9.10.2026 10:25

Einleikur Höllu

Halla lagði sig alla fram um að gera málið sem mest heillandi fyrir fjölmiðlamenn. Hún hafði stór orð um hvílíkt vald væri í hennar höndum.

Þeir sem fylgst hafa með gerð kjarasamninga hér hafa líklega flestir áttað sig á því að einleikurinn sem Halla Gunnarsdóttir formaður VR lék á lokadögunum fyrir uppsagnarstund kjarasamninganna klukkan 16.00 fimmtudaginn 8. október snerist um að vera í sviðsljósinu frekar en að samningunum yrði rift.

Halla lagði sig alla fram um að gera málið sem mest heillandi fyrir fjölmiðlamenn. Hún hafði stór orð um hvílíkt vald væri í hennar höndum. Ef hún segði upp samningnum myndi allt einfaldlega fara í bál og brand enda yrði samningum á opinbera markaðnum líklega einnig rift.

Þegar hún vó síðan að starfsfólki Samtaka atvinnulífsins (SA) fyrir að hafa skipulagt ferð til Króatíu um þessa helgi og taldi það lítilsvirðingu við sig og kröfur sínar blasti við málefnasnauð staða hennar.

Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA sá ástæðu til að andmæla fullyrðingum Höllu um að samtökin stæðu í vegi fyrir að samningarnir myndu halda.

Spennunni var haldið við alveg fram undir klukkan 16.00 á lokadeginum, 8. október. Sagt var frá því í beinni útsendingu í fréttum ríkisútvarpsins á þeirri stundu að samningunum yrði ekki rift.

1683379Bjarni Benediktsson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Daði Már Kristófersson í Ráðherrabústaðnum 8. október 2026 (mynd: mbl.is).

Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforingi á Akranesi og formaður Starfsgreinasambandsins (SGS), stóð ásamt Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, og Hilmari Harðarsyni, formanni Samiðnar, að samkomulagi fyrir breiðfylkinguna svonefndu þriðjudaginn 6. október, en í henni eru um 60% aðila að ASÍ. Halla Gunnarsdóttir vildi ekki vera í þeim hópi og taldi sig ná betri samningi með stöðugum hótunum um uppsögn.

Vilhjálmur sagði í færslu á FB 8. október að miklar yfirlýsingar um uppsagnir kjarasamninga og verkfallsátök hefðu ekki skilað sýnilegum ávinningi umfram það sem þegar stóð til boða í byrjun vikunnar.

SGS, Efling og Samiðn sömdu 6. október um að umsamdar launahækkanir héldust og samningstíminn styttist um einn mánuð, til ársloka 2027. Sú stytting er tryggð óháð því hver verðbólgan verður í október á næsta ári. Formaður VR skrifaði hins vegar „undir forsenduákvæði þar sem tveggja mánaða stytting er háð verðbólguskilyrðum, með tveimur viðmiðum í október á næsta ári: 4,3% tólf mánaða verðbólgu og 3,8% sex mánaða verðbólgu,“ segir Vilhjálmur

Sambærileg leið hafi þegar legið á borðinu í byrjun vikunnar en Breiðfylkingin hafi hafnað henni enda kunni enginn ávinningur að verða af henni.

Forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 17.30 8. október þar sem smiðshöggið var rekið á þetta ferli og Kristrún Frostadóttir talaði um „vendipunkt“ í baráttunni við verðbólguna.

Sólveig Anna tók þar til máls og gagnrýndi Höllu Gunnarsdóttur.:

„Segir Sólveig Anna að sér virðist að hvati stöllu sinnar í VR sé persónuleg framagirni, persónulegur metnaður og vilji til þess að láta þetta allt hverfast um sig,“ stendur á mbl.is.

Hér skal tekið undir þetta mat.