Geðþóttastjórn Kristrúnar
Að embættismenn fái skömm í hattinn fyrir það sýnir að geðþótti ræður meiru en lög hjá stjórnarherrunum hvort heldur fjármála- eða útlendingalög eiga í hlut.
Hér var í gær spurt í lok pistils hvernig Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tæki á því að fjármála- og efnahagsráðuneytið teldi Ingu Sæland félagsmálaráðherra brjóta gegn fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar með frumvarpi sínu um tengingu greiðslu almannatrygginga við launavísitölu.
Svarið lá fyrir á vefsíðunni ruv.is sama dag og spurt var (3. júní). Í fréttinni á ruv.is segir að forsætisráðherra sjái ekki ástæðu til að gera breytingar á frumvarpi Ingu „þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálaráðuneytisins“.
Rætt er við Kristrúnu sem segir: „Þetta kallast pólitísk forgangsröðun og ákvörðun. Þessu fylgir fjármögnun. Þessu fylgir því líka áætlun um að vera með hallalaus fjárlög 2027 og fjármálaráðuneytið á alveg að vita það.“
Ruv.is 3. júní 2025.
Svarið er til marks um að forsætisráðherra hafi faglega ráðgjöf þeirra sem bera ábyrgð á ríkisfjármálum að engu og snuprar samtímis þá sem benda á hættuna af frumvarpi Ingu – þeir eigi að vita betur. Lög skylda þá hins vegar til viðvarana.
„Þetta kallast pólitísk forgangsröðun,“ segir Kristrún, það er með öðrum orðum samkomulag hennar við Ingu Sæland sem gildir en ekki lagatextinn.
Flokksbróðir Kristrúnar, Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar alþingis, bar einnig fyrir sig eigin pólitíska forgangsröðun þegar hann rökstuddi þá tilkynningu til forstjóra útlendingastofnunar að hann ætlaði að beita sér fyrir því að einn af 19 umsækjendum um ríkisborgararétt sem eru á biðlista um brottvísun fengi réttinn með lögum frá alþingi. Gaf hann þannig til kynna að sín vegna mætti senda hina 18 úr landi.
Mismununin sem felst í afstöðu Víðis stenst ekki lög fyrir utan að með afskiptum sínum af framkvæmd útlendingamála fer formaður þingnefndarinnar gegn þrískiptingu valdsins. Ákvörðunin um brottvísun hefur fengið lögbundna afgreiðslu. Ef vilji þingmanna á að ráða hverjir eru fjarlægðir af biðlista um brottvísun, hvað með þá sem eru á biðlistum eftir læknisaðgerð? Eða eiga eftir að taka út refsingu í fangelsi?
Inga Sæland er að sjálfsögðu kampakát yfir að forsætisráðherra skipar sér í lið með henni gegn Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Hún gefur ekkert fyrir minnisblaðið frá ráðuneyti Daða Más enda standi það gegn „einbeittum vilja ríkisstjórnarinnar“. Þetta hafi verið helsta ástæðan fyrir því að Flokkur fólksins settist í þessa ríkisstjórn. Segir Inga við Morgunblaðið 4. júní að einhugur sé um þetta mál sitt í ríkisstjórninni.
Þjónkun Daða Más Kristóferssonar við Flokk fólksins hefur verið augljós frá því að hann tók að sér að verja alla fjárstyrkina til flokksins og sjá til þess að Inga fengi allt sem hún heimtaði í því efni. Þakkir Ingu birtast síðan nú í því að með stuðningi forsætisráðherra gengst hún nú upp í því að gera lítið úr fjármálaráðherranum og embættismönnum hans. Hún viti mun betur en þeir hvað ríkissjóði sé fyrir bestu.
Forsætisráðherra og Inga virðast gleyma því að embættismenn fjármálaráðuneytisins vísuðu til laga og virðingar fyrir þeim í umsögn sinni. Að þeir fái skömm í hattinn fyrir það sýnir að geðþótti ræður meiru en lög hjá stjórnarherrunum hvort heldur fjármála- eða útlendingalög eiga í hlut.