12.9.2026 10:50

ESB-tengsl Viðreisnar

Enginn var í nánara samstarfi við stækkunardeild ESB og systurflokk í Evrópu í kosningabaráttunni en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Í reiðiræðu sinni á alþingi vegna úrslita þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst hreytti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra því í þá sem sögðu nei að þeir hefðu gert það til að gleðja Marine Le Pen í Frakklandi, Nigel Farage í Bretlandi og forystumenn AfD-flokksins í Þýskalandi.

Le Pen og Farage eru leiðtogar flokka sem gagnrýna ESB og sama verður sagt um AfD-flokkinn sem vann stórsigur 6. september þegar kosið var til landsþings í Saxlandi-Anhalt með yfir 40% atkvæða. Marine Le Pen þykir sigurstrangleg í frönsku forsetakosningunum vorið 2027.

Þorgerður Katrín lýsti fyrirlitningu sinni án þess að nefna nokkurt dæmi um tengsl íslensks stjórnmálaflokks við einhvern þeirra þriggja flokka sem hún nefndi. Ekki er neitt sem styður þá skoðun að Le Pen, Farage eða AfD hafi lagt nokkrum flokki eða hreyfingu lið í kosningabaráttunni. Að Le Pen og Farage fögnuðu niðurstöðunni hér var til heimabrúks. Úrslitin sýndu að vel menntuð og auðug þjóð vildi ekki inn í ESB. Bandaríkjastjórn fagnaði niðurstöðunni einnig í sérstakri yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins í Washington.

Moldviðrið sem Þorgerður Katrín reynir að þyrla upp með því að lesa frásögn af símtali Trumps við Bjarna Benediktsson 26. nóvember 2024 á fundi utanríkismálanefndar alþingis 31. ágúst 2026 til að skýra afstöðu sína til atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst sýnir að uppgjöfin er algjör þótt áfram sé talað digurbarkalega.

Enginn var í nánara samstarfi við stækkunardeild ESB og systurflokk í Evrópu í kosningabaráttunni en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Í samráði við hana var það kokkað upp 15. janúar 2025 í Brussel að Ísland væri áfram umsóknarríki.

Guy-Verhofstadt-scaledGuy Verhofstadt á landsþingi Viðreisnar september 2025 (mynd Viðreisn).

Viðreisn er hluti frjálslyndu ALDE-flokkanna í Evrópu með þingflokkinn Renew Europe á ESB-þinginu. Ákafasti hugsjóna- og stefnusmiður ALDE er Guy Verhofstadt sem berst fyrir evrópsku sambandsríki. Hann var heiðursgestur á landsþingi Viðreisnar fyrir tveimur árum. Haustið 2025 beitti Renew Europe sér fyrir ályktun á ESB-þinginu um norðurslóðir og stuðningi við ESB-aðild Íslands. Í júní 2026 birti þingflokksformaður Renew Europe grein í The Guardian um að taka yrði vel á móti Íslendingum í ESB og sýna fiskveiðihagsmunum þeirra skilning. Emmanuel Macron Frakklandsforseti er öflugasti pólitíski bakhjarl Renew Europe og hann sendi hingað í sumar utanríkisráðherra sinn til að boða ESB-fagnaðarerindið.

Þeir sem fara hamförum vegna erlendrar íhlutunar í baráttu liðinna mánaða líta fram hjá þessu. Hefur nokkru sinni verið leitast við að greina þessi tengsl á ríkisútvarpinu sem fer nú hamförum vegna símtals Trumps 24. nóvember 2024 sem utanríkisráðherra ákvað að þegja yfir fram yfir 29. ágúst 2026? Hvers vegna?

Marta Kos stækkunarstjóri ESB sagði á Írlandi 4. september að bandaríska MAGA-hreyfingin hefði mótað viðhorf íslenskra kjósenda í garð ESB. Engin sönnun er fyrir þessu en með áburðinum vill Kos, eins og Þorgerður Katrín, gera lítið úr þeim sem sögðu nei.

Engar fréttir eru af því að sendiherra ESB á Íslandi hafi verið kallaður á teppið í utanríkisráðuneytinu. Það verður ekki gert. Ef til vill er þessi villukenning um MAGA og úrslitin komin þaðan til samstarfsmannanna í stækkunardeildinni.