EES-rétt ber að virða
Hæstiréttur hefur þó ekki með þessum dómi tekið afstöðu til stjórnskipulegs gildis frumvarpsins um bókun 35. Dómurinn sýnir hins vegar að hér er ekki verið að skapa ný EES-réttindi.
Hæstiréttur kvað miðvikudaginn 23. september upp athyglisverðan dóm um rétt konu sem hafði starfað sem læknir í Danmörku áður en hún flutti heim til Íslands. Dómurinn sýnir með skýrum hætti hvers vegna nauðsynlegt er að ljúka innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn og breyta EES-lögunum.
Konan höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu til heimtu skaðabóta á þeim grundvelli að ranglega hefði verið staðið að því að leiða í lög reglur EES-samningsins um frjálsa för launþega og fyrirmæli reglugerðar ESB um samræmingu almannatrygginga. Af þeirri ástæðu hefði hún aðeins fengið lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof í stað þess að tekið hefði verið mið af launum á Íslandi fyrir sambærilegt starf og hún gegndi á viðmiðunartímabili er hún starfaði í Danmörku.
EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að við ákvörðun fæðingarorlofsgreiðslna bæri að miða við tekjur launþega hér á landi með sambærilega starfsreynslu og hæfni. Íslensku lögin tryggðu henni ekki þennan rétt.
Þetta staðfesti hæstiréttur þegar málið kom fyrst fyrir réttinn árið 2024. Var tekið mið af því að orðalag íslensku laganna væri skýrt og ótvírætt. Hæstiréttur taldi sér því ekki heimilt að víkja því til hliðar með EES-samræmdri lögskýringu.
Þarna birtist gallinn á núverandi skipan svart á hvítu:
Einstaklingur sem á rétt samkvæmt EES-samningnum getur ekki notið hans vegna þess að íslensk lög hafa ekki verið réttilega löguð að skuldbindingum Íslands. Hann stendur þá verr að vígi hér á landi en hann á rétt á samkvæmt EES-reglunum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða.
Nýi dómurinn leiðréttir tjón konunnar eftir á. Hæstiréttur dæmir íslenska ríkið til að greiða henni 2.782.238 krónur auk vaxta. Rétturinn segir beinlínis að brotið verði rakið til þess að löggjafinn hafi ekki innleitt EES-reglurnar með fullnægjandi hætti. Það hafi ekki verið fæðingarorlofssjóður eða úrskurðarnefnd velferðarmála sem brást heldur löggjafinn.

Hæstiréttur gengur enn lengra. Hann viðurkennir að í upphafi hafi verið erfitt að sjá nákvæmlega hvernig íslensku lögin brytu gegn EES-reglunum. Dómur Evrópudómstólsins árið 2011 hafi hins vegar skýrt réttarstöðuna. Eftir það hafi íslenska ríkið haft hæfilegan tíma til að laga lögin. Níu árum síðar hafi það enn verið ógert. Hæstiréttur segir ríkið með þessu hafa brugðist alvarlega skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum.
Frumvarpið sem nú liggur fyrir alþingi gerir ráð fyrir að skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir EES-skuldbindingu gangi framar ósamrýmanlegu almennu lagaákvæði, nema alþingi hafi sérstaklega mælt fyrir um annað. Markmiðið er að einstaklingar og lögaðilar njóti að fullu þeirra réttinda sem Ísland hefur þegar skuldbundið sig til að tryggja samkvæmt EES-samningnum.
Í umræðum um þessa breytingu hefur því verið haldið fram að hún kunni að ganga gegn stjórnarskránni. Þessi nýi dómur gefur sérstakt tilefni til að skoða þau rök. Hæstiréttur segir að konan hafi átt rétt samkvæmt EES-samningnum, að íslensk lög hafi ekki tryggt henni þann rétt og að löggjafinn hafi með því að láta ósamræmið standa árum saman brugðist svo alvarlega skyldum sínum að ríkið sé skaðabótaskylt. Það væri einkennileg niðurstaða að stjórnarskráin heimilaði að ríkið yrði dæmt til bóta vegna þess að alþingi tryggði einstaklingi ekki þessi réttindi en bannaði alþingi jafnframt að setja almenna lagareglu sem tryggði að réttindin næðu fram að ganga.
Hæstiréttur hefur þó ekki með þessum dómi tekið afstöðu til stjórnskipulegs gildis frumvarpsins um bókun 35. Dómurinn sýnir hins vegar að hér er ekki verið að skapa ný EES-réttindi eða skuldbinda Ísland til einhvers sem alþingi hefur ekki þegar samþykkt. Spurningin er hvernig tryggja eigi innan íslensks réttar réttindi sem leiða af EES-samningnum og Ísland hefur þegar skuldbundið sig til að virða. Þar skiptir einnig máli að samkvæmt frumvarpinu heldur alþingi síðasta orðinu: Forgangsreglan gildir ekki hafi alþingi sérstaklega mælt fyrir um annað.
Andstæðingar breytingarinnar hafa gert málið að spurningu um vald EES-reglna gagnvart íslenskum lögum. Nýi hæstaréttardómurinn sýnir hina hliðina: Rétt einstaklings gagnvart íslenska ríkinu.
Nú fær konan bætur eftir margra ára málarekstur. Það er vissulega sigur fyrir hana. Betri réttarskipan hefði hins vegar tryggt henni réttinn þegar á reyndi.
Þess vegna á að breyta EES-lögunum. Einstaklingur á ekki að þurfa að fara í gegnum stjórnsýslu, EFTA-dómstólinn og tvö mál fyrir hæstarétti til þess að fá að lokum bætur fyrir réttindi sem Ísland hafði skuldbundið sig til að tryggja honum frá upphafi.