30.9.2026 13:34

ESA ýtir við alþingi

Íslenska ríkið hefur þegar viðurkennt að íslensk lög fullnægi ekki skuldbindingunni sem Ísland tók á sig við gerð EES-samningsins. Alþingi ber að horfast í augu við það og leysa vandann með skýrum íslenskum lögum.

Í frétt á mbl.is að morgni 30. september segir að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hafi ákveðið að höfða samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn. ESA telur að íslensk lög tryggi ekki með fullnægjandi hætti að EES-reglur sem innleiddar hafa verið hér á landi haldi gildi sínu þegar þær rekast á aðrar reglur íslensks réttar.

Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að ESA grípi til þessa úrræðis. Stofnunin hefur lengi gert athugasemdir við íslensku framkvæmdina og íslensk stjórnvöld hafa árum saman vitað að ESA telur 3. gr. EES-laganna frá 1993 ekki fullnægja þeirri skuldbindingu sem felst í bókun 35.

Hér er ekki aðeins um fræðilegan lögfræðilegan ágreining að ræða. Þetta kom skýrt fram í nýlegum dómi Hæstaréttar vegna greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Samkvæmt íslenskum lögum hafði við útreikning greiðslna ekki verið tekið tillit til starfstíma og launa í Danmörku með þeim hætti sem EES-reglur kröfðust. Konan fékk því aðeins lágmarksgreiðslur sem voru talsvert lægri en þær hefðu átt að vera. Í nýjum dómi var íslenska ríkið dæmt skaðabótaskylt vegna þess að EES-reglurnar höfðu ekki verið innleiddar með fullnægjandi hætti.

Í fréttinni á mbl.is er haft eftir Arne Røksund, forseta ESA: „ESA hefur lengi átt í samskiptum við íslensk stjórnvöld um bókun 35.“ Einstaklingar og fyrirtæki þurfi að geta treyst á réttindi sín samkvæmt EES-samningnum og því hafi EFTA-dómstóllinn nú verið beðinn að úrskurða hvort Ísland hafi uppfyllt skyldur sínar.

Screenshot-2026-09-30-at-13.33.17

Við sem unnum frá ágúst 2018 til september 2019 að skýrslu um EES-samstarfið í umboði Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra tókum ekki afstöðu til þessa ágreinings um orðalag íslensku EES-laganna frá 1993. Við töldum að þar væri um sérstakt lögfræðilegt úrlausnarefni að ræða. Samhliða vinnu okkar vann annar hópur að sérstakri álitsgerð um bókun 35.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra skipaði síðan árið 2022 starfshóp sem samdi frumvarp til breytinga á EES-lögunum með hliðsjón af athugasemdum ESA. Frumvarpið hefur síðan þvælst fram og til baka á Alþingi. Miðflokkurinn hefur gert mun meira úr þeirri stjórnskipulegu hættu sem af breytingunni kunni að leiða en tilefni er til.

Sigríður Á. Andersen, núverandi þingflokksformaður Miðflokksins, sat í starfshópi Þórdísar Kolbrúnar. Í Morgunblaðinu mánudaginn 28. september dró hún þá ályktun af fæðingarorlofsmálinu að hér væri fyrst og fremst um innleiðingar- og löggjafarvanda að ræða sem alþingi ætti að leysa en ekki rök fyrir þeirri forgangsreglu sem birtist í tillögu starfshópsins þar sem hún sat.

Sigríður hefur jafnframt talið rétt að láta EFTA-dómstólinn reyna á hvort Íslandi beri að innleiða bókun 35 með þeim hætti sem ESA krefst. Nú gefst tækifæri til að láta reyna á það nema alþingi taki af skarið á viðunandi hátt.

Sumir þingmenn Miðflokksins hafa varað við því að með breytingu EES-laganna í samræmi við bókun 35 sé farið yfir stjórnskipuleg mörk. Nýi fæðingarorlofsdómurinn styður ekki þá fullyrðingu. Hann sker vissulega ekki úr um stjórnskipulegt gildi þeirrar breytingar sem lögð hefur verið til, en staðfestir að íslenska ríkið getur borið ábyrgð þegar íslensk lög tryggja ekki þau réttindi sem leiða af EES-skuldbindingum Íslands. Vilji menn halda því fram að sú afmarkaða forgangsregla sem lögð hefur verið til brjóti gegn stjórnarskránni verða þeir að rökstyðja það sérstaklega.

Í fréttinni á mbl.is segir: „Bókun 35 er gömul málamiðlun frá gerð EES-samningsins og í henni felst ákveðin togstreita sem verið hefur tilefni ágreinings allt frá upphafi.“

Fyrir þann sem sýslað hefur við EES-mál í meira en 30 ár og kom að setningu EES-laganna árið 1993 er þetta einkennileg lýsing á vandanum sem nú blasir við.

Bókun 35 er ekki ný skuldbinding sem ESA hefur fundið upp á síðari árum. Hún var hluti af þeirri málamiðlun sem gerð var þegar EES-samningurinn var saminn. Vandinn er að íslenskir dómstólar hafa túlkað 3. gr. EES-laganna frá 1993 þrengra en við sem stóðum að lagasetningunni töldum að gera ætti.

Hæstiréttur hefur nú sýnt hvaða afleiðingar þetta getur haft fyrir einstaklinga. ESA hefur ákveðið að bera ágreininginn um skyldu Íslands undir EFTA-dómstólinn. 

Íslenska ríkið hefur þegar viðurkennt að íslensk lög fullnægi ekki skuldbindingunni sem Ísland tók á sig við gerð EES-samningsins. Alþingi  ber að horfast í augu við það og leysa vandann með skýrum íslenskum lögum.