Hetjudáð á hafi úti
Forsætisráðherra mæltist mjög vel þegar hún lýsti því sem gerst hafði og vottaði þeim samúð sem áttu um sárt að binda.
Starfsmenn landhelgisgæslunnar og allir sem komu að björgun áhafnar Jökuls ÞH 299, sem sökk um 100 km út af Austfjörðum rúmlega klukkan 17.00 miðvikudaginn 25. nóvember 2026, unnu hetjudáð. Þess björgunarafreks verður lengi minnst.
Áhöfn þyrlunnar TF-GRO tók ákvörðun um að víkja frá öryggisreglum gæslunnar um að við einnar þyrlu aðgerð mætti ekki fara lengra en 20 sjómílur frá landi. Þyrlustjórinn ákvað að höfðu samráði við forstjóra Landhelgisgæslunnar að halda 60 sjómílur á haf út til að bjarga 17 manna áhöfn Jökuls. Þyrlan var komin á slysstað klukkan 21.15 en eftirlitsflugvélin TF-SIF var komin yfir skipbrotsmennina laust eftir klukkan 20.00.
Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður. Klukkan 23.45 lenti þyrlan á Egilsstöðum. Um borð voru allir 17 skipverjarnir á Jökli. Þrír þeirra voru látnir. Aðrir fengu aðhlynningu heilbrigðisstarfsmanna fyrir austan og síðan í Reykjavík.
Klukkan 9.00 að morgni fimmtudagsins 26. nóvember boðaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum. Auk hennar tóku þar þátt Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Forsætisráðherra mæltist mjög vel þegar hún lýsti því sem gerst hafði og vottaði þeim samúð sem áttu um sárt að binda. Dró ráðherrann ekkert undan í þökkum sínum til allra sem að björguninni komu og fór ekki leynt með aðdáun sína á hugrekki og fagmennsku þeirra sem börðust við náttúruöflin í miklum ham á hafi úti.
Jökull ÞH 299.
Ráðherrarnir tveir fylgdust með aðgerðunum í stjórnstöð gæslunnar við Skógarhlíð. Af orðum þeirra var augljóst að strax frá upphafi sótti sá kvíði að þeim sem þar voru að ef til vill yrði engum bjargað við þær aðstæður sem við blöstu.
Georg Kr. Lárusson sagði frá samtali sínu við þyrlustjórann þegar lagt var á ráðin um þá áhættu sem tekin yrði með einni þyrlu. Nærvera TF-SIF hefði dregið úr áhættunni við að víkja frá 20 sjómílna öryggisreglunni. Áminning lægi ekki í loftinu.
Georg sagði einnig frá samtölum þeirra sem voru í stjórnstöðinni við áhöfnina sem yfirgaf Jökul í flotgöllum og brást rétt við með því að halda hópinn með sameiginlegri björgunarlínu á úthafinu þar sem ölduhæðin var að minnsta kosti sex metrar. Björgunarbátar skipsins komu ekki að neinum notum.
Mátti skilja á Georg og ráðherrunum, sem fylgdust með samtölunum, að fréttirnar af TF-SIF og TF-GRO hefðu eflt björgunarvon skipbrotsmannanna og átt verulegan þátt í að þeim féllust ekki hendur í náttmyrkrinu.
Við munum fá meiri vitneskju um einstaka þætti sjóslyssins og björgunarafreksins. Á sínum tíma var lögð áhersla á að landhelgisgæslan hefði yfir að ráða stórum björgunarþyrlum sem gætu tekið um borð togaraáhöfn í einni ferð. Nú reyndi á gildi þeirrar ákvörðunar.
Með guðs blessun, hugrekki og fagmennsku tókst að bjarga 14 mannslífum við aðstæður sem vöktu ótta um að öll áhöfnin færist.
Við höfum orðið vitni að miklu afreki. Blessuð sé minning þeirra sem fórust.