Fögnuður í NY – ófriður á alþingi
Alþingi Íslendinga er þannig í hers höndum þegar forsætisráðherra og utanríkisráðherra leggja áherslu á frið, mannréttindi og virðingu í samskiptum þjóða í New York.
Fyrir för Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til New York mátti ætla af málflutningi þeirra að þar gæfist gott tækifæri til að koma skýrum skilaboðum til Donalds Trump vegna alræmda kortsins hans.
Kristrún hitti Trump. Bandaríkjaforseti heldur hefðbundna móttöku fyrir leiðtoga í tengslum við allsherjarþing SÞ í New York. Hann heilsar gestum og skiptist á nokkrum orðum við þá. Kristrún lýsir þessu sjálf þannig að þar gefist tækifæri til að hitta forsetann og „skiptast á nótum“. Kortið bar ekki á góma.
Þess í stað óskaði Kristrún Trump til hamingju með Grænlandssamkomulagið. Hún sagði þau einnig hafa rætt samskipti Íslands og Bandaríkjanna og „sammælst um að setja nokkur mál í ferli og vinna að“. Hvaða mál? Það hefur ekki verið upplýst.
Athygli vekur hve tónninn hefur breyst. Eftir Grænlandssamkomulagið talar forsætisráðherra um „stóran dag fyrir Ísland“, gott og langt samband við Bandaríkin og nauðsyn þess að horfa fram á veginn.

Kristrún kaus svo að birta mynd af sér á formlegum tvíhliða fundi með Sabah Khaled Al-Hamad Al-Sabah, krónprinsi Kúveit. Þar ræddu þau meðal annars ástandið í Mið-Austurlöndum og fjárfestingar á Íslandi, til dæmis í nýju innviðafélagi ríkisins.
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa jafnframt lagt áherslu á að í New York beiti þær rödd Íslands í þágu friðar, mannréttinda og alþjóðalaga. Því ber að fagna.
En hvað gerðist heima á meðan?
Í fjarveru þeirra gegndi Inga Sæland embætti forsætisráðherra. Þá ákvað ríkisstjórnin að leggja fram frumvarp um að stöðva verkfall flugvirkja. Grípa átti til eins harkalegasta úrræðis sem stjórnvöld hafa gagnvart vinnudeilu. Til lagasetningarinnar kom þó ekki því flugvirkjar aflýstu verkfallinu eftir að samkomulag náðist um nýja samningalotu. Kristrún sagðist síðar vera miður sín yfir frumvarpinu.
Í gær, 24. september, sauð síðan upp úr á alþingi.
Þar var Inga Sæland spurð um aðdraganda afsagnar flokksbróður síns og varaformanns, Guðmundar Inga Kristinssonar, úr embætti mennta- og barnamálaráðherra. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sakaði hana um að hafa ekki sagt satt frá málinu og sagði fyrirliggjandi gögn sýna að þrýst hefði verið á Guðmund Inga að víkja.
Inga sagðist bera ábyrgð á sínum ákvörðunum en að hana og Guðmund Inga greindi á um aðdraganda málsins. Síðan hitnaði henni svo í hamsi að hún sagði formanni Sjálfstæðisflokksins nær að „stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum“. Hún strunsaði úr ræðustól og nærstaddir heyrðu hana taka sér orðið „skítapakk“ í munn.
Forseta alþingis ber að standa vörð um virðingu þingsins og þingmanna. Þórunn Sveinbjarnardóttir á þó erfitt með að setja ofan í við Ingu vegna orðbragðsins. Sjálf rauk Þórunn 5. desember 2025 úr þingsal eftir að hafa gert hlé á þingfundi og heyrðist segja: „Ég er komin með nóg. Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk.“ Þórunn baðst síðar afsökunar á orðunum.
Alþingi Íslendinga er þannig í hers höndum þegar forsætisráðherra og utanríkisráðherra leggja áherslu á frið, mannréttindi og virðingu í samskiptum þjóða í New York.
Það er gott og blessað að stuðla að heimsfriði í New York. Friður innanlands og virðing í íslenskum stjórnmálum ættu þó að vera í forgangi.