10.10.2026 10:33

Fjórða þyrlan

Því má velta fyrir sér í ljósi orða dómsmálaráðherra hvort Þorbjörg Sigríður hafi yfirleitt nokkra aðkomu að ráðstöfun fjárins að baki 1,5% fyrirheitinu.

Það lá fyrir árið 2006, fyrir 20 árum, þegar varnarliðið hvarf úr landi að hér yrðu að vera fjórar þyrlur til taks til að fylla skarðið sem myndaðist við brottför þyrlusveitar liðsins. Hún var óaðskiljanlegur hluti orrustuflugsveitarinnar. Fjórar þyrlur undir íslenskri stjórn yrði að verða markmið þeirra sem vildu tryggja hér 100% öryggisþjónustu með þyrlum.

Þetta markmið hefur ekki náðst enn og nú í vikunni kom upp sú staða að bilun varð í einu þyrlu landhelgisgæslunnar (LHG) sem var til taks og því liðu nokkrar klukkustundir án þess að nokkur þyrla gæslunnar væri í lagi.

Í Morgunblaðinu í dag (10. október) segir Ásgeir Erlendsson samskiptastjóri LHG að þessi staða sé alls ekki algeng og strax hafi verið ráðist í að koma þyrlunni aftur í gagnið; hún hafi orðið flughæf nokkrum klukkustundum síðar.

Ásgeir segir að með þriggja þyrlna flota sé gert ráð fyrir að alla jafna sé ein þyrla í langtímaviðhaldi og kappkostað sé að hafa tvær þyrlur til taks stærstan hluta ársins. Með þremur þyrlum sé þó ekki hægt að tryggja að tvær séu til taks allt árið og lítinn hluta ársins sé þá á vaktinni.

1477098Gæsluþyrlan TF-EIR (mbl.is/Eggert Jóhannesson).

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að nú standi yfir greining á framtíðarflota LHG með tilliti til þess að tryggja þyrluflotann áfram þegar gildandi leigutími rennur sitt skeið.

Slíkar greiningar eru síður en svo nýmæli en því miður gerist lítið að þeim loknum. Í blaðinu er minnt á að ríkisstjórnin hafi skuldbundið sig til að stefna að því að 1,5% af landsframleiðslu renni til varnartengdra verkefna og innviða fyrir 2035. Spyr blaðið dómsmálaráðherra: Er ekki hægt að nýta hluta þess fjármagns til þyrlukaupa?

Ráðherrann segir að unnið sé að því „að skilgreina hvað þarna er undir“. Hún segir jafnframt að sér finnist „augljóst“ að aukin útgjöld til LHG „falli undir fjárfestingar í samræmi við 1,5% af landsframleiðslu í varnartengd verkefni“.

Hér er vikið að grunnþætti í skyldum íslenskra stjórnvalda þegar kemur að því að tryggja öryggi til lands og sjávar og ráðherrann sem ber ábyrgð á málaflokknum virðist ekki hafa neitt annað um fjárveitingar til hans að segja en að unnið sé að „skilgreiningum“ bæði á þyrluþörf og fjárveitingum.

Þetta er í raun viðurkenning á úrræða- ef ekki stefnuleysi. Síðan er farið með það sem ríkisleyndarmál hvernig ná skuli 1,5% markmiðinu. Til þessa hefur verið valin sú leið að breyta heiti bókhaldslykla til að telja mönnum hjá NATO og hér trú um að meira fé renni til varnartengdra verkefna en áður. Það fjölgar ekki þyrlum með slíkum loftfimleikum.

Því má velta fyrir sér í ljósi orða dómsmálaráðherra hvort Þorbjörg Sigríður hafi yfirleitt nokkra aðkomu að ráðstöfun fjárins að baki 1,5% fyrirheitinu. Af fréttum má ráða að flokksformaður hennar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, telji peningana á sínu forræði og ráðuneyti hennar eigi að ákveða hvert þeir renni.

Fjórða þyrlan er líklega ekki forgangsverkefni í utanríkisráðuneytinu frekar en hjá ríkisstjórninni. Niðurstöður „skilgreininga“ um þessi mál eru ekki leyndarmál. Þjóðin öll verður að fá vitneskju um þennan öryggisþátt.