4.3.2026 10:08

Grásleppan opnar ESB-málið

Eftir að grásleppumálið kom úr atvinnuveganefndinni tilkynnti utanríkisráðherra að þingsályktun um áframhaldandi ESB-aðlögunarviðræður yrði kynnt á ríkisstjórnarfundi næsta föstudag.

Nú er komið að atkvæðagreiðslu á alþingi um grásleppufrumvarp Flokks fólksins undir forystu Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, formanns atvinnuveganefndar þingsins. Forseti alþingis hefur veitt málinu forgang og engir stjórnarþingmenn hafa tekið til máls í því. Þögn hefur einnig ríkt um það í fréttatímum ríkisútvarpsins þótt allur gangur málsins sýni að mun meira býr að baki en ætla má af efni málsins við fyrstu sýn.

Sigurjón Þórðarson lét af formennsku í atvinnuveganefnd þegar flokksbróðir hans Ragnar Þór Ingólfsson varð ráðherra. Sigurjón varð þá formaður fjárlaganefndar en Lilja Rafney tók við atvinnuveganefndinni. Lilja Rafney var varaþingmaður Vinstri grænna þar til í júní 2024 þegar hún sagði sig úr flokknum eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Taldi hún VG svíkja eigin sjávarútvegsstefnu en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, flokkssystir hennar í VG, var þá sjávarútvegsráðherra.

1540031Lilja Rafney Magnúsdóttir (mynd: mbl.is).

Inga Sæland setti þumalskrúfur á Kristrúnu Frostadóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur vegna grásleppumálsins með þá hótun í bakhöndinni að Lilja Rafney og Sigurjón myndu segja skilið við stjórnarasamstarfið ef þau hefðu ekki sitt fram, Lilja Rafney hefði þegar sýnt það sumarið 2024 að grásleppuveiðar réðu afstöðu hennar til stjórnmála og flokka. Sömu sögu væri að segja um Sigurjón, hann fylgdi ekki ríkisstjórninni að máli nema reglur um grásleppuveiði væru honum að skapi.

Það er til marks um reynslu- eða áhugaleysi á fjölmiðlum að setja þetta mál ekki í stórt pólitískt samhengi. Hvarvetna þar sem um lifandi pólitíska fréttamennsku er að ræða hefði það verið gert.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í atvinnuveganefnd þingsins, Jón Gunnarsson, hefur verið óþreytandi við að benda á galla málsins en mikið álitamál er hvort það stenst stjórnarskrána. Lilja Rafney hefur með dyggri aðstoð þingmanna Samfylkingar og Viðreisnar í atvinnuveganefnd staðið gegn óskum minni hlutans og meiri hlutinn afturkallaði beiðni um úttekt Lagastofnunar Háskóla Íslands á lagalegum grundvelli málsins.

Í ræðu á alþingi þriðjudaginn 3. mars sagði Jón Gunnarsson að þrátt fyrir ítrekaðar fullyrðingar meiri hluta atvinnuveganefndar um að lögfræðingar hefðu komið að vinnslu frumvarps meiri hlutans hefði ekki verið skýrt frá nöfnum þeirra, þau væru leyndarmál! Þá sagði Jón að það vekti auðvitað athygli að aðeins einn fjölmiðill sem hann myndi eftir hefði fjallað um málið, Morgunblaðið. Hann sagði að samtöl við þingmenn bentu til þess að þetta væri allt gert til að halda ríkisstjórnarsamstarfinu saman. „Sú saga gengur um salinn að þingmenn Flokks fólksins hafi hótað því að draga úr stuðningi sínum við Evrópuleiðangur ríkisstjórnarflokkanna nema þetta verði samþykkt. Það er orðrómurinn sem gengur,“ sagði Jón.

Eftir að grásleppumálið kom úr atvinnuveganefndinni tilkynnti utanríkisráðherra að þingsályktun um áframhaldandi ESB-aðlögunarviðræður yrði kynnt á ríkisstjórnarfundi næsta föstudag.

Grásleppa er veidd mjög nálægt landi. Hún er veidd á grunnsævi á vorin þegar hún gengur í land til að hrygna, oft á 10–30 metra dýpi. Það er því líklegt að ákvarðanir um veiðar á grásleppu verði áfram í höndum Flokks fólksins nái áform ríkisstjórnarinnar um aðild að ESB fram að ganga. Kristrún Frostadóttir verst þó allra frétta um samningsmarkmiðin í Morgunblaðinu í dag.