15.4.2026 12:04

Flokkur fína fólksins

„Við töldum það ekki framboðinu til framdráttar að vera í þessum félagsskap sem þarna var,“ segir Heimir Már Pétursson í Morgunblaðinu í dag (15. apríl). Það er augljóst að Heimir Már lítur núna á sig sem yfirkaptein í Flokki fína fólksins.

Saga Flokks fólksins í ríkisstjórn verður sífellt skrautlegri. Undarlegheitin hófust þegar maður gekk undir manns hönd á fyrstu vikum stjórnarsamstarfsins til að losa Ingu Sæland og flokkinn úr fjárhagsvanda vegna slóðaskapar við skýrslugerð til Skattsins vegna opinberra styrkja til stjórnmálaflokka.

Við blasti að krafa um þetta fjárhagslega uppgjör var í óbirta hluta stjórnarsáttmálans, annars hefði nýi fjármálaráðherrann Daði Már Kristófersson, embættismaður í Viðreisn og varaformaður þess flokks, varla gengið fram með þeim hætti sem hann gerði.

Flokkur fólksins lenti í svo miklum ólgusjó að Inga réð ekki neitt við neitt og þá sendi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Heimi Má Pétursson, fyrrv. frambjóðanda til varaformanns í Samfylkingunni, sem yfirkaptein til Ingu. Fékk hann alla hugsanlega titla til að tryggja völd hans. Hann er framkvæmdastjóri, upplýsingastjóri og nú kosningastjóri vegna sveitarstjórnarkosninganna.

Nú hefur Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og varaformaður Flokks fólksins, sagt skilið við flokkinn. Inga skilur ekki neitt í því þegar fráfarandi varaformaður hennar og samstarfsmaður í tveggja manna þingflokki árum saman segist hverfa á braut vegna persónulegra samskipta innan flokksins. Þingmenn flokksins vita að eigin sögn ekkert um tilefni þessarar stórpólitísku ákvörðunar varaformannsins. Í Silfrinu mánudaginn 13. apríl tók Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hins vegar til orða á þann veg að hún vissi eitthvað um aðdraganda ákvörðunar Guðmundar Inga Kristinssonar.

Líklegt er að Heimir Már Pétursson yfirkapteinn hafi sýnt Guðmundi Inga Kristinssyni slíkan yfirgang að hann sá sér þann kost vænstan að fá frelsi utan flokksins. Hugsanlega hefur Heimir Már talið það skaða bæði ímynd Flokks fólksins og ríkisstjórnarinnar að GI Kristinsson sæti í forystu eins stjórnarflokkanna.

1564769Guðmundur Ingi Þóroddsson (mynd: mbl/Árni Sæberg).

Ég skammstafa nafn fyrrv. varaformannsins á þennan veg því að nú víkur sögunni að Guðmundi Inga Þóroddssyni, oddvita framboðslista Flokks fólksins í Reykjavík. GI Þóroddsson er formaður gamalgróins félags jafnaðarmanna, Rósarinnar, og tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík nú í vetur en náði ekki bindandi kosningu og hlaut ekki náð fyrir augum uppstillingarnefndar þrátt fyrir mikinn þrýsting, opinberlega og á bak við tjöldin.

Yfirkapteinn Flokks fólksins brá sér í hlutverk uppstillingarnefndar og leysti brýnan vanda Kristrúnar og Samfylkingarinnar með því að setja GI Þóroddsson í efsta sætið á lista Flokks fólksins í Reykjavík.

Í Silfrinu 13. apríl sátu oddvitar frá þremur listum í Reykjavík, Góðan daginn-framboðinu, Okkar borg og Sósíalistum. Fram kom að oddviti Flokks fólksins kæmi ekki. GI Þóroddsson varð þrumu lostinn þegar hann heyrði þetta.

„Við töldum það ekki framboðinu til framdráttar að vera í þessum félagsskap sem þarna var,“ segir Heimir Már Pétursson í Morgunblaðinu í dag (15. apríl). Það er augljóst að Heimir Már lítur núna á sig sem yfirkaptein í Flokki fína fólksins.