi þeirra?
Samkvæmt frétt The New York Times 4. nóvember leið ekki nema einn dagur frá ósigri repúblikana þar til JD Vance varaforseti birti ítarlega skýringu á honum. Hann nefndi stríðið við Íran, verðbólgu og óskir kjósenda um breytt samskipti Bandaríkjanna við Ísrael. Þar með beindi hann athyglinni að ákvörðunum og áherslum Donalds Trumps forseta.
Vance hafði þó borið skrif sín undir Trump áður en þau birtust. Forsetinn sagði síðan að mat varaforsetans væri að miklu leyti rétt, þótt hann stæði áfram við ákvörðun sína um að ráðast á Íran. Hér var því ekki um uppreisn gegn forsetanum að ræða. Engu að síður var ósigurinn viðurkenndur og hafin opinber umræða um orsakir hans.
Engin ástæða er til að líta á skrif Vance sem sérstakt merki um pólitískt hugrekki. Hann hefur sjálfur stutt stríðið opinberlega og ber ábyrgð á stefnu stjórnarinnar. Nú hefur hann augljósa hagsmuni af að verja eigin pólitísku framtíð fyrir afleiðingum stefnu forsetans. Það er auðveldara að skýra eftir á hvers vegna kjósendur sneru baki við stjórn en að beita áhrifum sínum innan hennar til að afstýra ósigrinum.
Gagnrýni úr röðum repúblikana beinist einmitt að þessu. Hvers vegna flytur varaforsetinn kosningaskýringu í stað þess að segja hvað stjórnin ætli að gera til að létta undir með heimilunum? Hann var kjörinn til að stjórna, ekki til að gerast álitsgjafi um eigin ríkisstjórn.

Þessi umræða á erindi hingað. Meira en tveir mánuðir eru liðnir frá því að kjósendur höfnuðu því að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að ESB. Niðurstaðan var pólitískt afhroð fyrir Viðreisn, flokkinn sem hefur gert aðildarviðræðurnar að sérstöku baráttumáli sínu.
Þjóðaratkvæðagreiðslan átti rætur að rekja til stjórnarsáttmálans sem kynntur var við myndun ríkisstjórnarinnar 21. desember 2024. Þar var kosið um framgang máls sem hefur verið meginstoð í stefnu Viðreisnar frá stofnun flokksins vorið 2016. Einmitt þess vegna er ábyrgð forystunnar skýr. Kjósendur tóku afstöðu til afmarkaðs máls sem flokkurinn hafði lagt höfuðáherslu á að koma á dagskrá. Þeir sögðu nei.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, lagði í Silfrinu 30. ágúst áherslu á að ríkisstjórnin hefði efnt loforð sitt um þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún varði tímasetninguna og taldi kosningabaráttuna hafa verið jákvæða. Eitt er að efna loforð um það sem segir í stjórnarsáttmála, annað að viðurkenna að efndirnar leiddu til allt annarrar niðurstöðu en stjórnin vildi. Síðar sagði hún að ESB-aðildarumsóknin hefði engan gildistíma og hana ætti ekki að draga til baka.
Hvar er opinbert uppgjör forystunnar vegna ósigursins? Hvað telur hún hafa brugðist? Var málstaðurinn ekki sannfærandi? Hvað var jákvætt við tímasetninguna og kosningabaráttuna?
Forysta stjórnmálaflokks þarf ekki að afneita sannfæringu sinni þótt hún tapi kosningum. Henni ber hins vegar að horfast í augu við niðurstöðuna og skýra hvaða áhrif hún hefur. Að virða úrslit felur meira í sér en að láta hjá líða að leggja sama mál strax aftur fyrir kjósendur.
Viðreisn hefur ríka ástæðu til að óttast að þögnin um afleiðingar tapsins verði sjálf að vitnisburði um viðhorf flokksins til kjósenda. Að leggja áherslu á að loforð um atkvæðagreiðslu hafi verið efnt skýrir ekki hvers vegna þjóðin hafnaði leiðinni sem flokkurinn boðaði.
Kjósendur hafa sagt sitt. Þögn í stað uppgjörs breytir engu um það.