25.11.2026 12:15

Dylgjutal í stað svara

Frétt RÚV snerist um viðbrögð stjórnarliða við gagnrýni en ekki tilefni gagnrýninnar. Spurningum um lagaheimildir utanríkisráðherra til ráðstöfunar almannafjár er enn ósvarað.

Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lagði þrjár einfaldar spurningar fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á alþingi mánudaginn 23. nóvember vegna samnings hennar við Nebraska ehf., fyrirtæki Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar, um pólitíska ráðgjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.

Ólafur spurði um lagaheimild til að ráða verktaka til pólitískra starfa, hvernig greiðslur til hans hefðu verið ákveðnar og á hvaða lagaheimild ráðherra byggði munnlegan samning um hækkun greiðslnanna.

Ráðherrann tilgreindi enga slíka lagaheimild en sakaði Ólaf um dylgjur og aðdróttanir. Hún hafði auk þess rangt eftir honum. Ólafur sagði enga starfslýsingu hafa fylgt munnlega samningnum. Ráðherrann brást við með því að segja verkefnin hafa verið mjög skilgreind í samningnum. Heiða Kristín hafði þó sjálf sagt í sjónvarpi: „Mín starfslýsing var engin.“

Rök ráðherrans um að hún hefði ekki ráðið sér annan aðstoðarmann svara ekki spurningunni um lagaheimild. Heimild til að ráða aðstoðarmann samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands felur ekki sjálfkrafa í sér heimild til að kaupa pólitíska ráðgjöf af einkafyrirtæki.

Screenshot-2026-11-25-at-12.13.42Skjámynd af ruv.is

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fylgdi málinu eftir á þingi þriðjudaginn 24. nóvember. Hann vakti meðal annars athygli á mismunandi stöðu verktaka og aðstoðarmanna ráðherra gagnvart skattalögum og reglum um hagsmunaskráningu. Hann taldi tilefni til að umboðsmaður alþingis tæki samningsgerðina til skoðunar.

Jens Garðar velti einnig fyrir sér hvort val á samningsformi tengdist skattskuldum sem sagt hafði verið frá í fjölmiðlum, með þeim skýra fyrirvara að upplýsingar þeirra um skuldirnar væru réttar. Um þessa tilgátu má deila en varaformaðurinn sakaði engan um skattundanskot eins og ráða mátti af orðum þingflokksformanns Samfylkingarinnar.

Þingflokksformenn ríkisstjórnarflokkanna komu hver á fætur öðrum í ræðustól og gagnrýndu ummæli Jens Garðars um skattamál fjarstaddra einstaklinga. Við það færðist athyglin frá svaraleysi utanríkisráðherra daginn áður.

Fréttamaður ríkisútvarpsins, Magnús Geir Eyjólfsson, kaus að segja frá þessum umræðum undir fyrirsögninni: „Skömmuðu Jens Garðar sem vill að umboðsmaður skoði samning Þorgerðar.“

Fréttamaðurinn rakti ummæli þingflokksformanna stjórnarflokkanna en sleppti efnislegum andsvörum þingmanna stjórnarandstöðunnar. Ekki var til dæmis getið um ræðu Sigríðar Á. Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins, um gerviverktöku eða ábendingu sjálfstæðismannsins Árna Helgasonar um jafnræði fylkinganna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Fréttin var fyrst og fremst um viðbrögð stjórnarliða við gagnrýni en ekki tilefni gagnrýninnar. Hvenær ætlar fréttastofan að gera efnisatriðum samningsins sjálfs sambærileg skil?

Það er ekki einkamál Heiðu Kristínar með hvaða lagaheimild utanríkisráðherra gerir samning við fyrirtæki hennar. Það er ekki heldur einkamál ráðherrans hvernig hún ráðstafar almannafé í tengslum við pólitíska baráttu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.

Alþingismenn eiga að veita framkvæmdarvaldinu aðhald og fréttamenn ríkisútvarpsins eiga að upplýsa almenning með hlutlægum hætti um hvernig því hlutverki er sinnt.

Hvað sem líður ásökunum þingflokksformanna ríkisstjórnarflokkanna um dylgjur hefur spurningum Ólafs Adolfssonar ekki verið svarað. Það er Þorgerður Katrín sem ber ábyrgð á samningsgerðinni og henni ber að standa þingi og þjóð skil gerða sinna.