Er Flokkur fólksins stjórnhæfur?
Stjórnhæfi flokks felst ekki aðeins í því að koma fólki í ráðherrastóla. Það krefst gagnsæis við töku ákvarðana sem varða stjórnskipulega ábyrgð, trúverðugleika við miðlun upplýsinga.
Stjórnmálaflokkar ráða hverjir sitja fyrir þeirra hönd í ríkisstjórn. Það var því pólitískur réttur Flokks fólksins að óska eftir ráðherraskiptum í janúar 2026. Ekki er deilt um þann rétt heldur hvernig honum var beitt og hvernig flokkurinn hefur brugðist við óskum um skýringar.
Guðmundur Ingi Kristinsson var að jafna sig eftir hjartaaðgerð þegar Inga Sæland hringdi í eiginkonu hans. Að sögn Guðmundar vildi hún hitta hann á sjúkrahúsinu til að ræða brotthvarf hans úr ríkisstjórninni, en eiginkona hans taldi að slíkt samtal gæti beðið þar til hann kæmi heim. Inga hefur á hinn bóginn sagt að erindið hafi aðeins verið að kanna líðan hans og hvort hann gæti tekið á móti gestum.
Eftir að Guðmundur var útskrifaður heimsóttu Inga og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hann. Hann tilkynnti afsögn sína 8. janúar 2026.
Samkvæmt frásögn Guðmundar hafði Sigurjón Arnórsson, aðstoðarmaður Ingu, rætt við hann um hvernig hann ætti að tilkynna afsögnina. Þá sendi Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Guðmundar og eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar, honum skilaboð þar sem lýst var tveimur kostum: veikindaleyfi og aftur á þing eða „stríði“. Hún sagði ákvörðunina „eingöngu valkyrjanna“ og lét fylgja drög að yfirlýsingu þar sem afsögnin var sögð ákvörðun Guðmundar sjálfs.
Ragnar Þór tók síðan sæti í ríkisstjórninni 11. janúar 2026.
Af þessu tilefni hefur verið spurt: Hvenær tóku formenn stjórnarflokkanna ákvörðun um ráðherraskiptin? Í umboði hvers töluðu aðstoðarmennirnir? Hvers vegna setti eiginkona væntanlegs eftirmanns Guðmundi afarkosti? Hvernig gat hún sagt ákvörðunina vera valkyrjanna ef Guðmundur átti að hafa tekið hana sjálfur?
Þingflokkur Flokks fólksins í september 2026 (vefsíða Flokks fólksins).
Þegar Guðrún Hafsteinsdóttir spurði Ingu Sæland, þá starfandi forsætisráðherra, um málið á alþingi 24. september svaraði Inga með því að segja Guðrúnu nær að „stíga inn í eigin skítapott“. Að loknum orðaskiptunum heyrðist Inga síðan segja „skítapakk“.
Daginn eftir sátu hvorki Inga né Ragnar Þór ríkisstjórnarfund. Ragnar var sagður veikur en engin skýring var gefin á fjarveru Ingu. Fréttastofa RÚV reyndi að fá viðtal við hana í gegnum aðstoðarmenn og framkvæmdastjóra þingflokksins en fékk ekki svör.
Laugardaginn 26. september steig Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, fram á völlinn. Hann svaraði ekki spurningunum um ráðherraskiptin heldur réðst að Elvu Hrönn Hjartardóttur, sem hafði lýst samskiptum sínum við Ragnar Þór þegar hann var formaður VR. Heimir Már sagði málflutning hennar spretta af „frumstæðum hefndarþorsta“ og lauk greininni á orðunum: „Þarna kraumar undir þorsti í hefnd.“
Þegar rætt var um ríkisstyrki til Flokks fólksins í febrúar 2025 gekk Heimir Már sömuleiðis fram og kallaði blaðamenn Morgunblaðsins „eiturpenna á Mogganum án alls siðgæðis sem einkennir góða blaðamennsku“. Hann talaði jafnframt um „úrillu hrútana í kofanum“. Nú er aftur ráðist að persónu þess sem gagnrýnir ráðherra flokksins í stað þess að svara efnislegum spurningum.
Heimir skrifar á Vísi undir nafni og starfsheiti. Þar sem hann er framkvæmdastjóri þingflokksins er óhjákvæmilegt að spurt sé hvort greinin endurspegli viðbrögð þingflokksins. Hafi hún verið skrifuð án samráðs við forystuna er það hennar að skýra það.
Stjórnhæfi flokks felst ekki aðeins í því að koma fólki í ráðherrastóla. Það krefst gagnsæis við töku ákvarðana sem varða stjórnskipulega ábyrgð, trúverðugleika við miðlun upplýsinga og hæfni til að svara eðlilegum spurningum án persónulegra árása.
Flokkur fólksins hefur oftar en einu sinni fallið á þessu prófi. Spurningum og gagnrýni er svarað með reiðiköstum, undanbrögðum og persónulegum óhróðri.
Það er endanlega á ábyrgð forsætisráðherra að taka af skarið um stjórnhæfi Flokks fólksins. Kristrún Frostadóttir verður að gæta sín á því að láta ekki Ingu Sæland draga sig með í fallinu.