Grænlendingar ræða varnir
Grænlendingar líti á undirskrift eigin stjórnarleiðtoga við hlið leiðtoga Danmerkur og Bandaríkjanna sem staðfestingu á að samið sé við þá sjálfa.
Nýi varnarsamningurinn milli Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna er nú til meðferðar í utanríkis- og öryggismálanefnd grænlenska þingsins, Inatsisartut. Fyrsta umræða fór fram 12. október og önnur er fyrirhuguð 3. nóvember. Samningurinn hefur því ekki enn hlotið endanlega samþykkt þingsins.
Af umræðunum má ráða að pólitískur stuðningur sé nægur til samþykktar. Flokkarnir leggja þó mismunandi áherslur á framkvæmdina. Inuit Ataqatigiit vill árlega upplýsingagjöf til þingsins um framgang samningsins. Siumut gagnrýnir lokað samningaferli og kallar eftir eftirliti og eftirfylgni. Naleraq, flokkur Peles Brobergs, gagnrýnir einkum að Bandaríkjamönnum séu veitt víðtæk réttindi án þess að Grænlendingum séu tryggðar fastar greiðslur á móti.
Hér höfum við Íslendingar rætt sjónarmið eins og þau sem Naleraq kynnir og lýst þeim sem „aronsku“. Svar Mútes B. Egede utanríkisráðherra Grænlands er samhljóða afstöðu íslenskra stjórnvalda. Í samtali sem blaðið Sermitsiaq birti að morgni 12. október, áður en þingumræðan hófst, hafnaði Egede því að fjárkröfur ættu að vera útgangspunktur varnarsamstarfsins.
Rök hans eru skýr: NATO-ríki aðstoða hvert annað til að efla sameiginlegar varnir. Almennt sé ekki gengið út frá því að hernaðarlega öflugt bandalagsríki greiði öðru aðildarríki fyrir að koma þar upp herstöð. Grænlendingar beri sjálfir ábyrgð á vörnum almennra borgara. Samstarfið snúist um gagnkvæmar varnir og verði ekki metið eftir beinum fjárhagslegum ágóða einum.
Egede bendir jafnframt á að öryggisástandið hafi versnað, einnig á norðurslóðum. Aukið öryggi Grænlands sé sjálfstæður ávinningur. Önnur ríki greiði fyrir að verja bæði sig og Grænlendinga. Hann útilokar þó ekki efnahagslegan ávinning: Grænlensk fyrirtæki eigi að njóta forgangs við verkefni vegna hernaðaruppbyggingar.
Við undirritun Grænlandssamningsins í New York 22. september 2026.
Martin Breum, sérfræðingur í málefnum Grænlands, túlkar þessa afstöðu í grein á Altinget.dk sunnudaginn 25. október sem merki um söguleg þáttaskil. Grænlensk stjórnvöld hafi öðlast aukinn skilning á nauðsyn varna og vilji taka virkari þátt í NATO-samstarfinu.
Breum tengir þetta auknu pólitísku sjálfstrausti. Grænlendingar líti á undirskrift eigin stjórnarleiðtoga við hlið leiðtoga Danmerkur og Bandaríkjanna sem staðfestingu á að samið sé við þá sjálfa. Formleg valdaskipting innan danska ríkisins hafi ekki breyst, en vægi ráðamanna í Nuuk hafi aukist.
Þarna fara saman krafa um meiri áhrif og viðurkenning á nauðsyn sameiginlegra varna. Ávinningur varnarsamstarfs verður fyrst metinn eftir því hvort það tryggi öryggi þjóðarinnar. Vilji menn hafa áhrif á eigin framtíð verða þeir jafnframt að taka afstöðu til þess hvernig landið verði varið.
Umræðurnar í Grænlandi um þessi mál eiga beint erindi hingað og er ánægjulegt að sjá að landstjórn Grænlands tekur sömu afstöðu og hér hefur ráðið.