22.11.2026 10:39

Hetja Kremlar og íslensk tengsl

Þegar allt er þetta haft í huga verður varla sagt að lokun íslenska sendiráðsins í Moskvu hafi rofið öll tengsl Íslands við Pútin-veldið. Gagnvart Pútin hefði Ísland tæpast getað haldið úti öflugri tengilið en Hauki Haukssyni. 

Að sjálfsögðu kemur að því fyrr en síðar að Pútin-veldið verður að engu í Rússlandi. Hvað sem líður stuðningi Xi Jinping og Donalds Trump við Pútin getur hann ekki endalaust haldið áfram að senda tugþúsundir ungra Rússa út í opinn dauðann í stríði sínu gegn Úkraínumönnum. Fórnarkostnaðurinn er of mikill.

Sýnilegt merki um hve hratt hallar nú undan fæti fyrir Pútin er eyðileggingin á Krímbrúnni. Hún hefur verið eitt helsta táknið um stórhug hans og framkvæmdavilja. Nú hefur stór hluti akbrautarinnar hrunið og brak úr brúnni lokað siglingarennunni milli Azovhafs og Svartahafs. Þar með stöðvast ferðir kaupskipa um þessa mikilvægu siglingaleið, meðal annars skipa sem flytja vörur frá höfnum við Don og Volgu og tengjast flutningum allt frá Kaspíahafi. Þetta er ekki aðeins hernaðarlegt áfall fyrir Pútin heldur einnig efnahagslegt. Jafnframt berast fréttir um árásir á rússnesk herskip á Eystrasalti.

Ögranir Rússa í garð Evrópuríkja verða aðeins til þess að þjappa þeim frekar saman eins og sýndi sig á fundi viljugra ríkja til stuðnings Úkraínu sem haldinn var í Berlín á sama tíma og Xi, Pútin og Trump hittust í Shenzhen í Kína. Þar höfnuðu evrópskir leiðtogar hugmyndum um nýja Jalta-skipan þar sem stórveldin skiptu Evrópu í áhrifasvæði. Væntingar vegna þríhliða fundarins í Kína voru meiri en árangurinn þótt alls ekki beri að vanmeta gildi þess að leiðtogar þriggja stærstu kjarnorkuvelda heims hittist og lýsi yfir að enginn geti sigrað í kjarnorkustríði og aldrei megi heyja slíkt stríð (that a nuclear war cannot be won and must never be fought).

Hér lýsa ýmsir stundum yfir áhyggjum vegna þess að skorið var á viðskipti við Rússa vegna innlimunar Pútins á Krímskaga árið 2014 og síðan að sendiráði Íslands í Moskvu skyldi lokað 1. ágúst 2023 og Rússum gert að fjarlægja sendiherra sinn héðan. Rússnesk stjórnvöld boðuðu að „and-rússneskum aðgerðum ráðamanna í Reykjavík“ yrði „óhjákvæmilega svarað“.

Þessar hótanir frá Moskvu fara fyrir brjóstið á einhverjum en á þeim rúmu þremur árum sem síðan eru liðin bendir ekkert til þess að óvild Kremlverja í garð Íslands eða Íslendinga hafi aukist vegna þessara ákvarðana. Þær koma að minnsta kosti ekki í veg fyrir að Íslendingur í Moskvu hafi verið heiðraður sem ein af „hetjum Kremlar“ eins og sagt var frá í fréttaskýringu Gunnlaugs Snæs Ólafssonar í Morgunblaðinu laugardaginn 21. nóvember.

Screenshot-2026-11-22-at-10.36.29

Skjámynd úr fréttaskýringu Morgunblaðsins 21. nóvember 2026,

Þar segir að Haukur Hauksson, fréttaritari Útvarps Sögu í Moskvu, hafi farið í boðsferðir rússneska hersins til hernuminna svæða í Úkraínu, komið fram í rússneska áróðursmiðlinum RIA FAN, sem tengdist Jevgení Prígosjín, stofnanda Wagner-málaliðahersins, og verið heiðraður af rússneskum stjórnvöldum fyrir umfjöllun sína um stríðið. Í desember 2023 var hann meðal fimm erlendra blaðamanna sem hlutu viðurkenningu rússneskrar ríkisstofnunar undir yfirskriftinni „Hetjurnar okkar“ fyrir svonefnda óhlutdræga umfjöllun um „sérstöku hernaðaraðgerðina“. Í Rússlandi getur það hins vegar varðað allt að 15 ára fangelsi að flytja fréttir sem ganga gegn opinberri frásögn stjórnvalda af stríðinu.

Í fréttaskýringunni er einnig rifjað upp að Haukur hafi á blaðamannafundi Pútins árið 2020 lýst því yfir að erlendir fréttaritarar elskuðu Rússland af öllu hjarta og kvartað undan því að vestrænir fjölmiðlar og stjórnvöld, þar á meðal íslensk, héldu uppi persónulegu stríði gegn forsetanum. Haukur hefur jafnframt kallað fjöldamorð rússneskra hermanna á óbreyttum borgurum í Bútsja „algjöra fölsun“ og stendur enn við þá fullyrðingu þrátt fyrir rannsóknir Sameinuðu þjóðanna. Hann hafnar því að hafa starfað fyrir RIA FAN og segist hafa hent viðurkenningarskjali rússneskra stjórnvalda í ruslið.

Þegar allt er þetta haft í huga verður varla sagt að lokun íslenska sendiráðsins í Moskvu hafi rofið öll tengsl Íslands við Pútin-veldið. Gagnvart Pútin hefði Ísland tæpast getað haldið úti öflugri tengilið en Hauki Haukssyni. Hann hefur sjálfur lýst aðdáun sinni á Rússlandi við forsetann og hlotið opinbera viðurkenningu stjórnvalda fyrir fréttaflutning sinn.

En hvað verður um Hauk eftir Pútin þegar íslenska sendiráðið verður opnað að nýju? Mun hann þá finna sér nýtt hlutverk eða hverfa af sjónarsviðinu með þeim valdhöfum sem hafa talið hann meðal hetja sinna?