Frá sviðsmynd til veruleika
Kjarni bókarinnar er miklu óþægilegri: Hvað gerist ef Rússar gera takmarkaða innrás í NATO-ríki og telja sig geta skapað næga óvissu innan bandalagsins til þess að það hiki við að svara?
Í bókinni Ef Rússar sigra eftir þýska stjórnmálafræðinginn og prófessorinn Carlo Masala, sem ég þýddi á íslensku, er ekki lýst allsherjarinnrás Rússa í Evrópu. Kjarni bókarinnar er miklu óþægilegri: Hvað gerist ef Rússar gera takmarkaða innrás í NATO-ríki og telja sig geta skapað næga óvissu innan bandalagsins til þess að það hiki við að svara?
Vægi þessarar spurningar vex jafnt og þétt.
Í Morgunblaðinu 23. september var sagt frá sviðsmynd bandarísku hugveitunnar Institute for the Study of War, ISW, um hugsanlega rússneska aðgerð gegn Narva í Eistlandi. Rússneskar sérsveitir tækju lykilstaði, stofnað yrði svonefnt Alþýðulýðveldi Narva og Rússar neituðu því að hafa ráðist inn í Eistland. Drónar og upplýsingaóreiða fylgdu í kjölfarið. Markmiðið væri ekki að leggja Eistland undir sig heldur að láta reyna á NATO og 5. grein Atlantshafssáttmálans.
ISW leggur áherslu á að þetta sé sviðsmynd, ekki spá. Gagnrýnendur hennar benda jafnframt á að hún geri of lítið úr viðbúnaði Eista og bandamanna þeirra. Jamie Murray, undirhershöfðingi Breta í Eistlandi, segir breska herliðið fara beint í bardaga ef þörf krefur. „Narva er kannski á landamærum Eistlands og Rússlands, en ég lít á þetta sem landamæri NATO líka,“ segir hann.
Nú bætist nýtt mat dönsku leyniþjónustu hersins, Forsvarets Efterretningstjeneste, FE, við þessa mynd. Það var birt í dag, 24. september. FE telur að Rússar muni á næstu mánuðum herða fjölþáttahernað sinn gegn NATO og Vesturlöndum. Enn mikilvægara í þessu samhengi er að FE telur nú „litla en vaxandi hættu“ á takmörkuðum hernaðarárásum gegn einu eða fleiri NATO-ríkjum sem eiga landamæri að Rússlandi, þótt stríðið í Úkraínu haldi áfram.
FE nefnir meðal annars stakar árásir með langdrægum drónum eða eldflaugum gegn öllu sem tengist stuðningi við Úkraínu. Jafnframt er varað við skemmdarverkum og eyðileggjandi netárásum.
Þarna mætast bók Masala, sviðsmynd ISW og mat dönsku leyniþjónustunnar. Sameiginlega spurningin er ekki hvort Rússland hafi hernaðarmátt til að sigra NATO í allsherjarstríði. Hún er hvort rússnesk stjórnvöld kunni einhvern tíma að komast að þeirri niðurstöðu að takmörkuð aðgerð skapi pólitíska óvissu og hik innan bandalagsins.
Þess vegna skiptir fælingarmátturinn mestu. Hann felst ekki aðeins í fjölda hermanna, flugvéla og eldflauga heldur í því að enginn vafi ríki um hvað gerist þegar ráðist er á bandalagsríki.
Þetta er líka kjarninn í viðvörun Masala. Hættulegasta augnablikið verður ekki endilega þegar Rússar telja sig nógu sterka til að sigra NATO. Það verður þegar þeir telja sig geta tekið áhættuna af því að reyna á samstöðu þess.